Heima er bezt - 01.01.1954, Page 28

Heima er bezt - 01.01.1954, Page 28
24 Heima er bezt Nr. 1 hans eigin athuganir á þessum válega atburði. „Næstu byggingar hristust svo hroðalega að mikil hætta var á að þær féllu og vér yrðum undir rústunum. Vér ákváðum því að flýja borgina. Fjöldi fólks fylgdi dæmi voru fullt ótta og skelfingar. í uppnámi hlltir fólkið ráðum annarra, heldur en að taka á- kvarðanir af eigin hyggjuviti. Þegar vér komum undir bart loft urðum vér vitni að nýjum hörmungum. Vagnarnir, em vér höfðum pantað, köstuðust til og frá, þótt þeir stæðu á jafn- sléttu, og vér gátum ekki hald- ið þeim í skefjum með því að bera grjót að þeim til stöðvun- ar. Sjórinn þornaði upp langt frá ströndinni,vegna jarðskjálft- ans, og fjöldi sjávardýra lá á þurru landi. Hinum megin fjarð- arins gaus upp stórt, ógnþrung- ið ský, en eldingar þutu í alla vega krákustigum gegnum það. Spánverjinn vinur vor snéri sér nú að oss og mælti ákaft og inni- lega: „Ef bróðir yðar og frændi er óhultur, óskar hann eflaust hins sama hvað yður snertir, sé hann i lífshættu, er það hins- vegar vafal^ust ósk hahs, að þér lifið hann. Hversvegna hikið þér við að flýja?“ Vér svöruðum, að eigi sæmdi að hugsa um eigið líf meðan vér værum í óvissu um örlög hans. Orðalaust tók hann til fótanna og flýði. Skömmu síðar tók hið fyrrnefnda ský að breiða sig yfir jörð og haf. Það um- lukti Capri svo vér sáum ekki eyna og byrgði alla útsýn til Misenum. Móðir mín fór nú að biðja fyrir sér, og gerði ýmist að biðja eða skipa oss að flýja á óhultan stað, það hlyti að vera mér auðvelt svo ungum manni. Hún, sem væri orðin gömul og hrum vildi gjarna deyja, aðeins ef mér yrði undankomu auðið. Ég svaraði, að ég kysi ekki að lifa ef hún dæi, tók í hönd henni og neyddi hana til að ganga hraðar. Henni var nauðugt að láta undan, og ásakaði sjálfa sig fyrir það, að seinka undankomu minni. Nú fór að falla aska, en þó ekki verulega. Ég leit til baka og sá, að myrk þoka bylgjaðist yfir landið. „Vér skulum fara út af aðalveginum", mælti ég „meðan bjart er, til að forðast að vera troðin undir af fólks- mergðinni sem kemur á eftir. Að örstuttri stund liðinni skall myrkrið á oss, það var ekki líkt neinu náttmyrkri, þegar tungls nýtur ekki eða himinn er skýj- aður, heldur líktist þetta svarta myrkur helzt því, að vér værum í herbergi vandlega byrgðu og hver ljósgeisli útlægur ger. Vér heyrðum angistaróp kvenna, harmatölur barna og raddir ótta sleginna manna; sumir hróp- uðu á foreldra sína, aðrir köll- uð á börn sín, og enn aðrir kölluðu á maka sína; en ekki var unnt að þekkja menn af öðru en röddinni einni. Einn harmaði ákaft örlög sín, annar fjölskyldu sinnar, sumir áköll- uðu dauðann, þó hræddir við að falla fyrir sigð hans. Sumir á- kölluðu guðina, en þó voru þeir fleiri, sem trúðu ekki á neina guði lengur, og að þessi nótt væri hin síðasta, eilíf nótt, enda- lok veraldar. Sumir gerðu meira úr hættunni en hún raunveru- lega var. Aðrir sögðu langar fregnir af því, að þessi eða hin stórbygging í Misenum hefði hrunið í rústir eða brunnið, og auðvitað trúði fólkið þessum sögusögnum. Smám saman birti, en oss virtist þó, að ekki væri það dagsbirta heldur fyrirboði ;að nýju eldgosi. Svartamyrkur féll nú á aftur og ösku rigndi á ný, en nú var öskufallið miklu þétt- ara en áður og þyngra. Öðru hvoru urðum vér að hrista af oss öskuna, svo vér græfumst ekki undir í þessum yfirþyrm- andi ósköpum. Ég furðaði mig, hve rólega ég tók þessum hræði- lega atburði, en ég held, að það hafi verið eingöngu vegna þess, að sú aumlega hugsun hafi vakið mér hugarró, að allt mannkynið færist líka og sætt væri sameig- inlegt skipsbrot. Loks dreif myrkrið frá, eins og ský eða þoka, sem dreifist fyrir vindi. Skömmu síðar sáum vér dags- birtuna og jafnvel sá til sólar, en birta hennar var fölbleik, eins og sólmyrkvi væri fyrir stuttu liðinn hjá. Allt var orðið breytt fyrir örþreyttum augum vorum; þykkt öskulag lá yfir héraðinu eins og djúpur snjór. Vér snerum aftur til Misenum, þar sem vér fengum oss hressingu, og dvöld- um þar um nóttina milli vonar og ótta. Óttinn var þó miklu rík- ari í hugum vorum, því að jarð- skjálftinn minkaði ekki, og ýms- ir urðu til þess að auka á óham- ingju sina og annarra með ægi- legum spám um það, sem enn væri í vændum.“ Hér lýkur bréfi Pliniusar. í bókinni segir svo frá þessum válegu atburðum í ljósi bréfa Pliniusar og síðari tíma rann- sóknum, sem hafa leitt margt merkilegt í ljós. Þá sannaðist m. a., að dauðaorsök fjölda fólks var sú, að það komst ekki út, dyr voru víða lokaðar og þykkir öskuskaflar lágu að stöfum. í húsagarði einum fundust 9 manns og hafði hver og einn þakstein til varnar höfðinu vegna steinregnsins. Stundum kom það fyrir, að menn fund- ust standaði í öskuskafli. Þá var sýnt, að furðu margir höfðu gef- ið sér .tóm til þess að taka með sér verðmæta muni, svo sem gullmynt, silfurskálar, perlu- djásn o. fl. í samkomuhúsum fundust tugir manna og mikil verðmæti í hrúgum hjá líkun- um. — Það vakti mikla athygli, hve mikill fjöldi líka fannst í þeim stellingum, eins og fólkið hefði lagst til svefns og horfið inn í eilífðina kvalalaust. Þetta þykir benda til þess, að kolsýr- ingur hafi orðið því að bana. Haraldur Guðnason. Samvizkusemi Déttew von Liliencrone las eitt sinn upp úr kvæðum sínum í Mannheim. Kona nokkur úr á- heyrendahópnum kom til hans og þakkaði honum fyrir að lestri loknum. „Meistari, ég vil láta lesa upp kvæði yðar, þegar ég ligg á bana- sænginni. Ó, þau eru svo dásam- leg“. „En ef þér yrðuð nú bráð- kvaddar“, sagði skáldið ofur- rólega. „Ó, þá bið ég manninn minn um að senda mér þau til himna- ríkis“. „Væri ekki öruggast að senda eitt eintak í hinn staðinn líka?“ svaraði Liliencrone brosandi.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.