Heima er bezt - 01.01.1954, Síða 26

Heima er bezt - 01.01.1954, Síða 26
22 Heima er bezt Nr. 1 Eyðing Pompeiborgar Örlagaríkasta eldgos sögunnar Fyrir nokkrum vikum las ég í íslenzku blaði frásögn eins hinna yngstu rithöfunda vorra um heimsókn í Pompeiborg á Ítalíu, er grafin hefur verið úr rústum ösku, er huldi hana um nær tuttugu alda skeið. í borginni bjuggu um 25 þús. manns, er Vesúvíus færði hana í kaf í ösku. Var talið, að 2—3 þús. af íbúum hennar hafi nær allir látist samstundis af völd- um eiturgass, er verið hafi samfara gosinu. — Það gefur að skilja, að vart muni að fá öruggari vitneskju um lifnaðar- hætti og menningu Forn-Róm- verja, en einmitt í þessari endur vöktu borg. Rithöfundurinn íslenzki sá margt, sem honum þótti næsta merkilegt. Ég ætla ekki að end- ursegja grein hans, en geta má þess, að hann sá m. a. aðgöngu- hár um tunglkomur, föstur og fjölda messudaga í árinu, og margt fleira, sem snerti vikur og dagatöl. Líklega hefur mest af þessum fróðleik verið hægt að rekja til fingraríms. Eftirtekt og minni einstakra manna hjálpaði þar mikið. Sumir menn virtust hafa sérstaka gáfu í þessa átt. Flestir kannast við fræðimann- inn Jón bónda Bjarnason í Þór- ormstungu. Honum varð ekki skotaskuld að reikna út almanak eftir afstöðu bæjar síns. Það stóð enganveginn að baki alman- ökum frá danska háskólanum, sem þá hafði einkarétt til að reikna út almanak handa íslend- ingum. Bóndi einn, sem þótti fróður um margt, var eitt sinn spurður á hvaða vikudegi maður nokkur var fæddur. Honum var skýrt frá fæðingarári og mánaðardegi við- komandi manns. Eftir nokkra umhugsun leysti bóndi rétt úr spurningunni. Þótti undravert, hvað hann var fljótur að finna út vikudaginn. Að þessu lék hann sér oftar, en ekki skýrði hann frá aðferð, sem hann not- aði. miða að leikvöngum, litlar bein- plötur með gati. í glerkistu sá hann konulíkama óskemmdan, og þóttist kenna svip hræðslu og undrunar á andliti konunn- ar. Siðferðið telur hann að verið hafi ekki á marga fiska. Kom hann í höll bankastjóra eða peningamiðlara. Við hliðina á borðsal var renna lögð mar- mara og við enda hennar hlemm ur yfir niðurfalli, en „Það er venja þessara höfðingja að sitja við át og drykkju á milli þess þeir gengu að rennunni og stungu fingrum upp í sig og settust þeir á ný að borði ,og hófu drykkju og át“. Skammt frá ælukerinu var lítið herbergi með klúrum myndum, er gaf greinilega til kynna, til hvers það hefði verið notað. Er kon- um ekki leyft að koma í þetta musteri holdsins. f sambandi við þetta má enn geta þess, að fyrir nokkrum árum var, í sömu sveit og Jón Bjarna- son, annar bóndi, er samdi stóra og ýtarlega töflu um útreikning vikudaga. Tafla þessi var sýnd Eiríki Briem prestaskólakenn- ara, því að hann mun hafa verið fróðastur maður, hér á landi, um sína daga viðvíkjandi tímareikn- ingi. Undraðist hann, hvað böndi hafði sýnt frábæra leikni og elju við samning töflunnar. En vegna þess að Eiríkur Briem var þá búinn að útbúa miklu einfald- ari og styttri töflu, um sama efni, en sem bónda var ókunnugt um, bjóst hann ekki við, að svo flókin tafla sem hans, yrði notuð af al- menningi. Þetta sýnir, hvað sumum alþýðumönnum er hug- leikið og sýnt um að fást við rannsóknir, sem snerta alman- akiö. Það væri vel til fallið, að ein- hver rímfróður maður tæki sér fyrir hendur að semja handhæg- an leiðarvísi um tímatál og ein- falda aðferð við útreikning al- manaka, handa almenningi. Lægi beinast við að Þjóðvinafé- lagið gæfi út slíkt rit. Þegar ég las þessa ferða- þætti, minntist ég þess, að er ég vann að skrásetningu bókasafns ins hér, þá handfjatlaði ég litla bók, er mér þótti að vera mundi vænleg til fróðleiks, en hugðist geyma lestur hennar til betri tíma. Þessi bók er rituð á dönsku og nefnist „Pompeis Undergang“ en höfundur hennar er Holger Mygind, ér var á sinni tíð í fremstu röð danskra lækna. Hann hefur mikinn áhuga á sögu Pompeiborgar og átti safn muna þaðan. Bók þessi er vís- indarit og fjallar um eyðingu borgarinnar samkvæmt beztu heimildum tiltækum. M. a. eru birtir kaflar úr samtímafrásögn, bréfum Pliniusar, er hann var sjónarvottur að þessum ægilegu hamförum. Ég held, að mönn- um þyki nokkur fróðleikur í nefndri bók og bréfum Plinius- ar. Ég ætla því að freista að segja frá nokkrum niðurstöð- um bókarinnar og þýða kafla úr bréfunum, en áður en lengra er haldið verður að gera sögu borg- arinnar og umhverfi örlítil skil. Borgin er skammt frá Neapel, á hæðadrögum við rætur Vesúv- íusar, aðeins 9 km. frá gýgn- um. Borgin er talin mjög gömul, þar er m. a. hof eitt, sem talið er að sé frá 6. öld fyrir Krist. íbúar voru um 20.000 og er talið, að þeir hafi verið sæmilega efn- um búnir. Þeir lifðu mestmegnis á verzlun. Þeir seldu búvöru, sem framleidd var á sléttunum utan borgarinnar, ásamt víni og grænmeti. Háttsettir Rómverjar svo sem Cicero og Claudíus, áttu lystihús í Pompei. Borgarstæðið var hið fegursta, loftslagið heil- næmt og svalt á sumrum. Enda þótt gamall hraun- straumur lægi fast upp að borg- inni, lítur út fyrir að fólkið hafi ekki óttast neina dulda hættu, það var jafnvel byggt hátt uppi í fjalli. En 5. febrúar 63 e. Krist varð mikill jarðskjálfti og skemmdust flestar opinberár byggingar ásamt fjölda íbúðar- húsa. Var þegar hafist handa um endurbyggingu, og ekkert bendir til að fólkið hafi ekki horft öruggt til framtíðarinnar. En svo rann upp hinn hræði- legi dagur 24. ágúst 79 og næstu dagar á eftir, er þeir ógnþrungnu atburðir gerast, sem drepið er

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.