Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1953, Síða 18

Heima er bezt - 01.06.1953, Síða 18
178 HeIma er bezt Nr. 6 og hann ætlaði að fara að halda ræðu. Hann fór að krunka í á- kafa svo sem hálfa mínútu. En hinir þögðu allir á meðan. Þegar hann hafði lokið ræðu sinni fóru allir hinir að masa, en aðeins litla stund. Síðan þögnuðu allir. Tók þá einn til máls og hélt stutta tölu. Þetta endurtók sig fimm sinnum. Flugu síðan allir í burtu, og urðu samferða, nema 4 drógust aftur úr. Krummarnir sáust ekki eftir þetta. Prófessor- inn dró þá ályktun, að þeir hefðu verið að koma sér saman um að fljúga á einhvern stað til sumar- dvalar, þar sem þeir hefðu betri afkomu. Bæjarhrafnarnir, eða heima- hrafnarnir, sem svo eru kallað- ir, hafa þann starfa að tína úr sorpi allt matarkyns, sem til- fellur á heimilinu. Eiga þeir þá oft í brösum við hundana. Sepp- ar sitja sig aldrei úr færi að reka krumma frá bænum, ef þeim þykir hann nærgöngull. En krummi gætir þess jafnan að fljúga aldrei nema spölkorn á undan seppa, til að stríða hon- um og teygja hann sem lengst frá bænum. í viðskiptum við seppa verður krummi jafnan drjúgari, þar sem þarf að beita viti og slægð. Eitt sinn lá hund- ur úti í hlaðvarpa og var að naga bein. Komu þá tveir hrafnar til að skyggnast eftir, hvað hann væri að éta. Seppi var ekki lengi að sleppa beininu og reka þá frá. Annar hrafninn lét seppa elta sig góðan spöl frá bænum, en á meðan náði hinn í beinið og flaug burtu með það. Hrafn kom einu sinni þangað, sem hænsn- um var gefið úti og ætlaði að hafa með þeim sameiginlega máltíð. Hænsnahópurinn varð smeykur og hypjaði sig inn í kofa sinn, nema haninn. Hann sá, hvert erindi krumma var og réðist þegar á hann bálvondur. Krummá varð snöggvast bylt við, en tók þó á móti. Eftir nokkrar sviptingar lét hann undan síga og flaug burtu, en haninn tilkynnti sigur sinn með hvellandi gali. Að þessu var ég sjónarvottur á Þingvöllum. Bæjarhrafnar eru mjög reglu- samir. Þeir fara snemma að sofa á kvöldin og eru komnir á flakk fyrir allar aldir á morgnana til að afla sér morgunverðar. Illa er þeim við aðkomuhrafna og flæma þá í burtu. Erlendur fuglafræðingur, sem mikið lagði sig eftir söng og kvaki fugla, sagði, að krummi hefði 27 mismunandi hljóð, og að rödd hans væri fjölbreyttari en flestra annara fugla. Hrafn- inn kann flugíþrótt, sem engir aðrir fuglar leika eftir. Hann getur snúið sér við í loftinu og látið bakið snúa niður sem snöggvast, meðan hann rennir sér áfram. Virðist hann vera í góðu skapi, þegar hann leikur þessa list. Líklega er þetta sama, sem sagt er um krumma, að hann „steypi klukkur“ í lofti og að þá sé hann að grípa loft- anda, og frá þeim fái hann vit sitt og vísdóm, en ekki úr nátt- úrusteinum, eins og sumir hjá- trúarfullir menn hafa haldið. Þá var því trúað um hrafninn, að hafi hann andkannaleg læti nálægt jörðu og sæki niður eins og kjói, og annað þesskonar, þá sé hann að varna frá jörðunni vondum öndum. Er skiljanlegt, að krummi vilji hafa ríki sitt í loftinu hreint af slíkum vágest- um. Einkennilegt uppátæki hjá krumma var það, þegar hann fór að verpa hér um árið á kirkju- turninum í Gaulverjabæ í Ár- nessýslu. Bæði hjónin tóku þátt í hreiðurgerðinni, og komu því fyrir, með mikilli fyrirhöfn, í einni kverkinni milli bustanna á turninum. Engin merki sáust til þess að hrafnarnir fældust klukknahljóminn, eða kirkju- fólkið. Krummi sat rólegur á eggjum sínum þó að messað væri. Haustið eftir rifu forkólf- ar safnaðarins hreiðrið niður. En krummar voru ekki af baki dottnir. Þeir byrjuðu á hreiður- gerðinni næsta vor, en það var jafnharðan rifið. Að lokum gáf- ust þeir upp. Sumir töldu, hvorki sóknarnefnd eða klerki, neinn sæmdarauka í því, að amast við krumma á þessum stað. Að þessu lýtur kvæðið „Hrafnsmóð- irin“ eftir Davíð Stefánsson. Þar stendur: „Og dauð á litlu börnunum sínum blæðandi hún lá kristinna ntanna kirkjuturni á. Við það gladdist klerkurinn, en glaðari þó liann varð, er skotmaðurinn hreytti hreiðrinu niðr í garð“. Eins og áður er sagt launar krummi það vel ef vikið er góðu að honum. Saga sú, sem hér fer á eftir, ber það með sér. Pétur Pétursson biskup segir frá því, að móðir sín hafi verið vön að gefa tveimur hröfnum mat. Undir eins og þeir sáu hana, eða hún kallaði „krumrni" komu þeir til hennar ofan af baðstofumæninum, þar sem þeir oft sátu, og fóru að éta matinn, sem hún gaf þeim, þó að hún leggði hann niður rétt hjá sér. Þeir voru svo gæfir, að þeir ná- lega átu úr lófa hennar, þegar þeir sáu ekki annan úti. Milli þeirra og heimahundanna var gott samkomulag, eða að minnsta kosti vopnahlé. Það, sem foreldrum mínum þótti óskiljanlegt, segir biskup, var að hrafnar drápu aldrei nokkurt unglamb, sem þau áttu, þó að yfir þessu væri kvartað á næstu bæjum og fjársamgöngur væru þar milli bæjanna. Og man ég eftir því, að foreldrar mínir sögðu í spaugi, að hrafnarnir mundu þó ekki þekkja „mark- ið“. Árið 1809 fluttu foreldrar mín- ir, segir biskup, frá Miklabæ að Víðivöllum, sem er stutt bæjar- leið, og voru margar ferðir með ýmisleg húsgögn, farnar á dag. En foreldrar mínir höfðu það eftir vinnufólkinu, að hrafn- arnir hefðu fylgt hverri ferð fram og aftur. Svo mikið er víst, að þeir fluttu sig með foreldrum mínum frá Miklabæ að Víðivöll- um og settust þar að. Ég man eftir því, að ég sá okkar hrafna reka aðra hrafna burtu og sagði faðir minn að á haustin skiptu þeir sér niður á bæina í sveit- inni, og að þessir búa hrafnar mundu ekki vera vel haldnir. Hann sagði mér líka þessa hrafnasögu: Þegar hann bjó á Miklabæ komu heimahrafnarnir einhvern dag með allra mesta gargi og flugu ýmist heim að bæ eða of- an í nes, sem þar er fyrir neðan hjá Héraðsvötnunum, og. sagði faðir minn þá húskörlum sínum að fara ofan í nesið og vita,

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.