Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1953, Side 5

Heima er bezt - 01.06.1953, Side 5
Nr. 6 Heima er bezt 165 þeir í störfum og mannraunum, báru sig látlaust og æðruðust ekki, þótt þeir yrðu fyrir tjóni. Voru í fáum orðum sagt þrek- mikil ktrlm'enni. í huga mínum í íyiista samræmi viö byggöar- lag sitt, náttúru þess og veður- far. Úr garðinum gengum við í kirkj una. Kirkjan hér í Sauðlauksdal er einhver hin veglegasta sveita- kirkja hér á landi, bæði að stærð og svipfegurð. í henni er for- kunnar fögur altaristafla frá of- anverðri 19. öld, sem á þeirri tíð var ein hin fegursta á landinu. Okkur langaði til að ná myndum úr innbyggingu kirkj- unnar, en þess var enginn kost- ur fyrir hinum mörgu bitum, sem í henni eru. Þó tókst okk- ur með miklu erfiði að ná góðri mynd af altaristöflunni. Urð- um að hlaða undir vélina skemlum og sálmabókum, og var prestur okkur hinn ailra hjálpsamasti við það. Hafði aldrei náðst góð mynd af henni, sagði hann. Hvergi hef ég komið í sveita- kirkju og kirkjugarð, sem ég hef séð aðra eins frábæra hjrðu- semi og hreinlæti, bæði í garði og kirkju, sem hér. Garðurinn var, eins og áður er sagt, prýðisvel hirtur og engu síður kirkjan hrein og fáguð. Var mér það mikið gleðiefni. Ég ætla að geta þess hér til samanburðar, að fyrir nokkrum árum kom ég í sveitakirkju, einnig á Vesturlandi. Þegar ég opnaði kirkjudyrnar rak mig í rogastans. Á gólfi kirkjunnar og gluggum, sýndist mér vera einn flekkur af stórum, svört- um krækiberjum, eins og helt hefði verið úr pokum, og því dreift um allt gólfið. En þegar ég fór að athuga þetta betur fylltist ég megnasta viðbjóði. Þetta voru allt stórar, dauðar og hálfdauðar maðkaflugur. Og kirkjugarðurinn var þarna í slíku ástandi, að nálega hvergi markaði fyrir leiði í honum. Einn legsteinn var í garði þessum. Það var nýtízku steinn í tvennu lagi, áletraður. Fót steinninn var á sínum stað, en hinn hafði fallið niður og lá á grúfu fyrir utan leiðið, og varð ég með erfiðismunum að velta honum við til þess að sjá letrið. Þegar út kom úr kirkjunni fórum við á ýmsa staði þarna á túninu til þess aö na sem bezt- um myndum. Svo var sezt að kaffidrykkju í stofu, og tókust nú skemmti- legar samræður. En þessi á- nægjustund varð skjótt að taka enda, því að tíminn leið, og hann var dýrmætur í dag. Við urð- um því brátt að kveðja hin á- gætu prestshjón og halda til baka. En áður en ég skilst við Sauðlauksdal, ætla ég að dvelja, mér sjálfum til gamans, dálítið lengur við þann stað og segja nokkuð um presta þá, sem í seinni tíð hafa setið þar og gert garðinn frægan. Fer ég þar eftir umtali um þá, er ég heyrði í æsku, að sumu leyti eftir Prestaævum Sighv. Grímssonar Borgfirðings, en tveimur þeirra kynntist ég sjálfur persónulega. II. Sauðlauksdalur er eitt þeirra höfuðbóla hér á landi, sem byggðarbúar hafa frá gamalli tíð litið upp til með einskon- ar lotningu. Þótt staður þessi sé engin sérstök kosta- eða hlunnindajörð, fram yfir nokkr- ar aðrar jarðir þarna í hreppn- um, hafa þar setið margir góð- ir, nýtir og efnaðir klerkar, sem notið hafa virðingar og trausts safnaða sinna. Landslagið í Sauðlauksdal er alls ekki tilkomumikið. Frá bænum er mjög lítið útsýni, því að neðri hluti dalsins er lokaður af fjallsöxl, sem gengur út úr hálsinum að norðan, rétt fyrir neðan túnið, og þar með er lokað útsýni að mestu yfir fjörðinn og til fjallanna hinum megin fjarðarins. Framdalurinn er líka lokaður frá bænum af leiti fyrir fram- an bæinn. Hinum megin dalsins, að austan, á móti bænum, er hátt fjall, fremur skuggalegt. Dálítið stöðuvatn er þarna undir fjallinu, sem nokkur prýði er að, en þó virtist mér oftast liggja á því skuggi fjalls- ins, frá bænum að sjá. En þó að í Sauðlauksdal sé ekki tilkomumikið landslag eða vítt útsýni, hefur hann þó í sér fólgið eitthvert sérstakt yndi. Það er eins og hér andi á móti manni úr ölium áttum fcros, hlýja og friður. Þetta er, að mér finnst, alveg sérstakt fyrir þennan stað. Og þennan and- lega skyldleika — ef ég mætti svo segja — hef ég aðeins fund- ið á tveim öðrum stöðum hér á landi, þar sem ég hef komið, Hafnarfirði — þar var ég eitt vor fyrir aldamót — og Hreða- vatni. Þó er landslag mjög frá- brugðið á öllum þessum stöðum. Þá er að minnast á nokkra þá klerka, sem í Sauðlauksdal hafa setið nú í seinni tíð. eða uppundir 200 ár aftur í tímann, frá og með tíð séra Björns Hall- dórssonar. Um séra Björn mun það sann- ast, að hann var einhver hinn mesti gáfu- og starfsmaður sinnar tíðar, sem bæði var mik- ill afkastamaður með höndum og huga. Hann var með lífi og sál jarðræktarmaður; þó var það aðallega garðrækt. sem hann varð frægur fyrir. Hér í Sauðlauksdal lét hann gera 3 eða 4 stóra matjurta- garða, og ræktaði þar allskonar kálmeti. Og kartöflur ræktaði hann fyrstur manna hér á landi, 1759. Auk allskonar kálmetis og kartafla reyndi hann að rækta margskonar jurtir, sem aldrei hafði áður verið reynt hér á landi. Jafnvel er sagt, að hann hafi reynt að rækta tóbaksjurt, sem þó mistókst. Auk starfsemi séra Björns, sem garðyrkj umanns, var hann afkastamikill rithöfundur og skáld gott, á þeirrar tíðar mæli- kvarða. Ritaði hann 3 merkar bækur um búnað, búsýslu og jarðrækt, sem eru: Atli, nokk- urskonar búnaðarrit, Arnbjörg, aðallega um búsýslu, og Gras- nytjar. Allt eru þetta nytsemdar rit, og mjög þörf á sinni tíð. Auk þess hafði hann með höndum samningu íslenzkrar orðabók- ar með latneskum þýðingum. Eitt af því, meðal annars, sem séra Björn gerði sér mikið far um að útrýma á sinni tíð, var hjátrú og ýmis hindurvitni.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.