Bjarmi - 01.07.1968, Síða 9
í Gidole er orðinn stór þáttur i
íslenzku kristniboðsstarfi. Sá
bær, og kristniboðsstöðin þar,
þarf að komast inn í meðvitund
og kærleika þeirra engu síður
en starfið í Konsó. Sá Guð, sem
fól oss starfið í Konsó, hefur
einnig falið oss aukið starfssvið.
Minnumst því kristniboða vorra
í Gídole, en þeir eru, taldir eft-
ir starfsaldri þar:
Áslaug og Jóhannes Ólafsson,
sjúkrahúslæknir,
Kjellrún og Skúli Svavarsson,
stöðvarstjóri,
Margrét og Benedikt Jasonar-
son, biblíuskólakennari,
Simonette Bruvik, hjúkrunar-
kona.
Minnumst skyldu vorrar við
þau bæði í fjárhagsstuðningi og
fyrirbæn.
Annars vísast til bréfs frá
Skúla á öðrum stað i þessu blaði.
Þar er sagt frá starfinu á svæði
Gídole-stöðvarinnar.
Kristuiboðsstöðiii í biidolc
Kristniboösstöðin í Gidole er um 53 km fyrir norðan
Konsóstöðina, í um 2200 m hœð yfir sjávarmál, eða ör-
litið hœrri en Hvannadalshnúkur. Á stöðinni er sjúkra-
hús, barnasköli, framháldsskölar, biblíuskóli o. fl. Þrenn
íslenzk hjón verða nú starfandi á stöðinni. Starfið hefir
borið ríkulegan ávöxt. Um síðustu áramót voru á sjötta
þúsund safnaðarmeðlimir. Prestar voru fjórir auk margra
kennara og prédikara.
EN VANDASAMT
74 söfnuðir á Gidole-svœðinu
Stórir hópar skírnþega
námskeið. Þetta eru alltof fáir starfsmenn. Þeir
söfnuðir, sem ekki liafa fastan prédikara, biðja
stöðugt um mann, sem getur boðað þeim Guðs
orð. Ef vel befði átt að vera, hefði hver söfnuður
þurft að bai’a sinn prédikara.
Á skírnar- og fermingarnámskeiðum eru nú á
milli þrjú og 400 manns, og fjöldinn allur bíður
eftir námskeiði. Hvert námskeið stendur yfir í
uin það bil þrjá mánuði, og að einu námskeiði
loknu fer kennarinn til þess þorps, sem liefur
beðið lengst eftir kennslu. Hér á Gidole-svæðinu
lauk þrem námskeiðum nú í maí. Eitt námskeið
var í Taliole, sem er um það bil tveggja tíma
göngu frá stöðiimi. Eftir að við höfðum spurt
nemendurna út úr kristnum fræðum, skírðum
við 153 og fermdum 43. Á næsta staðnum, sem
heitir Gresne og er um fjögurra tíma göngu frá
stöðinni, skírðuin við 106 og fermdum 23. Þriðji
staðurinn var Delbina, sem er á landamærum
Konsó. Þar voru skírðir 17 og fermdir 12. Á
þennan hátt vex ríki Guðs á meðal okkar. Það
er okkar innilega bæn, að þetta fólk niegi varð-
veitast í trúnni og samfélaginu við Jesúm Krist.
Ilér á Gidole-stöðvarsvæðinu, eins og á flestum
öðrum stöðum í Eþíópíu, eru fáir sem kunna að
lesa og skrifa. Þetta er mjög til baga fyrir kristi-
lega starfið. Fólkið getur ekki lesið Guðs orð og
hefur það mikil áhrif á vöxt trúarlífs þess. Til
að ráða bót á þessu hafa söfnuðirnir skóla í
fjórum þorpum. Á Iveim af stöðunum eru aðeins
fvrsti og annar bekkur, en á hinum stöðununi
eru fjórir bekkir. Tólf kennarar annast kennslu
við þessa þorpsskóla. Auk kennaranna annast pré-
dikararnir kvöldkennslu fvrir þá, sem ekki hafa
tækifæri til að fara á skóla.
Starfið er mjög spennandi, en krefst mikils.
Já, oft krefst það meira en við getum gefið, og
við finiiuin til smæðar okkar og vanmættis. Það
er líf innan safnaðanna, og þar sem er líf þar er
bæði gleði og erfiðleikar. Það er mikil ábyrgð
að vera trúað fyrir öllu þessu starfi.
Kæru kristniboðsvinir, biðjið, að Guð gefi
okkur vísdóm og náð til þessa starfs, sem liann
hefur sett okkur inn í. Við viljum einnig biðja
vkkur að minnast fólksins á Gidole stöðvarsvæð-
inu. Það þarfnast ykkar fvrirbænar.
Beztu kveðjur með Markús 13,13.
Kjellrún, Skúli og börnin.
II .1 A R M I »