Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.1998, Blaðsíða 30

Bjarmi - 01.07.1998, Blaðsíða 30
Dr. Sigurbjörn Einarsson svarar spurningunni: Hvað á Jakob við þegar hann segir: „Þér biðjið og öðlist ekki af því að þér biðjið illa“ (Jak.4:3)? Hvað er að biðja illa? Svar: Hér þarf að gefa gaum að samhengi. Orð Biblíunnar eru oft hrifsuð úr sambandi. Slíkur biblíu- lestur er viðsjárverður og getur leitt til vondrar mistúlkunar. Þessi um- mæli Jakobs eru hluti af þungri ádrepu. Hann er að afhjúpa rótar- mein í mannlegu eðli og gerir það vægðarlaust. Hann er að tala við kristna menn, en þeir eru bm á sýktum stofni mannkyns, sömu grunnhneigðir eru í öllum mönnum, sömu rætur þeirra meina, sem spilla lífinu, sýkja samlíf manna, hvort sem er á heimilum, í þjóðlífl, í félögum - já, kristnum söfnuðum og félögum. Það er t.d. ekki alltaf „dýrleg dvöl í Drottins bræðrasveif', því hold og heimur, blinda fallins manns, á sin ítök líka þar. Jakob er ómyrkur í máli. Hann minnir á bróður sinn, sjálfan Jesú, þegar hann sveiflaði svipu í helgidóminum. Meðal annars, sem Jakob hirtir, er þetta: Menn biðja illa. Þá er hann ekki að tala um neina tækni, hann er ekki að víta menn fyrir að hafa ekki tileinkað sér einhveija útsmogna list eða brögð, ellegar sérlegan hávaða, til þess að ná taki á Guði (og mönnum) og þvinga svo vilja sinn fram og verða alvaldir „gúrúar" í sínum hópi. Slíkt er heiðin guðlöstun í óhijálegri mynd, en ekki víðsfjarri ýmsum tilburðum, sem hafðir eru í frammi sums staðar í nafni Krists. í guðspjöllum eru skráðar nokkrar bænir manna, sem leituðu til Jesú og fengu áþreifanlega bænheyrslu. Þær bænir eru ekki afrek í mælsku né neinni list, heldur áköll í neyð. Og minna á það, sem Jesús lagði svo þunga áherslu á: Örbirgð syndugs manns er sú, að hann þekkir ekki neyð sina, hann þykist heilbrigður, þarf ekki lækni (Mark. 2,17). Ytri áföll verða oft til þess að opna augun, hinir „týndu“ láta finna sig. Jesús gerði ógleymanlega mynd af manni, sem bað illa (Lúk. 18,9-14). Fariseinn í musterinu talaði við sjálfan sig um sjálfan sig og smjattaði á gómgætinu í sjálfum sér. Annar var í musterinu í sama sinn, sem bað vel. Hvernig það? Hann talaði við Guð í alvöru. Og gat ekki sagt annað við hann en það eitt, sem dauðvona maður getur komið yfir varir sínar, þegar einhver nálgast, sem er fær um að bjarga. Þar með er vitaskuld ekki sagt, að það sé rangt að eyða íleiri orðum á Guð í bænum sínum. Bæn Jesú í Jóh. 17 er m.a. til vitnis í því efni. Bæði hann og Jakob minna á þá grundvallarafstöðu, þá innstu tilfinningu fýrir Guði, sem sker úr um það, hvort bæn er sönn. Hún er sönn, þegar Guð er alvara, raunvera, allt. Það er Jakob að segja. Eins og aðrir í Biblíunni. Öll synd, öll bölvun i hjarta og heimi stafar af þvi, að Guð er ekki alvara í huga manns. Hver sem tekur hann alvarlega, sá talar við hann í alvöru, hlustar á hann í alvöru, tekur í alvöru tillit til þess, að heilög ástaraugu hans hvíla á honum og lesa hugsanir hjartans, að Guð lifir allt, sem syndugur hugur, hönd og tunga manns skila af sér inn í eigin sál og tímans heim og eilífan heim. Þetta býr að baki orðanna hjá Jakob. „Þér biðjið ekki“, segir hann. Það er: Þér látið sem Guð sé ekki til, gerið nafn hans, veru hans að hégóma (sbr.2. boðorðið). Og hvemig má þá annað vera en að það sem kallast bæn verði afskræmi, eigingjarnar óskir, blindar kröfur, dautt orðskrúð eða sykrað lap? Sigurbjörn E'marsson

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.