Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1953, Side 16

Heima er bezt - 01.06.1953, Side 16
176 Heima er bezt Nr. 6 „Krumminn á skjánum —” Um hrafninn og lyndiseinkenni hans EFTIR GUÐMUND DAVÍÐSSON Hver maður á íslandi, sem kominn er til vits og ára, kann- ast við hrafninn. Hann er venju- lega fyrsti fuglinn, sem börn og unglingar læra að þekkja. Kem- ur það til af því, að krummi heldur sig að jafnaði nálægt bæjum og bústöðum manna ár- ið um í kring. Hann er fyrsti fuglinn, sem nefndur er hér á landi, í íslenzkum ritum. Um hann eru til fleiri sögur og vís- ur en nokkurn annan íslenzkan fugl. Krummavísur eru gamlir húsgangar, sem flest börn á landinu kunna og læra, jafnvel á undan „Faðirvori“. Til er erlend þjóðsögn um það, hvernig krummi varð svartur. Sagt er, að fasaninn hafi upp- haflega verið öskugrár á litinn. Hann bað því krumma að mála fjaðrir sínar með fögrum litum. Krummi var fús til þess og mál- aði fasaninn með fjölbreyttum skrúðlitum. Þegar krummi var búinn að þessu bað hann fasan- inn að gera sér sömu skil. En hann neitaði ekki einungis krumma um þessa bón, heldur tók hann fullt blekílát og dembdi úr því yfir krumma. Síð- an hefur hann verið kolsvartur. Þó að krummi þyki ekki ætíð kærkominn gestur, á sumum heimilum, veigra menn sér jafn- an við að sýna honum beran fjandskap. Það hefur komizt inn í meðvitund manna, að sá, sem gerði honum mein, yrði fyrir ein- hverri ógæfu, og því hefur myndazt orðtækið: Guð borgar fyrir hrafninn. Er þá átt við það, hvort sem krumma er gert gott eða illt. Sagnir eru um það, að ógæfa sumra manna stafi af því, að þeir hafi einhverntíma sært eða drepið hrafn. Ríkis- bóndi nokkur, sem var góð skytta, hafði eitt sinn skotið hrafn, sem sat á kirkjubust páskadagsmorguninn. Upp frá því er sagt, að gæfan hafi snú- ið bakinu við bónda, svo að hann hafi orðið auðnulítill og dáið í fátækt. Hrafninn má telja meðal hinna merkilegustu villifugla á Norðurlöndum, og jafnvel víð- ar, sakir vitsmuna hans og hygginda. Víst er um það, að frá ómuna tíð hafa menn haft miklar mætur á honum og bor- ið meira traust til hans en nokk- urra annara fugla. Honum var skipaður virðulegur sess í trúar- brögðunum, sem engum öðrum fugli hlotnaðist. Óðinn er látinn hafa tvo hrafna á öxlum sér, Hugin og Munin. Þeir flugu að morgni dags um heim allan og komu heim að kveldi og sögðu Óðni markverðustu tíðindi, sem gerðust út um víða veröld. Hrafnar þessir gerðu Óðni sama gagn og sími eða útvarpstæki gera mönnum nú á dögum. Hrafnar voru einnig átrúnaðar- goð einstakra manna eins og t. d. Flóka Vil- gerðarsonar. Hann lét þá vísa sér leið til ís- lands.Þeir gerðu hon- um sama gagn og áttaviti og áttu góð- an þátt í því, að Flóki komst hingað heill á húfi. En óvíst er, að þeir hafi farið utan aftur með Flóka. Hitt er líklegra, að hrafn- arnir hafi getað bjargað sér sæmilega, þó að hart væri í ári og allar aðrar skepn- ur Flóka drepist úr hor. Fornmenn gerðu þannig hrafninn bæði að sendiboða hins æðsta guös Norður- landa og líka sjálfan að guði, með því að blóta hann og nota sem leiðarstjörnu í hafvillum. En hrafn- inum var einnig ann- að til lista lagt, sam- kvæmt þjóðtrúnni. Hann var lát- inn bera skyn á lækningar, boða víg og manndráp. Þegar Sig- mundur Völsungason hafði særðan Sinfjötla systurson sinn til ólífis, færði hrafn honum laufblað til að leggja við sárið. Það varð samstundis algróið og Sinfjötli stóð upp alheill. Austurlandaþjóðir báru einn- ig mikið traust til krumma og létu hann gegna ýmsum trún- aðarstörfum. Nói sleppti honum fyrstum dýra út úr örkinni. Var krumma falið að rannsaka, hvort jörðin væri orðin þur eftir syndaflóðið. íslenzk þjóðsaga segir, að krummi hafi ekki leyst þetta starf af hendi eins og til var ætlazt, því að hann kom ekki aftur til Nóa. En ástæðan var sú, að krummi fann á einum stað rekinn hval og fór að gæða sér á honum. Nokkru síðar kom Nói þar að, sem krummi var að

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.