Heima er bezt - 01.01.1954, Síða 6
2
Heima er bezt
Nr. 1
Til lesenda
Með þessu hefti byrjar HEIMA
er BEZT fjórða árgang sinn. í
þau þrjú ár, sem ritið hefur
komið út, hafa vinsældir þess
farið stöðugt vaxandi. Það er
sönnun þess, að brýn þörf hefur
verið á blaði, sem einkum er ætl-
að að varðveita frásagnir úr lífi
þjóðarinnar fyrr og síðar. Hefur
ritið frá upphafi reynt að vera
þessari stefnu sinni trútt, og
vonar, að það hafi tekizt. Hér
er ekki rúm til að fara mörgum
orðum um ástæðurnar fyrir því,
hver nauðsyn er að varðveita
þjóðlegan fróðleik, enda liggja
þær í augum uppi flestum hugs-
andi mönnum. Þó er ekki þar
með sagt, að ritið vilji ekki flytja
greinar annars eðlis, varðandi
menningarmál, enda hefur þaö
flutt margar slíkar greinar. En
til þess að það geti orðið sem
fjölbreyttast, heitir það á les-
endur, að senda því góðar, sann-
ar frásagnir úr lífi sínu og ann-
arra. Einnig væri ritstjórninni
kærkomið, að fá gamlar myndir
af bæjum og mannvirkjum að
láni til notkunar í ritið, þegar
ástæða er til. Verður séð svo um,
að slíkar myndir verði sendar
eigendum aftur, þegar búið er
að nota þær.
Lesendahópur HEIMA er
BEZT er nú orðinn fjölmennur.
Margir hafa orðið til þess að
senda því ritgerðir og annað
efni. Hin fjölmörgu bréf, sem
ritinu hafa borizt, bæði þau, sem
hafa verið hrós og viðurkenning,
og eins hin, er hafa flutt gagn-
rýni á ritið og frágang þess,
hafa verið mjög kærkomin. Til
þess að unnt sé að gera slíkt rit
vel úr garði, þarf að vera góð
samvinna milli ritstjórnarinnar
og lesendanna. Væntir ritstjórn-
in þess, að ritið geti orðið enn-
þá fjölbreyttara og skemmti-
legra á þessu ári, en það tekur
jafnan nokkurn tíma, að vinna
rit, sem þetta upp, og koma efni
þess fyrir í hiö rétta form.
Með þessu hefti verður sú
breyting á ritinu, að forsíða þess
fær nýjan svip. Verður nú ein
stór mynd á forsíðu í stað fjög-
urra lítilla áður. Þykir það að
ýmsu leyti hentugra, enda verða
myndirnar skýrari í þessari
stærð. Að öðru leyti mun ritið
kappkosta að fylgja þeirri stefnu,
sem það markaði sér í upphafi.
Að svo mæltu óskar HEIMA er
BEZT öllum lesendum sínum
fjær og nær
GLEÐILEGS NÝÁRS.
Forsíðumyndin
er tekin af hamrahliðinu fyrir
neðan Hjálparfoss í Þjórsárdal.
Gömul munnmæli herma, að
einhverju sinni fyrr á öldum hafi
hallæri gengið og öll björg þorr-
ið hjá Þjórsdælingum hinum
fornu.
Það varð þá úrræði þeirra að
draga á Fossá hjá Hjálp. Veiddu
þeir svo vel, að bætt varð úr
bjargarskortinum. Gáfu þeir þvi
staðnum Hjálparheitið, og hefur
það haldizt síðan.
Ljósm.: Þnrvaldur AgiisLsson.
I
Tíöarfar í október og nóvember
fyrir 65 árum
Reykjavlk 23. nóv. — Stór-
skemmdir hafa orðið hér i bæn-
um af ofsaveðrinu og sjógang-
inum í fyrrinótt. Mili 10 og 20
skip og báta hefur tekið út, sem
alveg eru horfnir og mörg skip
og bátar meira og minna
skemmd. Sum hús næst sjónum
hafa og skemmst, eitt ýtzt til á
grunninum; þilskip eitt, Ingólf-
ur, sem lá í fjörunni, hafði rek-
izt á akkeri og það gengið í
gegnum hliðina á skipinu.
Margir standa uppi skipalausir
og hafa því engin tök að leita
sér bjargar úr sjó. Um nóttina
bátunum; hafa haldið, að öllu
hafði enginn farið út að bjarga
væri óhætt, enda höfðu nætur-
verðirnir, sem hér eru tveir, eigi
látið nokkurn vita um þetta
mikla brim.
Efnisyfirlit
Bls. 3 Ferö að Dröngum, eftir Þorbjörn Þórðarson lækni.
— 5 Hraðkvœð skáld, eftir Sveinbjörn Benteinsson
Draghálsi.
— 6 Úr stjórnmálasögu íslands, eftir Kristján Jóns-
son frá Garðsstöðum.
— 11 Colon klmir, smásaga eftir Sigurjón frá Þor-
geirsstöðum.
— 12 Úr heimsskoðun miðalda.
— 14 í heljargreipum. — Úr endurminningum Helga
Þórðarsonar.
— 16 Fyrsta islenzka stjórnin og Hannes Hafstein 1904
—1954.
— 19 Skýringar á nokkrum stöðum viðvíkjandi alman-
akinu, eftir Guömund Davíösson.
— 22 Eyðing Pompeiöorgar. Örlagarikasta eldgos sög-
unnar.
— 25 Hugleiðingar ferðamanns, eftir Þorstein Matt-
híasson.
— 27 Fjallabúar, framhaldssaga eí'tir Kristian Kristi-
ansen.
— 32 Myndasagan: Óli segir sjálfur frá.
Slcritlur og margt fleira.