Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.1998, Blaðsíða 5

Bjarmi - 01.07.1998, Blaðsíða 5
Björn Bjarnason menntamálaráðherra. • kynnist sögu kristinnar kirkju almennt og hérlendis og hlut hennar í mótun vestrænnar og íslenskrar menningar, • þekki þann siðgæðisgrunn sem grunn- skólinn byggir á, öðlist fæmi í að fást við siðræn viðfangsefni í ljósi hans og temji sér samskiptareglur sem leiða af honum, • kynnist öðrum trúarbrögðum sem grundvelli gilda og lífsviðhorfa og tileinki sér umburðarlyndi og virðingu íyrir rétti manna." Stundum heyrast þær raddir að opinber skóli eigi ekki að kenna kristin fræði. Hver er skoðun þín á því? Ég er þeirrar skoðunar að kristin fræði beri að kenna í öllum skólum. Hvað sem trúarlegum viðhorfum líður, og geri ég alls ekki lítið úr þeim, er sá maður ómenntaður sem ekki fær tækifæri til að kynnast kristinni trú og þeirri miklu arfleifð á öllum sviðum sem henni tengist. Sumir telja að einungis beri að kenna almenn trúarbragðafræði í skólum landsins. Eru einhver rökfyrir þeirri sérstöðu sem kristinfræðifá í samanburði við kennslu um önnur trúarbrögð? Kristin trú er svo samofrn sögu okkar íslendinga að það er óhjákvæmilegt að hún hafl sérstöðu í íslenskum skólum. Þá eru frumþættir siðferðisboðskaps kristinnar trúar forsendur fyrir þeim meginatriðum sem einkenna íslenska stjórnarhætti. Loks er hið trúarlega inntak kristninnar hið besta vegamesti sem unnt er að gefa hverjum og einum við upphaf lífsgöngunnar. Hvert er gildi kennslu í kristnumfræðum í grunnskólum landsins að þínu áliti? Með því að kenna ungu fólki inntak hins kristna boðskaps er verið að veita þvi trausta fótfestu sem endist alla ævina. í markmiðsgrein grunnskólalaga segir að starfshættir skólans skuli m.a. mótast af kristilegu siðgæði. Hvað merkið það? Eru þetta einungis fögur orð eða verður þessu markmiði fylgt eftir í nýrri aðalnámskrá? Nei, þetta em ekki einungis fögur orð. Ég hef hér áður birt þann kaíla úr áliti forvinnuhópsins um kristinfræði sem Ég er peirrar skoðunar að kristin fræði beri að kenna í öllum skólum. Hvað sem trúarlegum viðhorfum líður, og geri ég alls ekki lítið úr peim, er sá maður ómenntaður sem ekki fær tækifæri til að kynnast kristinni trú og peirri miklu arfleifð á öllum

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.