Heima er bezt - 01.01.1954, Síða 31

Heima er bezt - 01.01.1954, Síða 31
Nr. 1 Heima er bezt 27 Þeir voru búnir að borða kvöldmatinn í hellin- um í Svartadjúpi og Ingólfur hafði breitt teppið ofan á sig og var lagztur. Jens sat við eldinn og var að smíða ör. — Af hverju átti ég að sækja hana og fylgja henni til þín? spyr drengurinn allt í einu. — Ég gat vel fært henni rjúpurnar. Jens flýtir sér ekki að svara drengnum. Hann brosir, og í stað þess að svala forvitni drengsins, spyr hann? — Þú varst að tala við hana hjá lækn- um. Um hvað voruð þið að tala? — Það sama og þú varst að tala við hana um kvöldið, þegar ég mátti ekki vera með ykkur, svar- aði Ingólfur. ■— En þú varst heppnari, segir Jens. — Heppnari? — Já, því að þú fékkst koss. Ingólfur liggur lengi þegjandi og horfir í eldinn. Liggur á maganum. Lítur upp öðru hverju. — Nú? segir Jens spyrjandi. — Já, en sérðu, það er nú munur á mér og svona — svona skeggtrölli! IV. Loksins hvarf þelinn úr jörðinni. Vinnumennirn- ir á Oddabænum voru farnir að erfiða á ökrunum. Þar sem vorverkin höfðu hafizt svo seint, urðu þeir að nota hverja stund. Þrátt fyrir það var vafa- mál, hvort rófurnar myndu ná að þroskast, áður en næturfrost haustsins komu. Húsmennirnir þrír, Geirmundur, Eysteinn frá Einihlíð og Þorleifur gamli voru að vinna á akri fyrir sunnan bæinn. Bóndinn var sjálfur með þeim. Hann var að sá. Skóflurnar grófu sig niður í akurinn, þrjár skófl- ur hlið við hlið, og rákirnar náðu eftir endilöng- um akrinum. Mennirnir færðust stöðugt áfram, fet fyrir fet, og moldin hraut af gljáandi skóflu- blöðunum. — Hverju skyldi karlinn nú finna upp á, þegar þetta er búið? tautaði Eysteinn. — Hann man aldr- ei eftir því, að við eigum líka akra heima hjá okkur, sem verða ekki ræktaðir af sjálfu sér. — Já, víst er, að hann finnur upp á einhverjum skollanum, sagði Eysteinn. Þorleifur gamli var orðinn á eftir þeim, vegna þess að hann varð að slétta þúfu, en brátt náði hann þeim aftur. — O, hann hefur nú ekki verið svo afleitur í ár, húsbóndinn, sagði hann. í vikunni sem leið sendi hann tvo menn í bæinn til þess eins að sækja mél handa húsmönnunum. — Það var víst ekki eingöngu handa okkur, sagði Geirmundur. Og víst væri það asnalegt af honum, ef hann héldi ekki lífinu í okkur núna, þegar mest er að gera. — Mél, sagðirðu það, hreytti Eysteinn út úr sér, en reyndi þó að láta ekki heyrast of langt til sín. — Mél úr mosa og berki er ekki mél. Hann étur það sjálfsagt ekki sjálfur, húsbóndinn, o-nei! Og við eigum eins víst, að í haust verður það dregið af kaupi okkar, eins og væri það fyrsta flokks bygg- mél. Nei, það er hreint helvíti að vera húsmaður! — Það var nú ekki eingöngu barkarmjöl, andæpti Þorleifur gamli, það var ögn af byggi í því. Eysteinn hætti snöggvast og starði hvasst á gamla manninn. En svo var eins og hann bældi niður þungt andvarp. — Hallelúja! sagði hann og röddin var hátíðleg. Hann hjó í stein svo að neist- arnir fuku. Það var einkennandi fyrir Eystein, að hann gat ekki unnið þegar hann reiddist. — Ef að þú ættir nokkur börn, sem þú þyrftir að halda lífinu í, myndir þú víst ekki þvæla svona fábjánalega um þetta. — O, ef þú hefðir alið upp eins mörg börn og ég, þá------sagði Þorleifur gamli. — Já, þá myndi ég skammast mín, ef ég hefði ekki tekið betur eftir klækjum stórbændanna en þú! greip Eysteinn fram í. Geirmunai fannst þetta of langt gengið. Hann treysti ekki Þorleifi gamla. Hann gat hæglega kjaftað frá. — Það er ekki mikið um hreindýr á fjöllunum í ár, sagði hann eftir stutta þögn. Það sést varla dýr á gömlu hreindýraslóðunum. — Nei, sagði Eysteinn, hann var fokvondur og vann eins og berserkur. — Það er líka lítið um fiskveiði. * — Hvernig er það annars, hefurðu tekið eftir nokkrum hreindýrum frammi í dalnum? spurði Þorleifur gamli. — Ég sá nokkur spor í vetur —■ annað ekki, svar- aði Geirmundur. — Jú, svo varð ég var við úlfa- hóp í vor — held ég. — Sástu enga tvífætta? sagði sá gamli. Geirmundur hætti að vinna. — Tvífætta? end- urtók hann. Þú segir þetta svo einkennilega. Alveg eins og eitthvað búi undir. — Hm ■— nei alls ekki En fólk segir svo margt. Það er sagt, að stundum sjáist reykur frammi á Seljadal. — Og einhverjir kváðu hafa séð hávaxinn mann á rjúpnaveiðum kring um Svartadjúp, sagði Ey- steinn og sló slöku við vinnuna um stund. Geirmundur hamaðist aftur. Nei, hann hafði hvorki séð né orðið var við nokkuð kvikt þar inn frá, sagði hann. — En hún Geirþrúður? spurði sá gamli. — Hún hefði sjálfsagt sagt mér það, ef svo væri. Nú heyrðist ískra í hjólbörum á hinum enda ak- ursins. Bóndinn nam staðar og horfði á þá. — Þegar þið eruð búnir með rákirnar, getið þið komið hingað og jafnað yfir, hrópaði hann. Mennirnir þrír litu til hans og kinkuðu kolli alvarlegir á svip- inn. Og héldu áfram að vinna. — Er ekki leiðinlegt að eiga heima á svona af- skekktum stað fyrir unga konu? spurði Þorleifur gamli. Geirmundur hrökk við. Voru margir, sem hugsuðu um þetta? Honum hafði svo oft gramizt, að fé- lagar hans voru að erta hann á því, að þeir skyldu

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.