Heima er bezt - 01.01.1954, Side 12

Heima er bezt - 01.01.1954, Side 12
8 Heima er bezt Nr. 1 ritar, eigi hafa heyrt nefnda yestmannaeyjaför Sveinbjarnar Ólafssonar á þann hátt, sem Gunnar greinir frá. Hér var vitanlega ekki um það eitt að tefla hvort Magnúsi Torfasyni skolaði inn á Alþingi í þetta skipti, heldur var í raun- inni barizt um hvorki meira né minna en það, hvort Valtýsfrum- varpið skyldi ná samþykki Al- þingis sumarið 1899. Þetta mun forsprökkum Valtýinga hafa verið fullljóst. Því má telja mjög sennilegt, að undirmál hafi ver- ið um það, að fá Sighvat til að afsala sér þingmennsku, og lík- lega frá flokksstjórn Valtýinga. Það kemur líka óbeint fram í Þjóðólfi í kosningagreinum um vorið, að Heimastjórnarmenn hafi talið hér slík brögð í tafli, án þess þó að eigi verði af þeim greinum séð, að sannanir í þess- um efnum hafi legið fyrir. Því var það ráð tekið, er leið að kosningu, að bjóða Sighvat Árnason fram á nýjan leik, en séra Eggert Pálsson, er hafði lýst yfir framboði, dró sig í hlé og studdi Sighvat. Er þá auðskilið, að það hafi reynzt einkar haldgott vopn 1 kosningahríðinni að halda því fram, að Sighvatur hefði verið vélaður til að segja af sér þing- mennsku, og því vopni beitt gegn keppinaut hans, Magnúsi sýslu- manni. Og því síðan bætt við, að sjálfsagt væri að launa gamla manninum langa og farsæla þingmennsku með því að endur- kjósa hann. Úrslitin urðu líka þau, að Sig- hvatur Árnason var endurkos- inn með miklum meirihluta at- kvæða. Má nærri geta, að Magn- ús sýslumaður og fylgismenn hans ýmsir hafa ekki tekið kosn- ingaúrslitunum með jafnaðar- geði. Þegar á Alþingi kom, var Val- týsfrumvarpið samþykkt í efri deild með 7 atkv. gegn 3, en fellt í neðri deild frá 2. umræðu með jöfnum atkvæðum, 11 gegn 11. Að vísu var ákveðnasti and- stæðingur frumvarpsins, Bene- dikt Sveinsson, þá helsjúkur og lézt nokkrum dögum síðar. En þótt hann hefði á heilum fótum verið, myndi kosning Magnúsar Torfasonar hafa tryggt sam- þykkt Valtýzkunnar á Alþingi 1899, ef byggja má á atkvæða- greiðslunni um Valtýsfrumvarp- ið í neðri deild, sem ekki er á- stæða til að ætla, að hefði breytzt, þótt Valtýingur hefði sigrað í Rangárþingi um vorið. Þá myndu kosningarnar vorið 1900 hafa snúizt um það, hvort endursamþykkja bæri frumvarp- ið eða breyta því í þá átt, að ráðherrann skyldi búsettur í Reykjavík. Vafalaust hefði kosningahríð- in orðið skörp. Hinir sóknhörð- ustu Heimastjórnarmenn, með Þjóðólf að höfuðmálgagni, máttu ekki heyra það nefnt, að ráð- herrann yrði vistaður í Kaup- mannahöfn, en til voru líka ýmsir meðal þeirra, sem voru deigir í andstöðunni gegn Val- týzkunni, töldu varasamt að hafna sérstökum ráðherra, þótt búsetuákvæðið væri þeim mikill þyrnir i augum. Kom það fram í afstöðu séra Einars í Kirkjubæ til stjórnar- skrármálsins á Alþingi 1901. — Klemenz Jónsson var líka talinn hálfvolgur í málinu. Eftir öllum líkum að dæma myndi Valtýzkan hafa sigrað í kosningunum. Flokkurinn var víða fjölmennur, átti ýmsa harð- skeytta fylgismenn, og réði yfir öflugum blaðakosti, að þeirrar tíðar hætti. Þótt flestum finnist það nú undarleg fyrirmunun að sætta sig við þá skipan, að ráðherrann, æðsti embættismaður landsins, skyldi búsettur í Kaupmanna- höfn, þá var um helmingur þjóð- arinnar þessari lausn stjórnar- skrármálsins fylgjandi. Valtý- ingar hömruðu jafnan á því, að þetta væri bráðabirgðaúrræði. Við stæðum ólíkt betur að vígi með rýmkun sjálfsforræðis vors, eftir að hafa öðlazt sérstakan ráðherra. Ef Valtýsfrumvarpið hefði náð samþykki Alþingis 1899, myndi aukaþing hafa komið saman í júlí 1900 til endursamþykktar frumvarpinu. Hin nýja stjórnar- skipan myndi þá hafa komizt til ^framkvæmda í byrjun reglulegs Alþingis 1901. Stjórnarskrárbreytingin og út- nefning ráðherrans hefði þá ver- ið um garð gengin áður en vinstrimannastjórnin kom til valda í Danmörku. Tafl íslenzkra stjórnmála myndi þá hafa snú- izt við. Sennilega hefði dr. Val- týr Guðmundsson þá orðið fyrsti íslenzki ráðherrann, en Hannes Hafstein ekki komið til greina. Allt valt þetta á því, að Sig- hvatur Árnason bauð sig fram á nýjan leik vorið 1899. Við kosn- ingarnar 1900 voru þeir Þórður Guðmundsson í Hala og Magnús Torfason, báðir þá Valtýingar, kosnir, en séra Eggert Pálsson féll með talsverðum atkvæða- mun. Bendir það til þess, að Magnús hefði sigrað sr. Eggert árið áður. — Þeir, sem fengu tal- ið Sighvat gamla á að bjóða sig fram á ný vorið 1899, reyndust því að hafa úrslitaáhrif á tvennt: Hið fyrra að koma í veg fyrir að Valtýsfrumvarpið, með ráðherra búsettum í Kaup- mannahöfn, yrði að lögum, og jafnframt að útvega Hannesi Hafstein og Heimastjórnar- flokknum ráðherravöld árin 1904—’'09. Þessir atburðir verða víst aldrei færðir inn í sögu íslend- inga, en þeir, sem gaman hafa af að skyggnast bak við fortjald viðburðanna, mættu vel hugleiða þetta. Gera má fastlega ráð fyrir því, að þá er vinstrimannastjórnin danska var setzt að völdum 1901, hefðu hinar réttmætu kröfur um búsetu ráðherrans á íslandi orð- ið háværar. Hinn nýi stjórnar- flokkur hefði því annaðtveggja orðið að gera þær kröfur, að sínum, ellegar spyrna á móti fyrst um sinn. Hefði stjórnar- andstaðan þá að sjálfsögðu unn- ið á. Búsetuákvæðið hefði vafa- lítið verið tekið upp í stjórnar- skrána að fáum árum liðnum. Veltur á því, hvort Valtýsstjórn- inni hefði unnizt ráðrúm til að koma áhugamálum sínum til framkvæmda áður. Þótt stjórn- arflokkurinn hefði tekið það ráð að efna strax til stjórnarskrár- breytingar, þá er alls ekki víst, að hann hefði haldið velli eftir endurteknar kosningar. Má því frekar gera ráð fyrir, að hinn nýi stjórnarflokkur hefði kosið að geyma stjórnarskrárbreyt- ingu fram undir lok kjörtíma- bilsins, en snúa sér í þess stað að framfaramálum landsins. Ekki er að efa framfarahug dr. Valtýs. Hann var fast bund-

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.