Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1953, Page 28

Heima er bezt - 01.06.1953, Page 28
188 Heima er bezt Nr. 6 myndu verða öfundsjúkar, þegar hann stækkaði og kæmi gangandi, ásamt móður sinni. Það yrði gaman. T.c,kc rann dagurinn upp. Það var annar föstu- aaöur í september. Henni kom varla dúr á auga alla nóttina. Og löngu fyrir dag var hún á fótum. Nú átti að ganga frá öllu dótinu og setja það upp á rimlaloftið í búrinu, svo að mýsnar næðu ekki í það, sem eftir varð í selinu. Smjörkvartil og ost- ar voru tilbúnir til flutnings. En undir rúminu stóð kassi með matvælum. Þar var þurrkað kjöt, pyls- ur, stafli af flatkökum og mél í poka. Auk þess hafði hún sett nokkur fataplögg á sama stað. Hann myndi fá not fyrir það allt saman. En guð einn vissi, hvern- ig honum kæmi til að reiða af á fjöllunum! Nú var langt um liðið, síðan hún hafði hitt hann. Hann sagði, að svo mannmargt væri einmitt um þessar mundir á fjöllunum, og að það væri vissara fyrir sig að fara lengra inn í óbyggðirnar. Kannske alla leið upp að Finnavatni, en þar væri hann áreiðan- lega öruggur. Og svo var það drengurinn! Hann lá nýþveginn í rúminu. Hún hafði vafið hann inn í margar tusk- ur, og allan þann barnafatnað, sem hún átti til. María myndi finna það, þegar hún tæki drenginn úr pakkanum. Hún settist á rúmstokkinn og hélt drengnum upp við brjóst sitt dálitla stund. Það yrði langt til næsta tækifæris. Hún gældi og söng við hann. Og talaði við hann! Sagði honum öll áform sín. Nei, hann þyrfti ekki að láta sér leiðast þarna við vatnið. Auðvitað myndi henni dveljast talsvert áður en hún sækti hann, en þú ert nú stór drengur! Þú ferð ekki að skæla, þó að þú sért al- einn dálitla stund. Og síðan skaltu fá að sjá þorp- ið. Og við förum inn í fyrsta húsið, sem verður á leið okkar. Og góða konan mun klappa saman lóf- unum af gleði og vera óskaplega góð við þig. Jú, jú, María er góð kona! Og þú verður kannske hjá henni í nokkur ár, á meðan þú ert að vitkast og safna kröftum. Nú ,við sjáum nú til! En vertu bara ekki hræddur, drengur minn! — — — Það var engu líkara, en að skepnurnar grunaði, að þær ættu að flytja úr selinu þennan dag. Þær voru óþolinmóðar og stöppuðu með fótunum, og vildu helzt leggja af stað strax. En þær urðu nú samt að gera sér að góðu að bíða, þangað til smal- inn og húsbóndinn komu. Ingibjörg var farin að svipazt um eftir þeim. Ef hún væri vel á verði, gæti hún séð til þeirra niðri á Krókhálsi. Og þá hafði hún nægan tíma til að skjótast niður að vatninu með drenginn. Hún gekk oft út fyrir og leit til norðurs. Hún var ekki lengur jafn róleg og áður. Hún svitnaði og var óstyrk af spenningi. Hún varð að fara út aftur. Á Krókási var skóg- urinn búinn að fella laufið, og nú sást vel í gegn- um hann. Hérna var laufið fyrst gult, En annars var dalurinn og fjallaslétturnar gular og brúnar svo langt sem augað eygði. Haustið var í raun og veru falleg árstíð, aðeins ef maður gaf sér tíma til að njóta fegurðar þess. Enn bólaði ekki á neinum á ásnum. Vegurinn lá eins og dökkt band.------------ Nú hrekkur hún allt í einu við. Og heldur sér dauðahaldi í hliðstólpann. Drottinn minn, þeir eru þegar komnir upp yfir Rauðalæk! Þeir verða strax komnir þennan spöl heim að selinu!------- Hún hleypur eins og ósjálfrátt inn-í selhúsið. Hún grípur barnið, þrýstir þvi að sér, andvarpar, hleypur svo út og yfir túngarðinn, niður með lækn- um. Birkihríslurnar rífa og tæta pilsið hennar, og hún er alltaf að hrasa. Það er engu likara en að hvítu birkitrén standi allt í kring um hana og ætli að hremma hana með gráðugum örmum. Áfram, áfram! Rjúpurnar fljúga upp með ólátum. — Hérna er hún, hérna er hún! heyrist henni kallað á eftir sér. Kvistirnir brotna undan þunga hennar á hlaup- unum. Það var eins og allt væri ákveðið í að stöðva hana og hrópa út um víða veröld, að hérna væri hún með hórkrakkann sinn. Nú heyrir hún vagnaskröltið á veginum og mannamál. Nei, hún vogar ekki að fara lengra. Þeir gætu séð hana. Og hvað nú, ef þeir kalla á hana? Rétt fyrir neðan hana er brekkan upp af Svarta- djúpi. Henni finnst allt í einu, sem það opni gín- andi gapið á móti henni. Gráðug ófreskja, sem heimtar fóður sitt! Nei, nei, aldrei! En nú getur hún ekki hlaupið lengur. Hún þarf að komast heim aftur. Og kannske hefur hún líka gleymt einhverju af barnsfötunum inni í stofunni. Hún nemur allt í einu staðar. Hún rífur af sér hálsklútinn og breiðir hann á mosaþembuna. Legg- ur svo drenginn ofan á klútinn og hleypur tilbaka eins og fætur toga. Og nú ásækir þetta illa hana aftur. Pollarnir, smáhríslurnar, þurrir einiberja- runnarnir; allt virðist ætla að halda henni fang- inni og virðist æpa á hana. Upp brekkuria, yfir tún- garðinn, yfir túnið, og rétt í því er hún hleypur inn i húsið, sér hún á fremsta hestinn, sem beyg- ir fyrir hlöðuhornið. Hún gekk eins og í leiðslu. Fyrst þurfti hún að gefa þeim rnat, og svo átti að ganga frá farangrin- um á vagnana. Svo var eftir að leysa skepnurnar og beina þeim á leiðina heim. Smaladrengirnir báðir voru tilbúnir með tágar, og litlu seinna héldu þeir af stað með skepnurnar niður hlíðina og yfir Svartadj úpsmýrina. Húsbóndinn var venju fremur fámæltur í dag. Hver sem orsökin annars gat nú verið! Ef til vill var einhver prédikari komnin í sveitina. Um þetta leyti voru allskonar svartklæddir guðsmenn á ferð um dalabyggðirnar. Henni líkaði vel, hve fámálugur hann var. Hún hafði verið hrædd um, að hann kynni að taka eftir kassanum undir rúminu. Hann sást glöggt, þegar búið var að taka rúmfötin. En allt fór vel. Hann stóð á gólfinu og skimaði í kringum sig. — Nei, þau höfðu víst engu gleymt, sagði hann. Hann leit eftir, að dautt væri á arninum. Svo fóru þau út. Lykillinn snerizt í lásnum. Hann greip í taumana og hottaði á hestana. Henni leið svo illa, að henni lá við gráti, þegar þau óku gegnum hliðið. Til allrar hamingju var norðanvindur. Það gat ekki heyrzt til drengsins Framh.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.