Heima er bezt - 01.09.1955, Page 14

Heima er bezt - 01.09.1955, Page 14
270 Heima er bezt Nr. 9 alþekkti og ágæti alþýðufræðari Guðmundur Hjaltason. Var hann þar nokkra vetrarparta, og mun Björn hafa notið kennslu hjá honum um 9—10 mánaða skeið. Mjög voru kennsluaðferðir þess- ara tveggja aðalkennara ólíkar. Tómas kenndi mest á bók og hélt nemendum svo fast að náminu, að þreytu kenndi hjá þeim. Og var sem fargi væri af þeim létt, er námi lauk. Guðmundur kenndi aftur á móti mikið með hinu lifandi orði af tungu sinni: í íyrirlestrum og samræðum við nemendur sína. Og hann gaf þeim líka fleiri frístundir. Nám- ið hjá honum varð því sem leik- ur, og kviðu nemendur mest þeirri stund, er því skyldi lokið. Námsgreinar þær er Björn fékk tilsögn í á heimili sínu fyrir fermingu voru þessar: skrift, reikningur, réttritun, kristin fræði og danska. Og eftir ferm- ingu til viðbótar — að kristnum fræðum fráskildum — landa- fræði, íslandssögu, mannkyns- sögu, íslenzku og ensku. Og þótt samanlagðuT námstími Björns væri ekki nema sem svarar rúm- lega tveggja ára námi hinnar ungu kynslóðar nú, hygg ég að mér sé óhætt að segja — eftir þeim kynnum sem ég hefi haft af nokkrum meðalgreindum ungmennum, sem setið hafa á skólabekkjum í 8 vetur, — að Björn hafi að námi loknu verið eins vel að sér og þeir í flestum þeim námsgreinum, er hann fékk tilsögn í, og sumum mun betur. Var sá árangur er hann náði við nám sitt að þakka hans góðu námsgáfum, en einnig ástundun hans og fróðleiksþrá. Fyrir ferm- ingu tók hann t.d. að lesa allar nýtilegar bækur, sem hann komst yfir. Einkum voru það bækur sögulegs efnis, svo sem Mannkynssaga Páls Melsteds hin meiri og Noregs-konunga sögur. Og að námi loknu hélt Björn áfram að auðga anda sinn með lestri góðra bóka, ef tóm gafst. Og það var sem honum opnaðist nýr heimur, er Lestrar- félag Keldhverfinga var stofnað skömmu áðúr. Því a)B félagið lagði mikla stund á að eignast sem mest af bókum fræðilegs efnis og heildarrit skáldjöfra Norðurlanda á dönsku. Notaði Björn sér þær bækur, svo sem ástæður frekast leyfðu. Ferða- sögur og bækur náttúrufræðilegs efnis voru honum mjög hug- stæðar, og þó einkum þær síðar- nefndu. Hafði hann ætíð augu og eyru sérstaklega opin fyrir öllu á því sviði og beitti þar ó- spart sinni skörpu athugunar- gáfu. Einkum voru það dýrin, •— og af þeim fuglarnir — sem hann lagði mesta alúð við og at- hugaði gaumgæfilegast. Mun hann hafa verið orðinn meðal fróðustu manna hérlendis um allt það, er snertir líf íslenzku fuglanna. Og yfirleitt hafði hann aflað sér svo mikils fróð- leiks á ýmsum sviðum, að ég hygg, að síðari hluta ævinnar hafi hann verið meðal fjölfróð- ustu manna hérlendra. Ritfær var Björn í bezta lagi og skrifaði margar greinar um fróðleg efni. Veittist honum það mjög létt og reit hreint og jipurt mál. Nokkrar af greinum hans hafa birzt í ýmsum tímaritum, en aðrar verið fluttar í útvarp- inu. Eina grein skrifaði hann á dönsku, og birtist hún í danska ritinu „Flora og Fauna“ 1935. Holger Kjær, kennari við lýðhá- skólann í Askov, skrifaði nokk- ur orð neðanmáls til skýringar á grein Björns. En Kjær ferðaðist hér um landið og gisti í Lóni tvær nætur sumarið 1929, er hann var að safna drögum að bók sinni „Kampen om Hjem- met“. En í þeirri bók leitast hann við að sýna uppeldisáhrif heim- ilanna, gildi vinnunnar á heim- ilunum og áhrif hennar á þroska barnsins. Eftir að hafa kynnt Björn fyrir lesendum ritsins, farast honum orð á þessa leið: „Han har aldrig gaaet i Skole, men har som alle ældre is- landske Bönder i sin Bamdom faaet Undervisning i Hjemmet og deltaget i Gaardens Arbeide. Han hörer til en Type af is- landske Bönder, der desværre er ved at dö ud, en forstandig og selvlærd Mand, som er rod- fæstet i gammel islandsk Kul- tur, og som derved af en stærk Trang til Oplysning paa egen Haand har erhvervet sig ret omfattende Kundskaber paa for- skellige Felter. Dansk fik han Begyndelsesgrundene i hos en Vandrelærer, som kom i Barn- domshjemmet et par Vintre, men i Forsættelsen maatte han klare sig selv. Udtalen lærte han af danske Sömænd og af Rei- sende, der tog Natteherberge paa hans Gaard. Afhandlingen her er skrevet af ham selv paa Dansk, og kun mindre Rettelser er foreatget."1) Svo sem vænta mátti, voru Birni falin mörg trúnaðarstörf, bæði af sveitungum sínum og því opinberá. Hann var hreppstjóri Keldhverfinga í nær 30 ár, sat í hreppsnefnd og sáttanefnd, var sýslunefndarmaður og end- urskoðandi sýslureikninga, átti sæti í yfirskattanefnd og jarða- matsnefnd og var deildarstjóri Keldunessdeildar í Kaupfélagi Þingeyinga í mörg ár. Hann stjói^iaði sauðfjárböðunum við útrýmingu fjárkláðans og ferð- aðist í tvo vetur um Vesturland sem eftirlitsmaður fyrir Mykle- stad, vegna fjárkláðans. Hann var með þeim fremstu við stofn- un bindindisfélags, ungmennafé- lags og sparisjóðs Keldhverfinga og sat í stjórn sumra þessara stofnana. Gleðimaður var Björn mikill og góður heim að sækja. Hafði hann jafnan einhverjar skrltlur eða gamansögur á reiðum hönd- um og sagði þær vel og af mik- illi frásagnargleði. Áttu því margir skemmtilegar stundir á heimili hans, og eins í návist hans utan heimilis. Björn var mjög barngóður og !) Lausleg þýðing: „Hann hefur aldrei gengið í skóla, en naut kennslu í heimahús- um í æsku, eins og allir íslenzkir bændur af eldri kynslóðinni. Tók og þátt í öllum daglegum störfum. Hann heyrir til þeirri kynslóð og einkennum hennar, sem því miður er nú að hverfa, hygginn, sjálflærður maður, sem er bundinn sterkum taugum við gamla íslenzka menningu og hefur vegna þess haft ríka löngun til sjálfs- fræðslu á ýmsum sviðum. Undirstöðukunn- áttu í dönsku fékk hann hjá farkennara, sem kom í tvo vetur á æskuheimili hans, en eftir það varð hann að læra án til- sagnar. Framburð lærði hann af dönskum sjómönnum og ferðamönnum, sem gistu á heimili hans. Grein þá, er hér birtist, hef- ur hann skrifað sjálfur á dönsku og hefur ekki þurft að leiðrétta hana nema á ein- staka stað.“

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.