Bjarmi - 01.03.1998, Side 16
Drottinn
tdk burtu
steinhjartað
Vitnisburður ura bænheyrslu
Drottinn hefur margoft sýnt okkur mönnunum hvernig
hann bænheyrir langt umfram það sem við höfum vit á að
biðja. Orð hans er lifandi og kröftugt, sem vekur þorsta og
svalar i senn. Ótalmargir gætu án efa vitnað um hvernig orð
Biblíunnar hafi orðið þeim til blessunar og hér fer á eftir frásögn
konu sem var fús til að láta Bjarma í té vitnisburð sinn um mátt
orðsins og bænheyrslu sem Guð veitti henni fyrir nokkrum árum.
Ég hafði um skeið gengið í gegn um mjög erfiðan tíma í lífi mínu og leið
mjög illa tilfinningalega. Ég var með einhvem erfiðan kökk fyrir bijóstinu
sem mér fannst vera eins og steinn í hjarta mínu. í einveru eitt kvöld
setti að mér sáran grát, sem kom frá þessum vondu tilflnningum, sem ég
gat engan veginn skilgreint. í huga minn komu orðin úr 36. kafla
Esekíels: „Og ég mun taka steinhjartað úr líkama yðar og gefa yður
hjarta af holdi." Og þetta urðu bænarorð mín til Guðs. Daginn eftir leitaði
ég til tveggja kristinna vinkvenna minna og bað þær að biðja fyrir mér og
með mér. Við áttum saman góða bænastund og mér leið nokkuð betur á
eftir en steinninn sat kyrr. Að kvöldi næsta dags gekk ég til kirkju til að
leita Drottins þar sem fleiri vom við bæn og kringumstæður vom þannig
að biðjendur gátu kropið við altarið til bæna, hver fyrir sig, ef þeir óskuðu
þess. Ég fann fyrir knýjandi þörf til að fara upp að altarinu og fór en stóð
fljótt upp aftur vegna þess að ég treysti þvi ekki að þessi tilfinning mín
væri sönn. Ég gekk því út að dyrum og fór í yfirhöfn mína en, nei,
Drottinn hafði ekki lokið erindi sínu við mig. Ég fór þvi úr kápunni aftur
og upp að altarinu og kraup og bað Drottin enn á ný að taka steinhjartað
úr bijósti mér. Eiginlega vissi ég ekki hvers ég átti að biðja og gaf allt í
Drottins hönd. Þá var það að þessi vondi kökkur hvarf gjörsamlega og
mér varð svo undarlega létt um hjartað að þar var ekki rúm fyrir neitt
nema lofgjörð.
Kökkurinn eða steinninn hefur aldrei komið aftur og ég trúi því að
Drottinn hafi þarna gert náðarverk á tilfinningum mínum og um leið
fjarlægt úr hjarta mínu hindmn sem þar stóð milli mín og hans.
inn muni farast árið 2000. Nýaldarsinnar
hafa lengi spáð nýrri öld Vatnsberans
árið 2000. Og þannig mætti lengi telja.
Samskonar hópar blómstmðu í kringum
árið 1000 á svipuðum forsendum og ollu
margir miklu uppnámi þá. En
heimsendir lét á sér standa því eins og
Jesús segir okkur: „En þann dag og
stund veit enginn, hvorki englar á himn-
um né sonurinn, enginn nema faðirinn
einn" (Matt. 24:36).
Spádómsorð spámanna Biblíunnar em
af öðmm toga en allra þeirra er hér hafa
verið bornir á borð. Þar er það Guð sem
talar til mannanna í gegnum spámenn
sína. Mennirnir eru ekki firrtir ábyrgð
heldur undirstrikar Guð ábyrgð þeirra.
Fólk, sem felur sig á bak við völvur,
stjörnuspeki, Nostradamus og aðrar
bábiljur firrir sig ábyrgð á gerðum sinum
og getur hæglega átt á hættu að missa
stjórn á lifi sínu. Kristin trú er aftur á
mót trú á manngildið, frelsið og styrk
þess Guðs er gefur okkur kjark og
heilagan anda sinn til að takast á við
okkur sjálf og heiminn. Til að vera
hermenn Guðs í heiminum. Og til að
sigra heiminn í hans nafni. „Þetta segir
hann, sem er amen, votturinn trúi og
sanni, upphaf sköpunar Guðs: Ég þekki
verkin þín, að þú ert hvorki kaldur né
heitur. Betur að þú værir kaldur eða
heitur. En af því að þú ert hálfvolgur og
hvorki heitur né kaldur mun ég skyrpa
þér út af munni mínum. ... Sjá, ég stend
við dyrnar og kný á. Ef einhver heyrir
raust mína og lýkur upp dyrunum, þá
mun ég fara inn til hans og neyta
kvöldverðar með honum og hann með
mér. Þann er sigrar mun ég láta sitja hjá
mér í hásæti mínu, eins og ég sjálfur
sigraði og settist hjá föður mínum í
hásæti hans“ (Op. 3:14-21).
Hvort velur þú?
Sr. Þórhallur Helmlsson er prestur í
Harfnarflarðarsókn.