Heima er bezt - 01.09.1955, Blaðsíða 16

Heima er bezt - 01.09.1955, Blaðsíða 16
272 Heima er bezt Nr. 9 Kolbeinn Guðmundsson frá Úlfljótsvatni: Bíldsfell og bændur þar Síðari grein Jón Ögmundsson var fæddur 29. desember 1833. Foreldrar hans voru Ögmundur Jónsson og Elín Þorláksdóttir á Bíldsfelli. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum og var hjá þeim þar til hann giftist Þjóðbjörgu Ingi- mundardóttur frá Króki, árið 1864. Þau byrjuðu þá búskap á Torfastöðum og bjuggu þar í tvö ár. En árið 1866 fluttu þau að Bíldsfelli sem þá losnaði úr á- búð. Ögmundur, faðir Jóns, and- aðist þann vetur og Elín ekkja hans ,móðir Jóns, vildi hætta búskap og fá Jón son sinn til þess að taka jörðina. Hún hefir án efa treyst honum bezt af son- um sínum til þess að halda uppi myndar búskap á ættaróðalinu. Hann var sá eini af bræðrunum, sem hafði meiri fræðslu notið en hún gat veitt börnum sínum. Hann hafði verið um tíma til náms á Mosfelli hjá séra Hall- dóri. En hann var tengdur Bílds- fellsættinni. Kona séra Halldórs var Anna Jónsdóttir frá Bílds- felli, systir Ögmundar á Bílds- felli. Anna var áður gift séra Jóni Jónssyni á Klausturhólum. Með honum átti hún son, Jón Jónsson, sem prestur varð á Mosfelli eftir Halldór stjúpa sinn. Hann var fjórum árum eldri en Jón Ögmundsson. Ekki veit ég hvað Jón Ögmundsson var lengi við nám á Mosfelli. En nokkuð hefir það verið, því að hann tók jafnöldrum sínum fram í ýmsu er kunnáttu snerti, bæði í reikningi og réttritun. Auk þess skrifaði hann prýði- lega rithönd. Árið 1866 var Magnús Gíslason bóndi á Vill- ingavatni, hreppstjóri í Grafn- ingshreppi og hafði verið það í 8 ár. Var hann orðinn þreyttur á þeim starfa, þó að hann væri þá ekki nema rúmlega fimmtug- ur að aldri. Umstangið og erj- urnar út af fjárkláðanum höfðu þreytt hann svo, að hann vildi losna við hreppsstjórnina. Kom hann því þá til leiðar að Jón Ög- mundsson á Bfldsfelli var skip- aður hreppstjóri 1867. Því embætti hélt hann þar til hann fór frá Bíldsfelli til Ameríku ár- ið 1887. Þá er sveitarstjórnarlög- unum var breytt árið 1872 og hreppsnefndin kom til sögunn- ar, varð hann hreppsnefndar- oddviti líka. Hélt hann þessum störfum báðum þangað til að hann fór af landi burt. Það var nú eins og gengur með þá menn, sem hafa opinber störf á hendi, að ýmislegt er að þeim fundið og þeir geta ekki verið að öllu leyti eins og allir vilja, eða eins og öllum líkar. Helzt var það, sem að honum var fundið, að hann væri ekki nógu röggsamur, og ekki nógu harður af sér, hvorki út á við né innan hrepps. En enginn grunaði hann um óhreina reikninga eða fjárdrátt. Yfir höfuð var Jón vinsæll, og marg- ir leituðu til hans með vandamál sín, eða ef þá vanhagaði um eitt- hvað. Leysti hann jafnan úr því á einhvern hátt og flestir fóru ánægðir af hans fundi. Það var einkum einn bóndi í hreppnum, sem var erfiður Jóni. Aðallega var það út af því, að honum þótti útsvar sitt alltof hátt, sam- anborið við aðra bændur í hreppnum. Hann hét Ófeigur Vigfússon og bjó í Nesjum, vel efnaður, talinn með efnuðustu bændum sveitarinnar og dreng- ur góður, en hafði að ýmsu leyti stirða skapgerð. Hann ýmist neitaði að greiða sveitarútsvar sitt, eða kvaðst vera búinn að greiða það að fullu, þegar odd- viti sagði, að svo og svo mikið væri ógreitt. Oft urðu stefnur og minni háttar málaferli út úr þessu á milli þeirra, en jafnan varð Ófeigur undir í þeirri við- ureign. Hið síðasta þessara mála var það, að haustið 1886 skrifar Ófeigur oddvita (Jóni Ögmunds- syni) bréf, og kvartar undan því, að fjallleitarmenn hefðu kastað grjóti á slægjubletti sína svo að skemmdir hefðu af hlot- izt. Þessi spjöll áleit Ófeigur, að oddviti ætti að bæta, líklega úr sveitarsjóði — og á þeim for- sendum heldur hann eftir 35 krónum af útsvari sínu. Þetta vildi Jón á Bildsfelli ekki taka til greina. — Og þótti það ekki ná nokkurri átt. En Ófeigur sat við sinn keip og borgaði ekki. Eitthvað fleira bar Ófeigur fyr- ir, sem ég man nú ekki hvað var. En það var eitthvað álíka veigamikið, og grjótkastið á slægjublettina. Þetta fór í mál. Fyrst var sáttafundur, eins og löglegt er, en af sættum varð ekkert. Báðum fannst þeir vera í fullum rétti, svo að málamiðl- un kæmi ekki til greina. Málinu var því vísað til dómstólanna. Þá var sýslumaður í Árnes- sýslu Stefán Bjarnason. Hann setti rétt í málinu í april 1887, á Bíldsfelli. Þar var Ófeigur mætt- ur og hafði hann mann með sér til þess að verja málstað sinn. En Jón Ögmundsson oddviti, sótti málið — Verjandi Ófeigs var Guðmundur Magnússon bóndi í Elliðakoti í Mosfellssveit. — Stuttu síðar kvað sýslumað- ur upp dóm í málinu. Dæmdi hann Ófeig til að greiða skuld sína að fullu og verjanda hans í 4 kr. sekt fyrir óvirðulegt orð- bragð fyrir réttinum. Dómi þess- um áfrýjaði Ófeigur ekki, en greiddi skuld sína samkvæmt dómi héraðsdómara. Ég heyrði haft eftir Ófeigi, að vonir hans hefðu brugðist í þessu máli. Hann hefði haldið að undir þvi væri mest komið, þegar verja ætti mál áður dæmt væri, að verjandinn væri sem harðastur og sparaði ekki stóryrði. Þannig lauk viðskiptum þeirra Jóns og Ófeigs. Jón fór þetta vor til Ameríku og kom aldrei til ís-

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.