Heima er bezt - 01.09.1955, Blaðsíða 26

Heima er bezt - 01.09.1955, Blaðsíða 26
282 Heima er bezt Nr. SJ 13. Tunga, var mesta og stærsta jörðin í Stíflu, átti engjaland allt frá landamerkjum Hrings og Tungu niður að Stífluá og norður að Stífluhól- um, nema tvær engjaspildur, er Háakot átti, aðra austan Gauta- staðavatns, niður að Stífluá, að vestan, og hina sunnan við landamerki Þorgautsstaða. Eftir 1914 lögðust Þorgauts- staðir undir Tungu. Gömul ör- nefni á Tungudal benda til þess að Tungubændur hafi haft þar í seli, að fornum sið, og líklega beitarhús, samanber örnefnin Seltóttir, Selhóll, Sellækur, Sel- skál eða Seldalur, Húsatóttir, Húsalækur. Tunga missti allar engjar undir vatn og nokkuð af túninu, og samanstendur nú af því litla sem eftir er af Hring, Háakoti og Þorgautsstöðum, en þessar jarðir misstu líka allar engjar og mikinn hluta túna undir vatn, svo Tunga er nú ekki nema smákot hjá því sem hún var áður. 14. Þorgautsstaðir, voru mikil engjajörð, og þar brást aldrei góð grasspretta, allar þessar grösugu engjar liggja nú undir vatni og hálft túnið. Þorgauts- staðir fóru í eyði 1914, og jörðin þá lögð undir Tungu. Síðasti á- búandi þar var Páll Björnsson frá Skeiði. 15. Gautastaðir, misstu meiri hluta túns og engja undir vatn, var áður góð heyskaparjör?;. Þar býr nú Jóhannes Bogason frá Stóru-Þverá. Það er ekki laust við að gamlir Stíflubúar finni til sársauka, að sjá þessar fögru engjar og tún yfirflotin vatni, og einnig þeir, sem nú búa á Siglufirði, og njóta birtu og yls og annarra lífsþæg- inda frá Skeiðsfossvirkjuninni, finna til sömu kendar. Nokkur ummœli um Stíflu l Ijóði og lausu máli. Spretta fíflar fróni á, fæst þvi ríflegt heyið. Ó, hvað líflegt er að sjá ofan í Stíflu greyið. Sennilega er þessi staka kveð- in á innri brún Stífluhóla. Vísan er eignuð Páli Pálssyni, syni séra Páls Tómassonar á Knappstöð- um. Líklega hefur sá er kvað þessa visu verið á leið yfir Stífluhóla, bæirnir sem nefndir eru, blasa við þaðan: Rýkur í Tungu, rýkur á Haug, rýkur í Háakoti. Rýkur Stíflan rétt um kring, rýkur í hverju skoti. Höf. ókunnur. Benedikt Guðmundsson frá Húsavík lét svo ummælt: „Stífla í Fljótum og Vatnsdalur í Húna- vatnssýslu væru þeir fegurstu staðir, sem hann hafi séð.“ Jón Helgason prentari segir í Endurminningum frá ferðalagi vestur og norður um land haust- ið 1927: „Mér þykir Fljótin fög- ur sveit, og trúað gæti ég því að hrífandi fagurt væri að líta yfir Stífluna af Stifluhólum á fögr- um vormorgni, alt er vafið grasi, má segja upp í háfjöll." Heimilisblaðið, 17. árg. ’28. Theódór Pálsson Siglufirði lét svo um mælt, þegar hann kom í fvrsta sinn á Bröttubrekku í Stífluhólum og leit þaðan yfir Stífluna: , Þetta er það falleg- asta sem ég hef séð.“ Það fallegasta, sem ort hefur verið um Stíflu, er hið gullfagra kvæði Sigursteins Magnússonar í bók hans: „Ég elska þig jörð“. Það kvæði hygg ég að hver Stíflubúi vildi kveðið hafa. Hér hefst kvæðið: Stífla í Fljótum eftir Skeiðs- virkjun. Stíflan mín góða, svo stolt, en þó smá með straumvötnin bláu og fjöllin þin há, hvar er sú fegurð, er forðum ég leit? Ég finn þig ei lengur — ó, blessaða sveit. Hvar eru bakkar með bylgjandi sef, bugðótta áin með vikur og nef? Og hvar er nú gengið í Tungu og tjörn með taumandarhjónin og öll þeirra börn. Og reiðgötur þínar með rjúkandi mold, þá riðullinn þeysti, svo dundi við fold, og fólkið, sem hér var svo vökult og kátt á víðlendum engjum við rakstur og slátt? Og hvar eru hólmar með himbrim og lóm, hávaxinn víði og angandi blóm? Og hvar er svanir, er sungu þér ljóð, er sólin var hnigin að vestrinu rjóð? Já, hvar er allt land þitt og lifandi skraut, lífið, er óx þér við móðurlegt skaut? Yfir þér gárast nú ólgandi haf. — Allt er það — allt er það horfið í kaf. Ég stend uppi á hólunum hátt eins og fyr, horfi yfir landið og undrandi spyr:: Hver getur borið þá hyldjúpu sekt að hafa þér lifandi í vatnsflóði drekkt? Já, hver getur borið þá hyldjúpu sekt og hulið þá eyðing og sorglegu nekt? Þú fegursta byggðin, sem fyrri ég leit, varðst fórnardýr mannanna — blessaða sveit. Þitt hlutverk er mikið og mörgum í vil, að miðla í kuldanum birtu og yl. Þinn gjafmildi kraftur frá gróandi jörð fer geislandi lífi um dali og fjörð. — Stíflan mín góða, þú blessaða byggð með býlin þín smáu og mannanna tryggð, ég ber til þin hlýju og blessa þig þó að breyti þér tæknin í hyldjúpan sjó. Þjóðtrú og pjóðsagnir. í Stíflu, eins og í öðrum sveit- um, lifðu margskonar sögur og sagnir í minni fólksins. Þessar sagnir gengu frá manni til manns, og frá kynslóð til kyn-

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.