Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1953, Side 11

Heima er bezt - 01.06.1953, Side 11
Nr. 6 Heima er bezt 171 móðurinnar og varast ill viðskot hinna vandalausu. Hafi ærin aftur á móti verið tvílembd, er hún gjarnan látin sér í stíu- spil og þá lifir hún í ríki útaf fyrir sig, sjálfstæðu og friðsömu lífi. Lömbin hvíla í ró eða hafa það sér til skemmtunar að biorfa á nágrannabörnin í gegnum rimlana á spilgrindinni og ærin, móðir þeirra, nasar af stöllu sinni í næsta spili og sýnir henni máske hornin yfir spilið í kunningjalegum hálfkæringi. Svo líður nóttin í værð og ör- yggi og að morgni hefst nýr þáttur. — Þegar lambféð er látið út morguninn eftir, eru nýbornu lömbin stirðleg í göngulagi og hálf aulaleg í háttum til að byrja með, þau missa af móður sinni í kindaþvögunni og jarma aumkunnarlega, þau eru ekki fær um að vera í solli og harð- ræðum þennan daginn og því er reynt að hafa þau sér ásamt móður þeirra, en ekki með þeim kindum, sem lengst eru reknar í hagann. Eldri lömbin fagna frelsinu úti á víðum vangi, þeim þykir gott að komast úr dimm- unni, þrengslunum og lognmoll- unni í húsunum út í birtuna og blæinn, þau takast á loft, hlaupa, stökkva og hendast á ýmsum endum og láta löngunina eftir leikjum og ærslum ráða yfir hlýðninni við mæðurnar. Slíkt er svo oft háttur bernskunnar. Lömbin leika sér mörg saman og stundum virðist svo sem þau iðki reglubundnar íþróttaæf- ingar, þau raða sér saman og hlaupa af stað, því nær í sömu andrá og nema tíðum staðar við einn og sama punktinn svo að segja — og auðséð er á viljanum og orkunni, sem lögð er í hlaup- in, að um keppni er að ræða. Sérhver athugull maður, sem virt hefur þennan leikþátt lífs- ins fyrir sér, hlýtur að hafa fundið þetta; vísast er þetta til- viljun ein, en einkennilegt er það samt. Þegar lömbin eru orðin móð og þyrst af hlaupun- um, taka þau að hugsa til mæðra sinna, en stundum kann að verða leit úr þeim, því að þær hafa fyrir löngu dreift sér um hag- ann til þess að afla sér næring- ar. Ærslabelgirnir kalla í sífellu og stundum fá þeir svar, sem vísar þeim leið, en oftast verða þeir að finna sitt athvarf án þess. En þegar móðurskjólinu hefur verið náð, er heilsudrykk- urinn, — mjólkin úr júgri ærinn- ar, teygaður af krafti og ríkri nautn. Þannig líður dagurinn fyrir ungviðinu. Hann skiptist. á milli leikja, hvíldar og leitar að næringu af gróðri jarðar, eftir að því aldursstigi hefur verið náð, að löngun og þörf eftir slíku sé vöknuð. Ærnar bregðast mjög misjafnlega við ærslum lamba sinna, sumar skeyta ekkert um gjálífi þeirra og gáska, heldur gefa sig allar við beitinni; þær virðast vilja fylgja þeirri upp- eldisaðferð að láta ungviðið bera ábyrgð á eigin gjörðum og reka sig á, ef of geyst er farið. Aðrar eru árvakrar og umhyggjusamar, sívakandi yfir lömbum sínum og síhræddar um, að þeim verði eitthvað að grandi. Þær elta þau jarmandi og órólegar og reyna að ná þeim á sitt vald og draga þau út úr sollinum; þær fá ekki notið sín, fyrr en þær hafa unn- ið slíkan sigur. Enn aðrar hafa lag á að draga sig í hlé með lömbin, áður en þau glepjast af glaumnum. Svona er einstakl- ingunum ólíkt farið, en raunar eru allar mæður innbyrðis tengdar og öll börn fædd undir sama lögmáli í frumatriðum. Ef lambféð er ekki í girðingu, kostar tíðum mikil hlaup og marga svitadropa að smala því saman og koma því í hús að kvöldinu. Ærnar eru dreifðar um hagann, ein og ein eða fáeinar í hóp, um lautir og leiti, grundir og hlíðar; einkum sækja þær mjög til fjallsins og elta gróðurinn eftir því, sem hann lifnar. Þeim líkar vel að vera frjálsar úti í náttúrunni við ríkulegt mat- borð móður jarðar og kæra sig lítt um húsvist, skerðingu frjáls- ræðis og skömmtun húsbóndans. Þær líta því smalana ekki neitt hýru auga og leggja sig ekkert fram um að vera þeim að skapi;

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.