Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1953, Qupperneq 9

Heima er bezt - 01.06.1953, Qupperneq 9
Nr. 6 Heíma er bezt 169 skipti við Sigfús. Þótt ég væri ekki nema tólf ára, hlýddi ég með athygli á tal manna og dóma þeirra og álit á hestunum. Skyndilega sneri einn viðstaddra sér að mér og spurði: „Hvern folann mundir þú velja, ef þú ætlaðir að fá þér hest eða hest- efni?“ Spurningin kom mér mjög að óvörum, því að ég hafði ekki vænzt þess, að nokkur mað- ur færi að ræða við mig, strák- pattann, um hestana, enda hef- ur hún vafalaust verið borin fram í skopi. En ég lét þó ekki standa á svarinu: „Þennan brúnskjótta,“ sagði ég og benti á ljóta folann. „Skelfing ertu nú heimskur, greyið mitt. Það leyn- ir sér ekki, að aldrei verður þú hestamaður. Þetta er langljót- asti folinn, og ég er sannfærður um, að enginn lifandi maður kaupir hann, því að hann verð- ur aldrei nýtur til neins.“ Ég lét mig þetta einu gilda, enda þótt ég heyrði, að þetta var sameig- inlegt álit allra viðstaddra, nema hvað eigandinn hefur ef til vill hugsað annað, þótt hann væri fáorður, sem hestasölumanni ber að vera. — Var svo ekki fleira um þetta rætt að sinni, svo að ég muni. Nokkrum dögum síðar flaug sú fregn um sveitina, að Jónas í Skógum hefði keypt ljóta fol- ann brúnskjótta. Þá stóð ekki á dómum manna um þetta tiltæki hans. „Alltaf er Jónas jafnvit- laus,“ heyrði ég menn segja. Var þó ekki beinlínis átt við það, að Jónas væri svo heimskur, heldur hitt, að hann tók ekki ráðum annarra og fór sínu fram, hvað sem aðrir sögðu. Ég var því mið- ur ekki viðstaddur, þegar Jónas keypti folann. En ég þykist þess fullviss, að mikið hefur verið reynt til að fá hann ofan af þeirri vitleysu að kaupa þennan fola fremur en einhvern annan álitlegri, því að hinir eldri og reyndari menn nota jafnan hvert tækifæri, sem gefst, til þess að leiðbeina þeim ungu og óreyndu. Er það í sjálfu sér virð- ingarvert, en kemur bara ekki ætíð að því gagni, sem til er ætlazt. — Mig minnir þó, að ég heyrði, að húsbóndi Jónasar, Gunnar Árnason, hefði ekki latt hann til kaupanna og sagt, að ekki væri fyrir það að synja, að efni gæti leynzt í folanum. Er þetta trúlegt mjög, því að Gunn- ar var bráðglöggur maður í hverri grein. En hvað sem þessu líður, lét Jónas sig það engu skipta, hvað aðrir sögðu um þetta mál, og keypti folann. Mun verðið háfa verið afarlágt. Hver var hann, þessi ein- kennilegi maður, Jónas í Skóg- um? — Hann var fæddur i Bakkakoti í Keldukerfi 6. sept- ember 1884. Hann var sonur Kristjáns Guðmundssonar,bónda þar, og Ingibjargar Vigfúsdótt- ur, seinni konu hans. Þau voru bæði Suður-Þingeyingar að ætt. Ingibjörg var frá Valadal á Tjörnesi, en Kristján var sonur Guðmundar Stefánssonar, frá Sílalæk í Aðaldal, og því hálf- bróðir hins annálaða búmanns, Þorkels á Fjalli. Önnur hálf- systkini Kristjáns voru t. d. Jó- hannes í Saltvík og Sigurbjörg, móðir þjóðskáldsins Guðmund- ar á Sandi. Voru öll börn Guð- mundar talin gáfuð og merk, nema Kristján. Um hann hef ég skrifað sérstakan þátt, og mætti þó margt fleira um hann segja. Kristján var maður blásnauð- ur og orðinn gamall og heilsu- laus. Átti Jónas svo illt fyrstu misserin, að hann bar þess minjar ævilagt. Þegar hann var þriggja missira andaðist faðir hans, og var búið þá leyst upp. Hin mætu hjón, Árni Björnsson og Rannveig Gunnarsdóttir á Bakka tóku Jónas þá í fóstur og hjarnaði hann þá furðu fljótt við. Þó hafði hann aldrei mikl- um manni að má, en reyndist samt iðinn og trúr, þegar hann gat farið að vinna. Snemma bar á þvi, að hann var nokkuð ein- kennilegur og sérlundaður og fór sínar eigin leiðir, hvað sem aðr- ir sögðu, en var þó alltaf hús- bóndahollur. Það þótti t. d. ein- kennilegt tiltæki hjá honum, er honn tók upp á því að skrifa inn í bók öll þau ljóð, er hann komst yfir og honum þóttu einhvers verð. Sá ég þessa ljóðabók eitt sinn hjá honum og undraðist iðni hans og úthald við þetta tómstundastarf. Þarna var sam- ankominn mesti sægur af alls konar kvæðum, bæði prentuðum og óprentuðum. Jónas var maður gæflyndur og góðlyndur, en gat verið dálítið spaugilegur stundum. Ef hann heyrði eða sá eitthvað verulega skoplegt, var hann vís til að reka skyndilega upp mikinn og sér- kennilegan hlátur. Sá, sem einu sinni heyrði hlátur hans, gleymdi honum aldrei. Jónas var hjá fósturforeldrum sínum á meðan þau voru við bú- skap. En um aldamótin hættu þau búskapnum og fluttust að Skógum í Öxarfirði til sonar síns, Gunnars Árnasonar, sem þá var nýkvæntur og farinn að búa þar. Fylgdi Jónas fósturforeldrum sínum þangað og var vinnumað- ur hjá Gunnari allt til vorsins 1914. Eftir það vann hann sem lausamaður á ýmsum stöðum í Þingeyjarsýslu, unz hann flutt- ist alfarinn á burt 1925, eða þar um bil. Verður lítils háttar sagt frá því síðar. Nú skal að því vikið, er fyrr var frá horfið, að Jónas keypti brúnskjótta, horaða og ljóta fol- ann vorið 1908. Þar sem folinn var aðeins fjögra vetra, lítill og gjörsamlega kraftalaus, kom vitanlega ekki til mála, að hann yrði snertur fyrsta sumarið. — En veturinn eftir tók Jónas fol- ann í eldi og byrjaði þá jafn- framt að teyma hann og hreyfa á ýmsa lund. Furðaði alla, er til þekktu, á því, hvað hann hand- lék folann af mikilli nákvæmni og leikni, því að áður hafði hann ekki fengizt við hestatamningu. En lítið eða ekkert mun hann hafa komið folanum á bak þennan vetur. Um vorið hafði hann stækkað mikið og fríkkað frá því vorinu áður, svo að auð- séð var, að brátt var hægt að fara að koma honum á fcak. — Sumarið 1909 byrjaði Jónas á tamningunni fyrir alvöru, en fór þó að öllu varlega og vildi gjarn- an vera laus við hnýsni þeirra, sem þóttust vilja fylgjast með tamningunni. Veturinn eftir var snjóavetur afar þungur, svo að ekki var hægt að þjálfa og temja hesta neitt að ráði, því að kafhlaup var lengst af á milli bæja og hvergi reiðfæri. Stöku sinnum kom þó Jónas á bak Skjóna, og duldist þá ekki, að hann var bú- inn að fá krafta í köggla, því að

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.