Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.1968, Blaðsíða 11

Bjarmi - 01.07.1968, Blaðsíða 11
starf meðal Bórana og aflað sér mikillar og náinnar þekkingar á landi og þjóð. Er auðheyrt af allri frásögn hans, að hann hef- ur tengzt Bórönum traustum böndum og samlagazt starfsað- stæðum vel. Hann hefur brenn- andi áhuga á boðun fagnaðar- erindisins meðal þeirra og læt- ur einskis ófreistað, sem koma megi að haldi til þess að ná til þessarar þjóðar, sem á við harð- býli að búa og þekkir hörmung- ar hungursneyða og ófriðar af sárri raun. íslenzkir kristniboðsvinir þakka heimsókn Haraldar. Það er sjálfsagður þáttur í fyrir- bænarstarfi voru að minnast þeirra hjóna og starfs þeirra í Bórana. Þau hjónin munu dvelja í hvíldarleyfi í Noregi, að minnsta kosti næsta vetur. Frá Kórcu Eins og kunnugt er, er Kórea klofin í tvennt. Hermenn gráir fyrir járnum gæta landamær- anna við hlutlausa beltið svo- nefnda. önnur barátta á sér einnig stað þarna. Barizt er um manns-sálirnar. Á mynd þessari má sjá stóran hátalara, sem notaður er til þess að senda kristilega útvarpsdagskrá norð- ur yfir markalínuna. Margrét á föriiin Þau frú Margrét Hróbjarts- dóttir og Benedikt Jasonarson, kristniboði, komu hingað til lands í byrjun júlímánaðar. Var erindi þeirra að ganga frá far- angri sínum og kveðja kristni- boðsvini hér á landi, áður en þau hjón halda til Eþíópíu til kristniboðsstarfs þar. Þegar þetta er ritað, er gert ráð fyrir því, að þau leggi af stað með flugvél frá Reykjavík þriðjudag- inn 20. ágúst. Þau hjónin hafa, eins og kunn- ugt er, dvalið í Noregi undan- farin fjögur ár. Fór Benedikt þangað upprunalega til lækn- inga, og er séð var, að dregizt gæti, að þau kæmust aftur út til kristniboðsstarfsins, hóf Mar- grét hjúkrunarnám í Noregi. Lauk hún því síðari hluta síð- astliðins vetrar. Áður hefur verið skýrt frá því, að tilmæli komu um það, að þau hjónin færu aftur til Eþíópíu, og Benedikt tæki að sér kennarastörf við Biblíuskóla kristniboðsins í Gidole. Stjórn kristniboðssambandsins sam- og Benedikt til Eþíópíu þykkti fyrir sitt leyti, að ís- lenzkir kristniboðsvinir tækju að sér að greiða laun þeirra hjóna. Verður það að teljast eðlilegt, einkanlega þegar þess er gætt, að samstarf verður æ nánara milli Gidole og Konsó. Konsónemendur fara í æ ríkara mæli til framhaldsnáms við skól- ana í Gidole. Islenzka kristni- boðið hefur reist heimavistar- hús fyrir slíka nemendur á kristniboðsstöðinni í Gidole. Færist æ meir í það horf, að starfið á þessum tveim kristni- boðsstöðum verði sameiginlegt. Er nánar frá því sagt í annarri grein. Þau Margrét og Benedikt komu of seint heim til þess að geta tekið þátt í almenna mót- inu í Vatnaskógi. Þau hafa ver- ið mjög önnum kafin við að ganga frá farangri sínum, en hafa þó talað á nokkrum sam- komum og tekið þátt í fundum. Kveðjusamkoma fyrir þau er ákveðin sunnudaginn 18. ágúst, tveim dögum áður en þau fara suður á bóginn. dSiLfiu- ocj hriótnILo(íón dmól?ei Árlegt Biblíu- og kristniboðsnámskeið í Vatnaskógi verður að þessu sinni dagana 14.—22. sept. Fyrirkomu- Iag verður með svipuðum hætti og verið liefur undan- farin ór. Útskvrð verða rit eða kaflar úr Gamla- og Nýja- testamentinu. Kristniboðstímar verða, svo og tekin fyrir einstök efni trúarlegs og siðferðilegs eðlis eða varðandi kristilegt starf. Þátttaka er heimil öllum, sem orðnir eru 16 ára. Þess skal sérstaklega getið, að námskeiðið er ekki sniðið við unglinga sérstaklega, heldur er engu síður velkomið rosk- ið fólk og fullorðið. Þátttaka tilkynnist á Aðalskrifstofuna, Amtmannsstíg 2B. Sími 17536 og 13437. Þátttökugjald er áætlað kr. 140,00 á dag. Ferðakostnaður greiðist sérstaklega. B.1ARMI 11

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.