Heima er bezt - 01.01.1954, Síða 11

Heima er bezt - 01.01.1954, Síða 11
Nr. 1 Heima er bezt 7 Alþingismennimir undir linditrénu á Oarði 1906. — b'rá vinstri, fremri röð: Skúli Thoroddsen, Jóhannes Jóhannesson, Valtýr Guðmundsson, Goos ráðherra, Hannes Hafstein, Þórhallur Bjarnarson, Lárus Bjamason, Jón Jakobsson. — Aft- ari röð, frá vinstri: Övíst um nafn fyrsta mannsins, Guðlaugur Guðmundsson, Bjöm Bjamarson, Guðmundur Björn- son, Stefán Stefánsson, Schauboe, vísiprófastur á Garði, Björn Magnússon Olsen, Bogi Th. Mehteð og Jón Stefánsson. stjórnin mun hafa hugsað um það eitt að halda öllu í sama horfinu, og einkum héldu Dan- ir fast við gildi stöðulaganna. Þá kom dr. Valtýr Guðmunds- son til sögunnar. Hann varð til að koma stjórnarskrármálinu inn á nýja braut. í aðalatriðum var frumvarp hans sama efnis og stjórnarskráin 1903, en sá stóri meinbugur var á valtýzk- unni, að ráðherranum var ætl- uð búseta í Kóngsins Kaup- mannahöfn. Á Alþingi 1889 skaut raunar upp hinni svonefndu miðlun, þar sem gert var ráð fyrir annarri stjórnarskipun, og að ýmsu ó- frjálslegri en í Benedizkunni. Var talið að sumu í líkingu við stjórnarfyrirkomulagið í sam- veldislöndum Breta. Það frum- varp komst í gegn um efri deild, en var stöðvað í neðri deild með miklum bægslagangi, og hlaut ekki almennt fylgi þjóðarinnar. Meðan barizt var með Bene- dizkunni, voru það mestmegnis hinir konungskjörnu (ekki þó ávallt allir), sem þar stóðu móti, nokkur hópur hægrisinnaðra kjósenda, og ýmsir yngri menn, sem ekki höfðu trú á, að málið næði fram að ganga og töldu margt athugavert við frum- varpið eins og það var samþykkt af Alþingi. Þeirra á meðal var Hannes Hafstein, þá kornungur lögfræðingur. En Þingvallafund- ir, sem haldnir voru málinu til stuðnings, vöktu svo mikinn samhug þjóðarinnar, að mót- stöðumenn málsins kusu að draga sig í hlé. Þegar Valtýzkan kom til sög- unnar, héldu konungskjörnu þingmennirnir ekki hópinn, en skiptust til helminga, og sama var um þjóðkjörnu þingmenn- ina. Vorið 1899 var svo komið, að helmingur alþingismanna mun hafa tjáð sig reiðubúna til að samþykkja stjórnarskrárfrum- varp á þeim grundvelli, sem dr. Valtýr taldi, að þáverandi ís- landsráðherra, dr. Rump, hefði að minnsta kosti gefið vilyrði um að næði staðfestingu kon- ungs. Sighvatur bóndi Árnason í Ey- vindarholti, 1 þm. Rangæinga, var þá langelztur þingmanna, 76 ára gamall og hafði setið á Al- þingi við óvenju góðan orðstýr í rúman aldarfjórðung. Á sýslunefndarfundi Rangæ- inga veturinn 1899 virðist hafa komið fram ósk um það, að Sig- hvatur segði af sér þingmennsku, þar sem hann væri orðinn svo aldraður, en eiginleg áskorun eða ályktun frá sýslunefnd í þessu efni var þó ekki samþykkt. Var þetta meðal annars að deiluefni í kosningunni, og birtu sex sýslunefndarmenn*) að kosningu lokinni yfirlýsingu í ísafold um, að þeir hefðu ekki veizt að Sighvati á fundinum eða þrýst honum til að hætta þing- setu. Fór samt svo, að Sighvatur sagði af sér þingmennsku seint á vetri, og var kosning í Rangár- þingi ákveðin í júnímánuði. Er að sjá sem Heimastjórnarmenn hafi verulega vaknað við þessi tíðindi. — Vitað var, að hinn ungi sýslumaður Rangæinga, Magnús Torfason, var fylgismað- ur dr. Valtýs, og kom brátt á daginn, að honum var ætlað að setjast í sæti Sighvats. Er drep- ið á aðdraganda kosningarinnar og kosningabaráttuna í sjálfs- ævisöguþáttum Gunnars Ólafs- sonar í Vestmannaeyjum, og þó vart eftir ábyggilegum heimild- um. — Roskinn merkisbóndi úr Rangárþingi (Guðjón í Ási) kvaðst í viðtali við þann, er þetta *) I’cir voru: sr. Skúli Skúlason, Odda, Einar Árnason í Miðey, Runólfur Hall- dórsson, Rauðalæk, Ólafur læknir Guð- mundsson, Einar Jónsson, Garðsauka og Eyjólfur Guðmundsson, Hvammi.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.