Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.07.1998, Side 27

Bjarmi - 01.07.1998, Side 27
Er allt gull sem glóir? Viðtcd við Arne Tord Sveinall nm nýtrúarhreyfingar Sérhver kristín kirkja eða trúar- samfélag á að vinna að kristni- boði. Og hvort sem um er að ræða heimatrúboð eða kristn- boð ytra þarf kristniboðinn og samfélagið að hafa þekkingu á þvi fólki sem starfað er meðal. Því tel ég að það sé mikilvægt og nytsamlegt að hafa þekkingu á þessum nýtrúarhreyflngum. Fyrst og fremst er mikilvægt að vita hveiju við sjálf trúum en einnig er gagn af því að vita hveiju aðrir trúa. Þetta segir Arne Tord Sveinall frá Noregi en hann var hér á landi dagana 15.-22. mars síðastliðinn í boði Biblíu- skólans við Holtaveg. Námskeið voru í Reykjavík, á Akranesi og Akureyri þar sem hann kenndi um nýaldarhyggju og trúaröfgahópa og hvernig við getum þekkt þá og varast. Einnig var til um- ræðu hvernig við sem kristin getum hjálpað þeim sem hafa brennt sig á villutrú og kukli en vilja losna. Góð þátttaka var á öllum námskeið- unum og kennsla Sveinalls skýr og einföld. Tíðindamaður Bjarma tók Norðmann- inn tali í sófakrók á Akureyri og bað hann fyrst að segja frá Modum Bad í Buskerud skammt frá Osló þar sem hann starfar og þeirri starfsemi sem þar fer fram. Við getum sagt að Modum Bad sé tvennt: Geðsjúkrahús með rými fyrir um 100 sjúklinga þar sem tekist er á við léttari geðtruflanir s.s. þunglyndi, taugatruflanir, ótta, anorexiu, búlemíu og einnig fjölskylduvandamál á sér- stakri fjölskyldudeild. Fimmhundruð metra frá sjúkrahúsinu er svo sálgæslu- stofnunin (Institutt for sjelesorg) sem ég starfa við. Þangað kemur fólk ýmist á námskeið eða til að stunda sjáfsnám. Sumir koma einnig til að ræða við sérfræðinga um eitthvað í lífinu sem er snúið og erfitt. Sumir eru útslitnir, aðrir glíma við sorg, einmannaleika, trúar- legan vanda eða deilur. Þ.e.a.s. að fólk kemur ekki til okkar og býr í eina til þrjár vikur vegna þess að það á við geðræn vandamál að striða heldur vegna hinna ýmsu vandamála lífsins sem við öll glímum við. Meðal þessa fólks eru nú fleiri og fleiri sem hafa lent í vanda í tenglsum við alls konar sértrúarhópa eða nýaldarhreyflngar. Hvert er þitt starf á sálgæslustofnun- inni? Nú leysi ég af sem stjómandi stofnun- arinnar þar sem sá sem hefur þá stöðu er að ljúka doktorsnámi. Annars er ég lektor við stofnunina sem felur í sér kennslu og samtöl við fólk. Auk þess gefum við út tímarit sem ég ritstýri: Tidsskrift for sjelesorg. íslandsferð Hvers vegna kemur þú nú til íslands? Ástæðu þess má rekja til þess tíma sem ég var lektor á Diakoniháskólanum í Osló. Eitt árið var íslenskur náms- maður þar. Hann spurði mig hvort ég gæti ekki komið til íslands einhvern- tíma? Ég sagði að það væri sjálfsagt, það væri bara að spyija. Svo leið nú það árið og við misstum sambandið. í haust datt mér í hug að e.t.v. væri ástæða til að kanna áhuga hans á því að gera eitt- hvað í málinu og hafði samband við hann. Hann hafði svo samband við ykkur í Biblíuskólanum og nú er ég hingað kominn. Og mér finnst það mjög spennandi. En þú ert ekki hérfyrst ogfremst til að kenna um sálgæslu? Bæði já og nei. Fýrst og ffemst er það nýaldarhyggjan og hvemig við tökumst á við hana, sem ég er að kenna, en það U ú Þorgeir Ljósvetningagoði kastaði húsguðum sínum í Goðafoss fyrir þúsund árum. En höfum við kastað hjátrúnni og villunni, við sem lifum á lokaspretti 20. aldar? Því reyndi Arne Tord Sveinall að svara á námskeiðunum. Hér er hanj (t.v.) með túlki sínum, Friöriki Hilmarssyn ann (t.v f

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.