Heima er bezt - 01.01.1954, Page 29

Heima er bezt - 01.01.1954, Page 29
!Nr. 1 25 Heima er bezt Þorsteinn Matthíasson: Hugleiðingar ferðamanns Framh. Reyðarfjörður. Milli Eskifjarðar og Reyðar- fiarðar er Hólmatindur. Síðustu daga hefur þokan hulið svip- miklar brúnir hans, en rétt þeg- ar ég er að fara frá Eskifirði léttir svo, að ég get séð hann í öllum sínum tíguleik. Leið mín liggur fram hjá hinu forna prestssetri Hólmum. Skammt þaðan er Flateyri. Þar býr Guð- mundur Sveinsson, breiðfirzkur að ætt. Enda þótt hann nú uni hag sínum vel austur þar, þá er sem breiðfirzk undiralda hreyfi skap hans, þegar hann minnist liðinna daga. Býlin á leið til Búðareyrar virðast vel setin, og húsbændur góðir heim að sækja. Þegar ég kem í kauptúnið laust fyrir kl. 8 að kvöldi, fæ ég þær fréttir, að Torleffsen, harmoníkusnilling- urinn víðfrægi, muni halda þar tónleika þá um kvöldið.. Enda þótt ég sé nú ekki mjög söng- gefinn, og skilningur minn á symfóníunni þyki stundum ekki djúptækur, þá hefur harmóník- an veitt mér marga ánægju- stund á liðnum árum, ekki sízt í uppvextinum, þegar skemmti- samkomur okkar útskagabúanna byggðust fyrst og fremst á því, að einhver ætti þetta ómissandi hljóðfæri og kynni svo með það að fara, að hægt væri að stíga dansinn eftir tónfalli þess. Ég er því ákveðinn að ná mér þegar í aðgöngumiða og sækja þessa kvöldskemmtun. Með aðstoð góðra manna tekst mér að komast að því, hvar þetta á fram að fara, svo allt verður í lagi. Ég verð hér ekki fyrir von- brigðum. Þessi bjarthærði, nor- ræni snillingur fer mjúkum höndum um tónborðið, svo að manni finnst jafnvel, að ís- lenzku lögin, sem hann leikur og eru vel kunn, komi hér í nýj- um töfraklæðum. Það má sjá það á áheyrendunum, að þeir sjá ekki eftir að hafa komið hér. Bændurnir af Jökuldalnum, sem vanir eru að hlusta á þrumu- tóna frá slaghörpu Jökulsár. njóta auðsjáanlega vel þessara mjúku, blæbrigðaríku og léttu hlj óma. Hér er Sigfús Jóelsson skóla- stjóri. Það er mikill ánægjuauki förumanni, sem treður ókunna stigu, að mæta góðum móttök- um hjá þeim, sem 'hann áður þekkti, en hefur ekki lengi séð. Bilið milli horfinna daga og líð- andi stundar, sem stundum virð- ist nokkuð langt, þegar það er rakið í einrúmi hugans, verður oft svo ótrúlega stutt, þegar gamall félagi er andspænis manni og stundin sem líður þok- ast jafnvel fjær fyrir máli minninganna, sem liggur þá oft svo ljúft á tungu. Á Reyðarfirði, sem annars- staðar í kauptúnum austan- lands, byggist afkoma fólksins mjög á útræði, margir hafa þó mikinn stuðning af landbúnaði, uppland frá þorpinu er grösugt og margir sem hagnýta það. Vattarnes. Þá er ég kominn á einn af mestu útskögum þessa lands. Hér er þó ekki mjög af- skekkt nú orðið, vegna sam- bands við nærliggjandi þorp. Hvergi hefur umhverfið á leið minni verkað eins heimalega og hér. Ströndin, hleinarnar, víkur og vogar með klifjum og kletta- beltum á milli. Hlíðin ofan við bæinn, skriðan og kleifarnar í brúnunum, allt er þetta svip- mót svo kært og kunnuglegt, að manni hlýnar í brjósti. Skrúð- ur rís úr hafi skammt undan landi í suðaustur að sjá, grænn og gróðursæll. Þangað hefði ver- ið gaman að geta lagt leið sína, en til þess er ekki tími nú. Ef til vill gefst mér síðar fari á að heimsækja þessar sérkennilegu stöðvar Skrúðsbóndans. Á Vatt- arnesi er myndarlega búið. Sjór- inn er gjöfull, bæði með afla- föng og trjáreka. Flestir vetur eru snjóléttir og útbeit því góð. Síðastliðinn vetur gaf Jónas bóndi ám sínum nálægt 5 kg. af heyfóðri og svipað magn af fóð- urbæti hverri kind. Undan 70 ám, sem lömb áttu, fékk hann svo 115 lömb. Móðir náttúra er börnum sínum góð, þó að á út- skögum búi. Ungur maður frá Kolmúla hefur tekið að sér að flytja mig á jeppa inn til Reyð- arfjarðar. Hann segir mér, að vegurinn muni hvergi nærri góður, en þó slarkandi. Ég kem á flesta bæi inn með ströndinni sunnan fjarðarins og mæti hvarvetna ágætum viðtökum. Jæja, aldrei fór það svo. Jeppinn situr fastur í mýrinni á mótum hins gamla og nýja vegar. Við njótum ágætrar að- stoðar vegavinnuverkstjórans og manna hans til að losa hann aftur. Það er ekki langt frá, að þetta ævintýri auki á ánægju ferðarinnar. Það rifjar upp þann tíma, þegar ég forðum lék keldusvín á ótroðnum slóðum minna heimahaga, fyrst þegar ég eignaðist ökutæki. Reyðarfjörður og klukkan er 9. Gott að hvíla sig eftir dag- inn. Að morgni er gott veður, sól skín í heiði og vindur blæs af hafi. í dag er til moldar borinn velmetinn borgari úr héraðinu. Hvarvetna sézt fólk streyma að til að fylgja honum síðasta spöl- inn. Presturinn leggur síðustu blessun yfir visið hold, og ennþá einu sinni vaknar þessi torráðna spurning: Hvað er andinn án holdsins? Sumir eiga svo erfitt með að læra skil á því, að þetta tvennt þurfi ekki hvors annars með. Egilsstaðir. Glampandi sól. Bjarkarilmur og fuglakliður fyll- ir loftið. Lögurinn er mjólkur- hvítur og lognsléttur. Það er sem straumurinn blundi í djúpi hans og þegar litið er inn til landsins, er einna líkast sem horft sé inn eftir löngum firði, þar sem línumjúkar hæðir eru beggja vegna. Hér á Egilsstöðum er gott gestum að búa; skortir hvergi á að vel sé fyrir öllu séð, sem þreyttur ferðalangur kýs sér til þæginda. Herbergisfélagi minn fyrstu nóttina er Ingólfur Davíðsson magister. Dvelur hann hér austanlands við nátt- úrufræðirannsóknir. Hér eru á ferð Jón Ólafsson bifreiðaeftir- litsmaður og kona hans, frú Herborg Hermundsdóttir. Þessi ágætu hjón dvelja hér í sum- arfríi sínu og hafa ferðast nokk- uð um Austurland. Hin sameig- inlegu áhugamál ferðamann-

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.