Bjarmi - 01.07.1968, Page 5
er hægt að heyra Lúthersku
stundina um allt landið.
Á þessum liðnu árum hefur
fagnaðarerindið borizt á öldum
Ijósvakans til milljóna manna,
vmgra og aldinna, ríkra og fá-
tækra, hraustra og sjúkra.
Kristinn boðskapur hefur
hljómað innan dyra, sem annars
eru lokaðar kirkju og kristni-
boðum. Hjá mörgum hefur hann
vakið nýja von, sem bæði varð-
ar tíma og eilífð.
Af hinum mikla fjölda hlust-
endabréfa gætu menn ályktað,
að kirkjur í Japan væru nú yfir-
fullar af kirkjugestum. Því mið-
ur hefur reynslan sýnt, að þótt
útvarpshlustendurnir séu mjög
margir, þá eru þeir tiltölulega
mjög fáir, sem af sjálfsdáðum
koma til kirkjunnar. 1 þessu eru
fólgnar takmarkanir útvarps-
kristniboðsins. Það nær til mjög
margra, en krefst mikils auka-
starfs, ef árangur á að nást. Og
í því eru aðalerfiðleikarnir
fólgnir. Útvarpsdagskrá geta fá-
ir menn búið til, fjölritað og sent
víðs vegar, en það þarf fjöida
trúrra verkamanna til að bjarga
uppskerunni á hinum víðáttu-
miklu ökrum. Engin fjölmiðlun
getur komið í staðinn fyrir það
persónulega starf, sem nauðsyn-
lega þarf til að leiða einstakl-
inginn til skírnar og lifandi
trúar.
Lútherska stundin hefur þess
vegna frá upphafi starfrækt
biblíubréfaskóla í tengslum við
útvarpsþættina. Bréfin hafa
reynzt okkar beztu starfstæki.
Upphaflega var það Lútherska
miðstöðin í Tokyo, sam annað-
ist öll bréfaskipti við hlustend-
urna, en það kom fljótt í ljós,
að það var ekki hægt að fjar-
stýra svo yfirgripsmiklu starfi.
Svæðamiðstöðvar voru þess
vegna smátt og smátt settar á
fót, þannig að nú eru þær 18,
sem annast þetta starf í félagi
við söfnuðina á viðkomandi
svæðum. Það sem þannig hefur
unnizt á þessum árum, er mjög
uppörvandi.
Norskt kristniboð tók snemma
þátt í þessu starfi. „Det norske
Misjonsselskap" hefur veitt því
árlegan f járhagsstuðning frá ár-
inu 1954, og það stóð fyrir opn-
un svæðismiðstöðvarinnar í
Osaka, en hún er ein af þeim
stærstu í Japan og veitir þjón-
ustu hlustendum fjögurra út-
varpsstöðva. Á svæði því, sem
þær ná til, búa um 30 milljónir
manna.
500 þús. manns hefur innrit-
azt í þennan bréfaskóla á liðn-
um árum og 50 þúsund lokið
námskeiðunum. 150 þús. Bibl-
íum og hlutum af henni hefur
verið útbýtt og þúsundir þess-
ara nemenda hafa tekið skírn.
En nú koma einnig nýir erf-
iðleikar til sögunnar. Einkum
er það kapphlaupið milli hljóð-
varps og sjónvarps, sem veldur
vandanum. Til ársins 1964 var
þetta vandamál óþekkt, en síð-
an hefur sjónvarpstækjum fjölg-
að svo ört, að nú eru þau fleiri
en fjölskyldurnar í landinu. Það
er því enn þörf á að laga sig að
breyttum aðstæðum, en verk-
efnið er óumbreytanlegt: Að
boða öllum Japönum hjálpræð-
ið í Kristi Jesú.
Steingrímur Benediktsson.
„Fjarlægar landsálfur bíða eftir boðskap hans”
Um árabil hafa frétlir um liörmungar og neyð liorizt
frá Suðaustur-Asíu. Milljónir manna þjást og hafa eng-
in tök á að lifa eðlilegu mannlífi. Von um mannlega
hjálp liefur hrugðizt. Fagnaðarerindið um Drottin Krist
mun eitt megna að veita jíann styrk, seni þarf.
^________________________________________________________________J
n j a n M i 5