Heima er bezt - 01.01.1954, Síða 23

Heima er bezt - 01.01.1954, Síða 23
JSIr. 1 Heima er bezt 19 Guðmundur Davíðsson: Skýringar á nokkrum stöðum viðvíkjandi almanakinu i. J. Aldir. a. Alheimsár, svo nefnt, er talið 25868 ár. b. Júlíönsk öld er 7980 ár. Hún byrjaði síðast 4713 árum f. Kr. Árið ’53 verður 6666. ár Júliönsku aldar (4713-|-1953 = 6666). Sé deilt i 6666 með 19, ganga 16 af. Það er gyll- intalið 1953. í Júlíanskri öld eru 15 Páskaaldir, 420 tunglaldir og 285 sólaraldir. c. Páskaöld (19-28) er 532 ár. d. Sólaröld hin stærri er 400 ár. Hún byrjaði árið 1600 og eru nú liðin af henni 353 ár. e. Sólaröld minni er 28 ár. Hún byrjaði síðast 1944 og er því 9. ár sólaraldar 1953. f. Tunglöld er 19 ár. Árið 1953 er 16. ár tunglaldar; er það kölluð gyllini-tala. 2. Paktar. Verði nýtt tungl 1. janúar eitt- hvert ár, þá mun síðasta nýtt tungl ársins, í desember, verða 11 dögum fyrir árslok (þetta varð 1938). Verður þá tunglið 1. janú- ar næsta ár 11 daga gamalt, þriðja árið 22 daga og fjórða ár- ið 3 daga gamalt 1. janúar. Töl- urnar, sem sýna aldur tunglsins á nýársdag ár hvert, eru nefndar paktar. Á hverju ári er skýrt frá því í almanakinu, hverja tölu paktar hafa. Ásamt gyllinitalinu eru paktar fundnir, og með pöktum páskar og aðrar hátíðar ársins. Aðferðin er sú, að gyllinitalið er margfaldað með 11, og 18 bætt við útkomuna. í hana er deilt með 30. Afgangurinn sýnir, hverjir paktarnir eru það ár, sem um er að ræða. Ef enginn af- gangur verður, eru paktarnir 0. Taflan hér á eftir sýnir pakt- ana, þegar gyllinitalið er 1—19. Gyllinit. Paktar Gyllinit. Paktar 1 0 11 20 2 11 12 1 3 22 13 12 4 3 14 23 5 14 15 4 Gyllinit. Paktar Gyllinit. Paktar 6 25 16 15 7 6 17 26 8 17 18 7 9 28 19 18 10 9 Eftir 19 ár getur skakkað ör- litlu, hvað paktana snertir, en er þá lagfært. Þá er tunglöldin lið- in og byrjar aftur á nýjan leik. Nefna má yfirstandandi ár (1953) sem dæmi um útreikning pakta. Gyllinitalið er 16. Það margfaldað með 11 verða 176, við það bætist 18, útkoman verður ' ——.———— Guðmundur heitinn Davíðs- son er lesendum HEIMA er BEZT að góðu kunnur fyrir ýmsar góðar greinar, sem hann samdi fyrir ritið. — ] Nokkru áður en hann lagð- ist banaleguna afhenti hann ritstj. grein þá er hér birtist. Fjallar hún um tímatalið og ! aðferðir við útreikning al- manaksins. Kunnátta í rími eða tímatali var almenn fyrr- um, og ætla mætti að ýms- um þætti fróðlegt að kynn- ast þessari íþrótt, og fá skýr- ingar á nærri óskiljanlegum stöðum og táknum í alman- akinu. Greinin er skrifuð á fyrra ári og er því víða mið- að við það. 194. í þá tölu er deilt með 30, af- gangur er 14, sem eru paktar þetta ár. (f töflunni eru paktar taldir einum meira en í útreikn- ingnum. Annars getur hver mað- ur, sem á almanak, talið aldur tunglsins við hver áramót og komist að raun um, hvort paktar séu réttir). Annað dæmi: Árið 1940 var gyllinitalið 3. Margfaldað með 11 kemur út 33. Við þá tölu er bætt 18. Útkoman er 51. Þeirri tölu er deilt með 30. Afgangur verð- ur 21, sem eru paktar það ár. (3X11+18:30=1, afgangur 21). 3. Gyllinitalið. Gyllinitalið á að sýna aldur tunglaldar, en hún nær yfir 19 ára tímabil eins og áður er sýnt. Að þeim tíma liðnum byrjar tunglöldin aftur. Árið 1937 var gyllinitalið 19, síðasta tunglald- arár. Árið eftir var gyllinitalið 1, eða fyrsta ár tunglaldar, er lýk- ur 1956. í fyrsta alda-kaflanum hér að framan, undir b-lið, er sýnt, hvernig gyllinitalið er fundið. Aðra aðferð má einnig nota. Hún er sú að draga 1701 frá ártalinu 1953, bæta við útkomuna 11 og deila síðan í hana með 19. Af- gangurinn verður 16, sem er gyll- initalið 1953. Enn er þriðja að- ferðin. Þá er 1801 dregið frá ár- talinu 1953, við útkomuna er bætt 16, og síðan deilt með 19. Afgangurinn verður 16. Þá er enn sú aðferð að finna gyllinitalið með því að bæta 1 við ártalið og deila í það með 19. T. d. ár 1874+1 = 1875. í þessa tölu er deilt með 19, afgangur er 13, sem er gyllinitalið 1874. Heitið gyllinital er dregið af því, þegar tunglöldin, 19 ár, var fundin, þótti það svo merkileg uppgötvun, að talan 19 var sett með gullnu letri á töflu, sem hengd var upp í goðahofum Aþenuborgar. 4. Sunnudagsbókstafur. „Fyrstu 7 dagar ársins (1—7) eru merktir með bókstöfunum a. b.c.d.e.f.g. og næstu dagar á eftir með sömu stöfum og í sömu röð allt árið. Kemur þá sami bók- stafur á sama vikudag.“ Árið 1953 skal taka hér sem dæmi. Nýársdag ber upp á fimmtudag og byrjað þá, eins og ætíð, á bókstafnum a, föstudag b, laugardag c, og sunnudag d, sem er sunnudagsbókstafur árs- ins. Árið byrjar og endar ætíð á sama vikudegi. Sami bókstafur er því á síðasta degi ársins (31. des.), sem er fimmtudagur eins og á nýársdegi. Ef enginn hlaup- ársdagur væri og árið allt af

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.