Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1998, Blaðsíða 13

Bjarmi - 01.03.1998, Blaðsíða 13
Menn hafa frá alda öðli reynt að spá í fram- tíðina, hvað hún muni bera í skauti sér. Það fylgir því að vera maður að hafa áhyggjur af komandi tíð. Hér íyrrum höfðu menn engin vísindaleg áhöld til að spá fram í tímann, engin veðurtungl fylgdust með lægðum, engin tækni var til að stjóma vexti, engin tölvu- líkön, kannanir eða nein þekking á félags- legum lögmálum samfélagsins. í stað þess leituðu menn til spámanna og kvenna, spáðu í náttúruna, reyndu að lesa í hegðun dýra, innyfli, tungl og stjörnur, spil og kristalkúlur um óorðna hluti. í dag geta vísindin sagt okkur að spádóms- aðferðir fornra tima hafi verið eins og fálm í myrkri, byggðar á hermigaldri og ef til vill mest á innsæi þeirra er önnuðust spádóminn. Þannig er t.d. sagt að á hinu forna Grikklandi hafi hvergi verið að finna færari stjórnmálamenn heldur en einmitt véfréttina við Apollóhofið í Delfi.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.