Heima er bezt - 01.01.1954, Page 22

Heima er bezt - 01.01.1954, Page 22
18 Heima er bezt Nr. 1 ins fyrsta og helzta viðfangsefni hans. í samgöngumálin innan lands, vegagerðir og brúargerðir, færðist nú einnig nýtt líf. Á menntamálasviðinu má nefna fræðslulögin og kennaramennt- unina. Kjördæmabreytingin, með leiðréttingu á misrétti kjós- endanna, var honum mikið á- hugamál, þótt hann fengi ekki leyst það. íslandsbanki kom hér á fót skömmu eftir stjórnar- skiptin og varð undirstaða til gerbreytingar á sjávarútgerð- inni. Yfir höfuð eru framfarir og framfarahugur ráðandi á öll- um sviðum á því tímabili, sem hefst með heimflutningi stjórn- arinnar. Hvorki stjórnarskráin 1874 né fullveldisviðurkenning- in 1918 hafa markað jafndjúp spor í framfarasögu íslands og heimflutningur stjórnarinnar 1904. Hin nýju fyrirtæki, síminn, bankinn o. s. frv. breyttu ekki aðeins athafnalífinu á skömm- um tíma, heldur einnig hugsun- arhætti manna. Kyrrstöðutíma- bilið var um garð gengið og nýr tími runninn upp, tími starfsins, áhugans og framkvæmdanna. Forvígismaðurinn var ótrauður. Hannes Hafstein var hugsjóna- maður, framgjarn og kappsfull- ur. Hann vildi vera foringi og honum þótti mikið í það varið, að verða fyrsti innlendi ráð- herra íslands og forgöngumaður nýsköpunar og margskonar um- bóta hjá þjóð sinni. Á fyrstu þingunum hafði hann öruggan meirihluta að baki sér, sem bar ótakmarkað traust til hans og áleit sig geta skellt skollaeyrun- um við þeim árásum, sem hald- ið var uppi af tiltölulega fá- mennum andstæðingaflokki í þinginu, sem ekki gat gleymt ósigri sínum í hinni áköfu deilu, sem á undan var gengin“. Flokkur Hannesar, Heima- stjórnarflokkurinn, beið mikinn kosningaósigur árið 1908. Þótti meirihluta kjósenda, sem Heima- stjórnarmenn væru of vægir í kröfum í sjálfstæðismálinu, er þeir féllust á „uppkastið" svo- nefnda. Nokkuð eimir eftir af fordómum í garð Hannesar og hans manna ennþá, vegna þess- ara mála. En sé litið fordóma- laust á þau mál öll, virðast manni nú, sem allar þær æsing- ar, sem út af því risu, hafi haft lítið tilefni. Það var ef til vill hamingja fyrir ísland, að upp- kastinu var hafnað; það sýndi samhuga vilja til sjálfstæðis, en ekki verður annað séð, en að fylgjendur „uppkastsins“ hafi haft mikið til síns máls, enda ekki útlit fyrir þá, að Danir létu meira undan fyrst um sinn, sem ög varð raunin á, en allt aðrir viðburðir urðu þess mest vald- andi, að fullveidisviðurkenning- in fékkst 1918. En það geta menn lært af umræðunum um „upp- kastið“ í blöðum og á Alþingi í þá daga, að báðir aðiljar voru ásáttir um, að aldrei væri of vel vandað til slíkra samninga við önnur lönd, og var ljóst, að á- gallar í þeim efnum gætu bund- ið þjóðina alveg óafvitandi, ef mótaðilinn færði sér það í nyt, sem og gert er í slíkum tilfellum, þar sem siðferði virðist ekki vera til . í viðskiptum ríkja. Þykir mörgum, sem nokkuð hafi á skortað í þessum efnum á seinni árum. Því fór fjarri ,að friður héld- ist á stjórnmálasviðinu í ráð- herratíð Hannesar Hafsteins. Deilt var hart á stjórn hans, og margir andstæðinganna voru ó- vægnir í ræðu og riti. Helzti andstæðingur Hannesar var Björn Jónsson ritstjóri ísafold- ar, en hann tók við ráðherraem- bættinu eftir kosningaósigur Hafsteins-manna, eins og kunn- ugt er. Verður sú saga ekki rak- in lengur hér, enda drepið á hana annars staðar í blaðinu. Þegar Hannes Hafstein kast- aði sér út í stjórnmálabaráttuna, varð skáldskapurinn útundan, eins og eðlilegt var. Þó orti hann nokkur af sínum beztu kvæðum á þessum árum, svo sem í land- sýn, minningarljóð um Jón Sig- urðsson og í hafísnum. í þeim birtist sama karlmennskan og í fyrri kvæðum hans, en þau bera einnig vott um reynslu stjórn- málamannsins og aukna samúð og skilning. Hannes var húman- isti í fyllsta skilningi orðsins. Hann trúði á einstaklinginn og vildi skapa öllum skilyrði til þess að fá notið hæfileika sinna, og fátt hatar hann meira en þröng- sýni og naglahátt. Hann var sáttfús að eðlisfari. Hið sama var einnig einkennandi fyrir Björn Jónsson, enda tóku þeir höndum saman undir lokin. Aldamótakynslóðin var bjart- sýn á framtíðina. Kvæði góð- skáldanna höfðu mikil áhrif 1 þá átt, að vekja landslýðinn úr dróma. Skáldsýnir Hannesar og Einars Benediktssonar fengu hljómgrunn hjá þjóðinni og styrktu menn ,í trúnni. Það fór vel á því, að einmitt annað þess- ara djarfhuga skálda skyldi verða til þess að veita hinni fyrstu innlendu stjórn forstöðu. Hugsjón og veruleiki urðu þar samferða, en það er sjaldgæft í sögu þjóða. Þó er ekkert vafa- mál, að betur færi á því, að þetta tvennt færi oftar saman en raun er á. Þeir menn, sem ganga til starfa sinna fyrir land og þjóð með slíka stefnuskrá og þá, sem felst í Aldamótakvæði Hannesar, eru hinir raunverulegu leiðtog- ar. En þeir eru sjaldgæfari en gull í íslenzka hraungrýtinu. Fimmtíu ár er ekki langur tími í sögu þjóðar. Það er ef tií vill ennþá of snemmt að skrifa raunverulega sögu þessara ára. Til þess eru atburðirnir of ná- lægir þeim, sem nú lifa. En eitt er víst, að flutningur stjórnar- innar heim verður jafnan talinn einn af merkustu viðburðum síð- ari tíma, því að þar með hófst stórstígasta framfaratímabil i sögu þjóðarinnar. Þá sýndi hún hvað hún gat af eigin ramleik, þá var ekkert erlent gull til að láta blinda sig með, ekkert ann- að en eigin manndómur og ein- lægur vilji til að rétta úr kútn- um og búa í haginn fyrir þær kynslóðir, sem áttu að erfa landið. Og það er vegna þessa, að atburða ársins 1904 verður minnst að verðleikum um þetta leyti. Bjartsýni þeirra manna, sem þá voru uppi, leggur okkur skyldur á herðar, sem ekki ættu að vera þungbærar neinum manni, en við eigum að varð- veita hugsjónir þeirra og vinna að því, að þær rætist, svo að aft- ur megi morgna, eins og segir í síðustu hendingu aldamóta- kvæðis Hannesar Hafstein.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.