Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.01.1973, Page 6

Bjarmi - 01.01.1973, Page 6
Starfssvæði kristniboðsins í Suður-Eþíópíu Norska lútherska kristniboðs- sambandið hóf starf í Suður- Eþiópíu árið 1948, eða fyrir 25 árum. Uppdrátturinn hér á síð- unni sýnir starfssvæði þeirra, og skulu hér nefndar helztu stöðvar þeirra og samstarfs- manna þeirra. Þarna starfa ekki aðeins Norðmenn, heldur einnig Færeyingar, Danir, Finnar og Islendingar. Stöð vor er í Konsó. Á upp- drættinum má sjá ána Seggen. Hún stefnir í suður, unz hún fer fram hjá Konsó, en þá beygir hún til vesturs. Fyrrum lá leið islenzku kristniboðanna norðan frá Addis Abeba (sést ekki á kortinu) um Javelló, og var Seggen þá oft mikill tálmi á þeirri leið. Nú hefur hún verið brúuð. Nýi presturinn í Konsó, Kússía Goyola, á að þjóna söfn- uðum í grennd við Seggen. Eitt kunnasta þorpið á því svæði heitir Geldeha. Varla getur verri veg á starfs- svæðinu í Suður-Eþíópiu en á milli Konsó og Gidole (norðar). Honum er lítt eða ekki haldið við. Hafa kristniboðarnir farið margar svaðilfarirnar á þeirri leið, enda reyna þær mjög á þrek þeirra og þolrif. Stundum er farinn „neðri vegurinn og til Gidole að norðan“. Er þá haldið austan við veginn, sem sýndur er á myndinni, yfir mikla sléttu og gróðursæla og langleiðina til vatnsins Chamo og síðan beygt til Gidole, upp í fjöllin. Islenzk- ir kristniboðar hafa lagt lið í Gidole um árabil. Nú er þar eng- inn Islendingur. Barnaskólar eru í Konsó, en framhaldsskólar eng- ir. Því fara margir unglingar til gagnfræðanáms í ríkisskóla í Gidole (og Arba Minch). Þeir fá sumir rúm í heimavist í ,,Konsóhúsinu“ á kristniboðs- stöðinni í Gidole, sérstöku húsi, sem kirkjan í Konsó á og reist var fyrir gjafir íslenzkra kristni- boðsvina á sínum tíma. Allmargt æskufólk frá Konsó hefur sótt biblíuskóla í Gidole, enda er slík- ur skóli ekki enn risinn í Konsó. Arba Minch er höfuðstaður fylkisins Gamu Gofa. Á kristni- boðsstöðinni þar er m. a. iðn- skóli, og kvennaskóli á að rísa þar. Þar á Jóhannes Ólafsson að veita forstöðu sjúkrahúsi, sem ríkið er að láta reisa rétt við kristniboðsstöðina. — Vatnið Abai er næststærsta stöðuvatn- ið i Eþíópíu. Danskir kristniboðsvinir hafa undanfarið verið að reisa stöð í Geressí, en það er hérað á starfssvæði Gidole-stöðvarinnar (sést ekki á kortinu). Sé farið frá Gidole, er ekið í átt til Arba Minch. Þegar komið er miðja vegu eða þar um bil, er farið út af aðalveginum og haldið til vesturs, fyrst um alllangan bein- an og sléttan veg, en síðan tek- ur við mikill fjallvegur. Stendur Geressí hátt, og er útsýni frá væntanlegri kristniboðsstöð hið fegursta. Áætlað er, að þama starfi dönsk hjón og færeysk hjúkrunarkona. Annar fulltrúi Færeyinga i Eþíópíu er Elsa Jac- obsen. Hún hefur starfað i Konsó. I vetur hefur hún verið hjúkrunarkona á stöðinni í Gata, austur af Agere Selam. Danimir eru fulltrúar lútherskrar leik- mannahreyfingar, Danska lúth- erska trúboðsfélagsins. Fær- 6

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.