Heima er bezt - 01.09.1955, Síða 20

Heima er bezt - 01.09.1955, Síða 20
276 Heima er bezt Nr. 9 Eiríkur Krístófersson. Þá er upp kom, gat að líta fjölda manns á þilfarinu, bæði konur og karla. Þetta var þreklegt og fremur myndarlegt fólk, búið þykkum og skjólgóðum vað- málsfötum. Stýrimaður fór rakleitt upp á stjórnpall. Þar hitti hann skip- stjórann, sem heilsaði vingjarn- lega og virtist mjög áhyggjufull- ur. Hann skildi ekki ensku og kvaddi til loftskeytamanninn. Það var ung stúlka. Hún skildi ensku og talaði hana sæmilega, en þó stirðlega. Stýrimaður tjáði henni, að skipið mætti ekki vera innan landhelgi nema í brýnni nauðsyn og þá ekki nema takmarkaðan tíma — og alls ekki með nótabát í eftirdragi. Stúlkan túlkaði fyrir skipstjóra, og síðan tuldraði hann langa romsu, sem stúlkan hlýddi á með athygli og túlkaði síðan á ensku. Hún kvað eitt af síld- veiðaskipunum rússnesku hafa orðið fyrir vélbilun, og hefði móðurskipið dregið það í land- var, svo að það gæti legið fyrir akkeri, meðan gert væri við vél- ina. Stýrimaður kallaði til skipherrans á Faxaborg og skýrði honum frá málavöxtum. Væri hvorki verið að vinna að netabætingu né síldarsöltun á þiljum móðurskipsins — og í nótabátnum væri engin nót. Skipherra úrskurðaði, að skip- inu skyldi sleppt og fól stýri- manni að veita skipstjóranum áminningu. Stýrimaður vék sér að þeim rússneska, sagði á ensku, að hann gæti farið frjáls ferða sinna og áminnti hann um að gæta þess í öllum atriðum að brjóta ekki landhelgislögin. Stúlkan túlkaði, og skipstjórinn brást glaður við, þreif í hönd stýrimanns og hristi hana mjög broshýr. Síðan kvaddi stýrimað- ur og fór yfir í varðbátinn. Nú var haldið inn með aust- anverðu Langanesi. Þar lá fyrir akkerum, stutt undan landi, lítið norskt gufuskip, sem stund- aði síldveiðar. Bátur frá því hafði lent í vogi einum, og voru nokkrir skipverjar í fjöru. Skip- herrann á Faxaborg lét skjóta út báti, og var róið með fyrsta stýrimann yfir að síldveiðaskip- inu. Stýrimaður fór upp og spurði skipstjóra, hverju það sætti, að hann hefði sent bát i land. Skipstjóri kvaðst hafa sent eftir vatni. Stýrimaður spurði, hvort hann hefði haft samband við yfirvöld í löglegri höfn og fengið stimpluð skips- skjölin. Jú, sá norski kvaðst hafa komið á Siglufjörð, læknir stigið á skipsfjöl og lögreglu- stjóri séð skipsskjölin og stimpl- að þau. Stýrimaður gekk úr skugga um, að skipstjóri sagði þetta satt, en spurði hann síðan, hvort honum væri það ekki kunnugt, að hann mætti lögum samkvæmt aðeins taka vatn og vistir í þremur íslenzkum höfn- um, Seyðisfirði, Akureyri og Siglufirði. Skipstjóri kvaðst ekki geta neitað, að sér væri kunnugt um þetta ákvæði. „En það er langt til Seyðis- fjarðar og ennþá lengra til Siglufjarðar,“ sagði hann. Fyrsti stýrimaður kvað vera enn lengra til Noregs. Hann vék sér síðan frá skipstjóranum og kallaðist á við Þórarin skip- herra, sagði honum málavöxtu. „Við látum duga áminningu,“ mælti Þórarinn. Stýrimaður sneri sér síðan aftur að skipstjóranum norska, kvað hann mundu sleppa í þetta sinn með áminningu um lög- hlýðni, og vonandi kæmi ekki til þess, að hann bryti af sér á ný, því að þá slyppi hann ekki við að skreppa spölkorn í fylgd með varðskipinu. Norðmaðurinn var mjúkur á manninn, og þó að kveðjur stýrimanns væru stuttaralegar, tók sá norski mjög kurteislega undir. Varðbáturinn hélt lengra inn með landinu og lagðist við akk- eri fram undan Skálum. Annar stýrimaður kom á vörð klukkan fjögur um nóttina. Klukkan langt gengin fimm kallaði islenzkur síldveiðaskip- stjóri í talstöðina og sagði fullt af rússneskum síldveiðaskipum innan landhelgislínunnar á miðjum Bakkafirði. Stýrimaður vakti skipherra, og hann skipaði svo fyrir, að öll skipshöfnin skyldi kvödd til starfa. Skip- herra fór síðan á fætur í hasti og hafði tal af skipstjóranum íslenzka. Hann kvað mörg ís- lenzk og rússnesk skip að veið- um úti á firðinum, sum innan landhelgi og önnur utan. Skip- herra kvað varðbátinn mundu koma á vettvang eins skjótt og unnt væri, og síldveiðaskipstjór- inn sagði, að hann og fleiri mundu slá hring um Rússana á skipum sínum, fara í veg fyrir þá og sporna við því, að þeir slyppu. Akkerum var létt í skyndi og vélin síðan látin taka á því, sem hún átti til. Það var orðið bjart af degi, veður hlýtt og stillt og sjórinn sléttur. Úti á firðinum var fjöldi skipa. Rússamir reyndu að hraða sér að draga næturnar, og íslenzku skipin voru á kreiki í kringum þau rússnesku. Nótin flæktist saman hjá einum Rússanum, en annar kom aðvífandi, setti dráttartaug í nótina hjá félaga sínum og reyndi að draga hana í sundur með afli vélarinnar. Skipstjóri frá Siglufirði var þarna mjög nærri á skipi sínu, og tók hann mynd af þessari hjálparstarf- semi. Varðbáturinn nálgaðist óðum skipaþvöguna, og þá er hann var kominn að henni, rýmdu íslenzku skipin fyrir honum. Brátt kom hann þar að, sem eitt rússneska skipið var að draga inn nót sína. Það hét Zenil, og einkennisstafir þess voru PC 11. Þegar Faxaborgin var að koma að þessu skipi, mældu skipherra og fyrsti stýri- maður stað þess, og mældist það 1.3 sjómílur innan við landhelg-

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.