Heima er bezt - 01.01.1954, Side 14

Heima er bezt - 01.01.1954, Side 14
10 Heima er bezt Nr. 1 flokkur Heimastjórnarmanna höfðu framið skyssur nokkrar — ef slíkt orð mætti viðhafa —, er nefndin var sett á laggirnar í þinglok 1907. — Þingflokkarnir áttu að útnefna nefndarmenn- ina. Landvarnarmenn voru þá taldir eiga einn fulltrúa á þingi, séra Sigurð Jensson í Flatey. Sr. Sigurður hafði einn þingmanna greitt atkvæði gegn fullnaðar- samþykkt hinnar nýju stjórnar- skrár á þinginu 1903, vegna rík- isráðsfleygsins svonefnda. Hann baðst að sögn undan nefndar- störfum, en flokksmenn hans vildu fá í nefndina bróður hans, Jón yfirdómara Jensson, sem þá var talinn hinn fræðilegi leið- togi Landvarnarflokksins. Ekki mun þó hafa verið til reynt, hvort þáverandi stjórnarand- stæðingar hefðu samþykkt út- nefningu hans. — Þá er í almæli, að meðal stjórnarandstæðinga hafi komið til tals að tilnefna Björn Jónsson, ritstjóra ísafold- ar. Gegn því lagðist Hannes Hafstein með þeim rökum, að utanþingsmenn ættu ekki að vera í nefndinni. Var þó ekkert skilyrði um það sett. Á sömu leið fór líka hjá þingflokki Heima- stjórnarmanna, er til tals kom að setja í nefndina Hannes Þor- steinsson alþm. og þáverandi ritstjóra Þjóðólfs. Meirihluti þingflokksins var þó talinn hafa verið því andvígur. Þeir Jón Magnússon og Lárus H. Bjarna- son voru taldir sjálfsagðir í nefndina frá stjórnarflokkunum, og sömuleiðis þeir Skúli Thor- oddsen og Jóhannes Jóhannes- son af hálfu stjórnarandstæð- inga. — Voru nú settir í nefnd- ina þeir Stefán skólameistari Stefánsson af stjórnarandstæð- ingum og Steingrímur sýslumað- ur Jónsson frá stjórnarflokks- mönnum. Það sýndi sig síðar, að mjög var misráðið að bægja þeim Birni og Hannesi frá kosningu í millilandanefndina. Þeir Stefán og Steingrímur voru að vísu mjög frambærileg- ir menn. Hafði Stefán setið á Alþingi við góðan orðstír síðan 1901, en Steingrímur var í fyrsta skipti á þingi. En báða skorti þá það áhrifavald, sem blaðamenn- irnir höfðu í ríkum mæli. Þeir Björn Jónsson og Hann- es Þorsteinsson réðu þá yfir á- hrifamiklum og víðlesnum blöð- um. — Áhrifa Þjóðólfs var þá að vísu víða tekið að gæta minna, og sú mun hafa verið ætlun ým- issa meðal Heimastjórnarmanna, þeirra er stóðu að útgáfu Lög- réttu. En það voru þessi blöð, sem réðu úrslitum kosninganna 1908. Mæla sterkar líkur með því, að ef Þjóðólfur hefði orðið á bandi meirihluta millilanda- nefndarinnar, myndu frum- varpsmenn hafa sigrað í þess- um kosningum — hvað þá ef ísafold hefði einnig veitt mál- inu fylgi. Að vísu getur enginn fullyrt, hver afstaða þeirra Björns og Hannesar hefði orðið til „upp- kastsins", ef þeir hefðu lent í millilandanefndinni. En almennt var talið, að Björn Jónsson væri ekki kröfuharðari í sjálfstæðis- málum landsins þá, en þeir Jó- hannes og Stefán, svo að þáver- andi flokksmenn hans í nefnd- inni séu nefndír. Eftir öllum afskiptum Björns Jónssonar af stj órnarskrármál- inu og sjálfstjórnarmálum okk- ar að dæma til 1908 má ætla, að hann hefði aðhyllzt samkomu- lagsgrundvöll þann, sem með „uppkastinu" var í boði. Og ekki var svo náin samvinna þeirra Skúla, að Björn hefði kosið að fylgja honum í óvissu. Um Hann- es Þorsteinsson var það vitað, að hann hafði til þess tíma verið náinn samverkamaður Lárusar Bjarnasonar á Alþingi, þeir ver- ið mjög svipaðrar skoðunar í öll- um meiriháttar málum. Er því full ástæða til að ætla, að þeir hefðu ekki skilið í nefndinni. Hér er alls ekki um neinskon- ar aðdróttanir í garð þeirra að ræða, heldur byggt á þeim mannlegu eiginleikum, að treysta betur eigin þátttöku í ákveðnu starfi, en að fara eft- ir annarra sögusögnum og hlýta þeirra leiðsögn. Auk þess ber ísafold frá þess- um tímum þess ljóst vitni, að Björn Jónsson var á báðum átt- um fyrst, eftir að „uppkastið“ birtist og millilandanefndar- mennirnir voru komnir heim, þótt hann síðan eftir nokkrar umþenkingar snerist gegn „upp- kastinu“. — Fylgi Björns við samkomulagstilraunirnar í sam- bandsmálinu 1912, er nefndar voru „Bræðingur“, skýra skoð- anir hans í þessum efnum enn- þá betur. Samkvæmt þeim gögnum, sem hér hafa verið tínd til, má full- yrða, að örlög „uppkastins“ 1908 ultu á því, að þeim Birni Jóns- syni og Hannesi Þorsteinssyni var bægt frá millilandanefnd- inni haustið 1907. Og það var Hannes Hafstein og flokkur hans, Heimastjórnarflokkurinn, sem urðu þess valdandi. Síðar kom svo á daginn, að með þessu var brugðið fæti fyrir heitasta áhugamál Hannesar Hafstein. Örlögin geta stundum verið hláleg. Hvernig mundu svo mál vor hafa skipazt, ef frumvarps- menn hefðu orðið í meirihluta við kosningarnar 1908? Gerum ráð fyrir að sambands- lagafrumvarp, á grundvelli meirihluta millilandafrumvarps- ins (Uppkastsins) hefði náð samþykki Alþingis og einnig ríkisþings Dana. Kosningar hefðu þá farið fram á nýjan leik, og hin nýja stjórnskipan verið komin á laggirnar 1910. Að líkindum hefði þá verið sett á fót tveggja ráðherra stjórn, heldur en þriggja, og landritaraembættið lagt niður. Sennilega hefði Hannes Hafstein orðið ráðherra áfram fyrst um sinn, en ýmislegt bendir þó til þess, að ráðherravöld hans hefðu eigi langæ orðið. Líklegt má þykja, að annar ráðherrann hefði þá verið valinn úr fyrrver- andi andstöðuflokki Hafsteins- stjórnarinnar, og skulu ekki hér leiddar frekari getgátur að því. Gera má ráð fyrir, að flokk- ur þeirra, sem fylgdi breyting- artillögum Skúla, hefði náð all- mörgum þingsætum, en mjög er hæpið, að flokkurinn hefði til lengdar getað haldið velli í deilu um útkljáð mál. Vafalaust hefði flokkaskipting um innanlandsmálin myndast á sama hátt og varð 1916 (Fram- sóknarf lokkur—Alþýðuf lokkur). En öll ástæða er til að ætla, að slíkir flokkar hefðu þá fyrr kom- ið til sögúnnar, máske 1912—13. En svo hefði það komið á dag- inn, er ófriðurinn brauzt út 1914, að Danir gátu ekki staðið við þau ákvæði sambandslaganna

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.