Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.1968, Blaðsíða 2

Bjarmi - 01.07.1968, Blaðsíða 2
12. SUNNUDAG E FT I R ÞRENNINGARHATIÐ - M A R K. 7, 31 - 37 Allt hefur hann gjört vel Kraftaverk koma ekki til mála. Að vísu getur eitt og annað gerzt, en sé betur að gáð, hefur allt sínar skýringar. Trú á kraftaverk heyrir liðnum tíma til. Það er meira að segja orðið furðulangt síðan allir sæmilega gefnir menn strikuðu allt yfirnáttúrlegt út úr Ritn- ingunni. Það er bezt fyrir alla að þegja seni mest um kraftaverkasögurnar, nema þar sem unnt er að benda á hliðstæður annars staðar. Afleiðing þessa viðhorfs er auðsæ. Kristin kirkja hefur ekkert myndugt orð að flytja mönnunum. Það loðir svo margt óþægilegt og ótrúlegt við trúarbók hennar, að vandi er. Öðruvísi var þetta á dögum frumvottanna. Þeir fóru borg úr borg og land úr landi og báru með fögnuði, djörfung og brennandi hjarta vitni um Jesúm, sem Guð hefði gert bæði að Kristi og að Drottni. Hvað boðuðu þeir? Þeir boðuðu hann sjálfan sem Drottin og frelsara — eina líf og hjálpræði mannanna. Máli sínu til stuðnings sögðu þeir frá dauða hans og upprisu og einnig ótal sögur frá at- burðum, sem þeir höfðu séð með eigin aug- um. Þeir voru þannig, að ógerlegt var að skýra þá nema á einn veg: Jesús bjó yfir mætti, sem ekki var af þessum heimi. Frammi fyrir hundraðshöfðingjanum í Sesareu sagði Pétur: „Guð hefur sent Israels- mönnum boðskap sinn, er hann boðaði fagn- aðarerindið um frið fyrir Jesúm Krist, sem er Drottinn allra. Þetta erindi þekkið þér . . . söguna um Jesúm frá Nazaret, hversu Guð smurði hann Heilögum Anda og krafti, hversu hann gekk um kring, gjörði gott og græddi alla, sem af djöflinum voru undir- okaðir, því að Guð var með honum.“ Nikódemus, ráðherra meðal Gyðinga, kom til hans um nótt og sagði: „Rabbí, vér vit- um, að þú ert lærimeistari, kominn frá Guði, því enginn getur gjört þessi tákn, sem þú gjörir, nema Guð sé með honum.“ Lærisveinar hans og mannfjöldi, sem vott- ur var að máttarverkum hans, vitnaði og sagði: „Sannarlega ert þú Guðs sonurinn“ og „Spámaður mikill er risinn upp meðal vor, og: Guð hefur vitjað lýðs síns.“ Þótt guðspjall það, sem yfirskrift þessarar greinar er tekið úr, segi frá miklum hlutum, sem í'ram komu við eitt af neyðarinnar börn- um, talar það þó skýrast um hann, sem í lok frásagnarinnar fær vitnisburðinn: „Allt hef- ur hann gjört vel, jafnvel daufa lætur hann heyra og mállausa mæla.“ Kraftaverk Krists eru staðreynd. Miðað við mannlega getu og út frá mannlegri skyn- semi geta slík verk ekki átt sér stað. Þegar því er staðið frammi fyrir staðreynd krafta- verksins, hlýtur undrunin að spretta upp gagnvart honum, sem í sannleika getur unn- ið slík verk. Þetta er eitt af því, sem sýnir oss, að Jesús er Drottinn, Guðs sonurinn, sem kom í þennan heim. Með þakkargjörð og lofsöng göngum vér inn í hóp þeirra, sem vegsama hann, sem lýkur upp eyrum hins daufa og læknar tungu þess málhalta, svo að hann getur lofað Guð sinn og talað rétt um hann og stórmerki hans meðal mannanna. Og að tala rétt um hann er að viðurkenna hiklaust guðdóm hans og hjálpræðisverk og vitna um það, að Jesús Kristur er i sannleika frelsari heimsins. Hefur hann fengið að taka þig afsiðis frá mannfjöldanum og snerta svo eyru þín, að þú heyrir í sannleika rödd hans gegnum all- ar afneitunarraddir? Hefur hann fengið að snerta svo tungu þína, að þú takir þátt í lofgjörðinni, er segir: „Allt hefur hann vel gjört." 2 B .1 A R M I

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.