Bjarmi - 01.01.1973, Qupperneq 16
Tölur frá Bandaríkjunum.
Fyrir nokkru, segir í sænska
blaðinu Budbáraren, var það
kannað í þéttbýlu svæðunum í
Minneapolis og St. Paul í Minne-
sota í Bandaríkjunum, hversu
háttað væri áhuga fólks í trú-
málum. Kom þá í Ijós, að trúar-
áhugi á þessum slóðum hefur
minnkað til muna, ef litið er til
sams konar athugunar, sem gerð
var árið 1966. íþróttir eru helzta
áhugamál fólksins, segir í nýju
skýrslunni: 16% (14% árið
1966). En í öðru sæti eru trúar
brögð: 14% (39% árið 19661).
Þá koma stjórnmál: 11% (8%),
tónlist: 10% (10%) o. s. frv.
Safnaðarfólki í níu stærstu
kirkjufélögum mótmælenda í
Bandaríkjunum hefur fækkað um
250 þúsund manns nú á skömm-
um tíma. Til þessara kirkna telj-
ast nú 25,5 milljónir manna. Aft-
ur á móti hefur fjárþörf kirkn-
anna aukizt til muna, eða um
nærfellt 63,5 milljónir dollara, og
þurfa kirkjurnar nú á 2,3 millj-
örðum dollara að halda til starf-
semi sinnar, samkv. skýrslum
Þjóðarráðs kirkna í Bandaríkjun-
um. Lútherska kirkjan er ein of-
angreindra kirkna.
Guðfræðinemum fjölgar
í Sviþjóð.
Fleiri æskumenn í Svíþjóð
vilja nú gerast prestar sænsku
þjóðkirkjunnar en áður var. Þetta
kom fram á fundi blaðamanna og
biskupa í Svíþjóð fyrr í vetur.
En aðsókn nemenda í guðfræði-
deildir nægir þó ekki til að bæta
úr þörfinni á prestum. Ungu guð-
fræðingarnir geta valið úr 467
brauðum.
Góð hugmynd.
Tannlæknir nokkur í Englandi
vill gjarnan, að fólk það, sem til
hans leitar, fái að heyra fagnað-
arerindið. Hann tekur því kristi-
legar útvarpsdagskrár upp á seg-
ulband og leikur það síðan á
lækningastofunni hjá sér, meðan
hann hefur opið.
Ur ýmsum
áttum
Indland lokað.
Billy Graham hefur orðið að
hætta að sinni við meiriháttar
,,herferð“, sem fyrirhuguð var í
Indlandi. Ástæðan er sú, að ind-
verska stjórnin hefur ekki viljað
veita honum og samstarfsmönn-
um hans landvistarleyfi.
Kennara vantar í Eþíópíu.
Eþíópía er um það bil þrettán
sinnum stærra en ísland, en
fólksfjöldinn er margfalt fleiri,
eða um 24 milljónir. Börn á aldr-
inum 7—15 ára eru skyld að
sækja skóla í Eþíópíu. Einungis
15 af hundraði þessara barna
njóta fræðslu. Kennarar munu
vera um 14 þúsund talsins. Það
táknar, að hver kennari kenni 63
börnum, ef miðað er við, að hver
nemandi sæki 35 kennslustundir
á viku og kennari kenni 30
kennslustundir. Nærfellt 1000
kennarar útskrifast árlega, en
það er of lítill hópur miðað við
þarfir þjóðarinnar. Eins og fyrr
segir, eru kennarar í Eþópíu nú
um 14 000 talsins. Ef gert væri
ráð fyrir, að hverjum kennara
væri ætlað að kenna aðeins 30
nemendum og um helmingur
skólaskyldra barna sækti skóla,
þyrftu kennararnir að vera um
100 000. Kennarar í Eþíópíu hafa
að vonum lægri laun en stéttar-
bræður þeirra í Evrópu. Þó eru
byrjunarlaun þeirra meira en tíu
sinnum hærri en meðaltekjur ein-
staklinga í Eþíópíu.
Biblíulestur í Svíþjóð.
Biblían hefur haft mikil áhrif
í sögu Svía um aldirnar, eins og
raun er á um allar þær þjóðir,
sem hafa haft orð Guðs á móð-
urmáli sínu. Jafnvel árið 1948
kom í Ijós, að 16% fullorðinna
Svía las Biblíuna reglulega. F
seinni tíð þykir þó bera á því, að
Biblían sé minna lesin en reynd-
in var á meðal fyrri kynslóða í
Svíþjóð. Samkvæmt skýrslu, sem
kom út á iiðnu ári, lesa nú að-
eins tíu af hundraði fullorðinna
Svía ritninguna, þ. e. fimm af
hundraði daglega og önnur fimm
eigi sjaldnar en einu sinni í mán-
uði. Og þetta fólk er flest eldra
en fimmtugt. Æskufólk á aldrin-
um 18—19 ára les Ðiblíuna mun
minna, eða aðeins 2% að stað-
aldri. Hins vegar teljast Biblíu-
lesarar á aldrinum 30—49 ára
vera 13%. í dreifbýli eru 30%
slíkra lesara, sem opna Biblíuna
á hverjum degi, en í stórborgum
eru þeir aðeins 5% og 12% að
öðru leyti í þéttbýli. — Flestir
þeir, sem eiga Biblíur, fengu þær
á fermingardaginn eða við svip-
uð tækifæri, eða 64%. Aðeins
9% keyptu Biblíurnar sínar sjálf-
ir. Það kom í Ijós, þegar athug-
unin var gerð, að tilkoma sjón-
varps á heimilin dró nokkuð úr
lestri orðsins. Þó horfa flestir
biblíulesarar á sjónvarp, en ekki
eins mikið og þeir, sem hafa lagt
Biblíuna á hilluna.
Ritningin á segulbandi.
Stofnaður hefur verið félags-
skapur í Bandaríkjunum, sem
hefur það markmið að dreifa
guðsorði meðal ólæsra manna
um allan heim. Hyggst félagið
framleiða svonefndar kassettur
með þýðingum úr Biblíunni og
veita kristniboðum kost á að fá
segulbandstæki ókeypis.
Guðsorð frá Hawai.
Billy Graham-stofnunin hefur
sótt um leyfi til að reisa stutt-
bylgjustöð á fjallstindi einum á
Mauya-eyju á Hawai. Á þetta að
verða milljón vatta sendir, sá
mesti sinnar tegundar í einka-
eign (ef leyfi fæst), og á að ná
til allrar Norður- og Suður-Amer-
íku og til fjarlægra Austurlanda.