Bjarmi - 01.03.1998, Qupperneq 23
EGYPTALAND
dUra wí©a w®[?®D(o]
Orð krossins í Kaíró
fbeldismenn létu að
sér kveða í Egypta-
landi á árinu, sem
leið, eins og fram
kom í heimsfrétt-
unum. Þetta hefur
haft þau áhrif að ferðamönnum til
landsins hefur fækkað um sinn. En
kristinn farandmaður nokkur, argentíski
prédikarinn Luis Palau, hefur ákveðið að
prédika um Jesú Krist í Kaíró í mars á
þessu ári. Palau er evangelískur boðberi
frelsarans og safnar að sér gífurlegum
fjölda fólks. Ef til vill má skipa honum á
bekk með Billy Graham.
Nú er óheimilt með öllu að halda
trúarlegar samkomur opinberlega í borg-
inni. Allt slíkt skal fara fram á
tilbeiðslustöðum. Kirkja sú í Kaíró, sem
skipuleggur heimsóknina, nefnist
Evangelíska kirkjan Kasr el-Debóra. Um
fjögur þúsund manns koma daglega í
Kasr el-Debóra. Hún er orðin stærsta
evangelíska kirkjan í Austurlöndum nær.
Það verður áreiðanlega þröngt á þingi á
þessum fjórum samkomum prédikarans í
kirkjunni. Ekki verður unnt að kalla fólk
fram til fyrirbænar heldur ætlar
safnaðarfólkið að standa með fram veggj-
unum og reyna þar að leiðbeina vinum
sínum til Krists.
Kasr el-Debóra hefur starfað í 50 ár og
heitir presturinn Menes Abdúl Noor.
Múslímar eru mjög margir í Kaíró. Sagt
er að þessi kirkja hafl aflað sér fylgjenda
með því að boða fagnaðarerindið „í
réttum anda“. Þeir tala vinsamlega um
aðra hópa enda hafa þeir náð eyrum
fólks úr alls konar jarðvegi. í tvo áratugi
sendi kristilega útvarpsstöðin Trans
World Radio á öldum ljósvakans um
Egyptaland og Mið-Austurlöndum 15
mínútna þætti sem Abdúl Noor sá um.
Útvarpsstöðinni bárust iðulega 7000-
10000 bréf í viku hverri frá hlustendum.
Nú geta sjónvarpsnotendur í öllum
Arabalöndunum séð hann í þáttum sem
sendir er um gervihnöttinn SAT-7.
Abdúl Noor er þeirrar skoðunar að nú
sé lag að flytja fagnaðarerindið í Mið-
Austurlöndum. Ýmislegt þykir benda til
þess að hann kunni að hafa rétt fyrir sér.
Margir eru fúsir til að ræða um trúmál.
Starfsmenn Biblíufélagsins í Egyptalandi
segja að eftirspurn eftir Biblíum og
kristilegum ritum hafi vaxið gífurlega
undanfarin ár. Alþjóðlega bókasýningin,
sem haldin er árlega í Kairó, er sú næst-
stærsta sinnar tegundar sem um getur.
Þar gefst kristnum útgefendum einstakt
tækifæri til að kynna fyrir almenningi
það sem þeir hafa á boðstólum. Á þriggja
vikna tímabili á liðnu ári seldust 30 þús-
und eintök af myndbandinu „Jesús".
Hin forna rétttúnaðarkirkja skiptist í
fimm deildir og þykir sú koptiska eða
egypska vera fastheldnari en hinar varð-
andi heilaga ritningu. Auðvelt er að dreifa
Biblíunni meðal kopta. Biblíufélagið reynir
eftir megni að fullnægja eftirspum bæði á
ritum og myndböndum. Margir koptar
gætu hugsað sér að Luis Palau kæmi líka
til þeirra. Nú er íjölmennasta koptakirkj-
an meðal fátæklinga sem lifa á því að
selja skran úr öskuhaugum Kaíróborgar.
Faðir Saman hefur safnað þar þúsundum
manna og flutt þeim boðskapinn um Jesú
Krist.
Þegar Billy Graham prédikaði í „heims-
átaki" sínu árið 1995 tóku safnaðarmenn
í Kasr el-Debóra samkomurnar upp á
myndbönd og komu þeim á framfæri í
340 kirkjum í Egyptalandi. Á meðal
þeirra voru kirkjur kaþólskra og kopta.
Við þetta fjölgaði áhorfendum Billy
Grahams í Egyptalandi um 100 þúsund.
Menn vonast til að geta beitt sama vinnu-
lagi þegar Palau kemur til landsins.
Maher Fouad er framkvæmdastjóri í
samtökum presta í Arabalöndum. Hann
gerir sér vonir um að koma Palaus til
Kaíró gæti, ef vel tekst til, orðið til að
opna fagnaðarerindinu dyr meðal ann-
arra múslímaþjóða. Ýmis samtök leitast
við að hjálpa söfnuðum í múslímaríkjum,
m.a. með þvi að útvega þeim heilaga ritn-
ingu og aðrar kristilegar bækur, með þvi
að þjálfa leiðtoga, efla bænalíf o.s.frv.
Þessi samtök leggja jafnframt áherslu á
nauðsyn þess að beðið sé fyrir þessum
söfnuðum. Þeim eru viðast hvar settar
afar þröngar skorður. Kristnir menn á
íslandi ættu að taka þátt í því bæna-
starfl.