Heima er bezt - 01.09.1955, Side 21

Heima er bezt - 01.09.1955, Side 21
Nr. 9 Heima er bezt' 277 islínuna. Rennt var fram með hlið skipsins, og annar stýri- maður varðbátsins og einn há- setinn stukku yfir í höfuðböndin á framsiglunni. Hafði annar stýrimaður skammbyssu að vopni. Faxaborgin hélt áfram á fullri ferð og stefndi i veg fyrir annað skip þeirra Rússanna. hað hét Tuman og var merkt PC 8. Þetta skip hafði þegar náð inn nótinni og stefndi nú á fullri ferð til hafs. Jóhann Andrésson stóð við fallbyssuna, og var skotið púðurskoti á Tu- man. En skipstjórinn lét sér ekki segjast. Aftur var skotið púðri, en árangurslaust. Þarna var svo margt af skipum, að nokkur áhætta var að skjóta kúluskoti á sökudólginn, en skipherrann treysti vel skytt- unni og þótti hart að láta Rúss- ann undan draga. Hann skipaði því að skjóta kúlu. Jóhann mið- aði, og kúlan kom niður fimm sex metrum fyrir framan stefni Tumans og þeytti upp háum vatnsstrók. Þetta var sannar- lega vel skotið. Og Rússinn nam þegar staðar. Varðbátnum var rennt upp að hliðinni á Tuman, og því næst mælt, hvar hann væri staddur. Mælingarnar sýndú, að hann var eina sjómílu innan við fiskveiðatakmörkin. Fyrsti stýri- maður stökk því næst yfir í skipið, ásamt tveimur hásetum. Var annar þeirra Jóhann And- résson, og var hann vopnaður þeim eina riffli, sem til var í vopnabirgðum þessa islenzka varðskips, en birgðirnar voru, auk riffilsins, tvær skammbyss- ur, og önnur þeirra var nú í höndum annars stýrimanns, en hin var hvergi finnanleg. Skipstjórinn á Tuman var frekar ungur maður. Hann kunni ekki ensku, en fyrsti stýrimaður á varðskipinu gerði honum skilj - anlegt með blýantsteikningum og bendingum, að hann hefði brotið landhelgislögin. Þá krafðist hann þess, einnig með táknum og bendingum, að skip- stjóri afhenti honum skjöl skips- ins. Skipstjóranum varð mikið um, en þá er stýrimaður hafði gert honum skiljanlegt, að ann- ar rússneskur skipstjóri væri undir sömu sök seldur og vörður verið settur í skip hans, var auð- sætt, að honum hægðist mjög mikið, og sótti hann skipsskjöl- in í skyndi og afhenti þau. Stýri- maður fór síðan yfir í varðbát- inn og hafði fyrsta stýrimann af Tuman með sér sem gisl, en skildi eftir hásetana, vopnaða rifflinum. Enn var varðbáturinn knúinn áfram eins hratt og unt var og stefnt að þriðja rússneska veiði- skipinu. Þegar Faxaborgin skreið fram með hliðinni á því, var skipshöfnin að ljúka við að tæma nótina. Þetta skip hét Wolna, og voru einkennisbók- stafirnir PC 4. Mælingar sýndu, að skipið var einn þriðja úr sjó- mílu innan við landhelgislínu. Fyrsti stýrimaður varðskipsins fór vopnlaus yfir til Rússanna, þar eð skammbyssan, sem til átti að vera, hafði ekki ennþá komið í leitirnar. Hann hitti skipstjórann, geðþekkan og stillilegan mann, og skýrði fyrir honum með teikningum og handapati, að hann væri sekur um landhelgisbrot, samkvæmt mælingum yfirmanna varðbáts- ins. Skipstjóri sótti sjókort, sem var ærið blakkt og ógreinilegt, og var auðsætt, að hann vildi gera stýrimanni það skiljanlegt, að hann hefði haldið landhelg- islínuna þannig dregna, að hann hefði talið sig utari við landhelg- ina. Stýrimaður hristi höfuðið og gaf í skyn á sínu táknmáli, að hann vildi fá skipsskjölin í sínar hendur. Skipstjórinn skildi hann, sótti skjölin og lét þau af hendi. Meðan þessu fór fram, hafði skipherrann á Faxaborg leyst þann vanda, hverja skyldi skipa verði íslenzkrar réttvísi á veiði- skipinu Wolna, sem á var sextán vaskra manna skipshöfn. Annar stýrimaður og allir hásetarnir voru þegar komnir á vörð, vopn- aðir þeim tveimur byssum, sem finnanlegar voru í Faxaborginni. Eftir voru, auk skipherra og fyrsta stýrimanns, vélstjórarnir tveir og matsveinninn. Skip- herra sá ekki annað ráð vænna en senda tvo af þessum mönn- um á vörð í Wolna — og það með öllu vopnlausa. Hann orð- aði við matsveininn, hvort hann mundi fáanlegur til að yfirgefa potta og pönnur og standa vörð fyrir föðurlandið. Matsveinninn var að Ijúka við að búa til tví- réttaðan sunnudagsmat, sem hann taldi hafa lánazt sérlega vel, og var fullur bjartsýni, sjálfstrausts og fórnarlundar. „Velkomið, skipherra,“ sagði hann, „að ég taki að mér að vagta þessa rússnesku fugla.“ Þá sneri skipherra máli sínu til vélstjóranna, og annar vél- stjóri kvaðst fús til að taka á sig ábyrgðina með jafn ágætum manni og matsveinninn væri. „Það held ég,“ sagði hann. „Manni ætti að vera óhætt, vit- andi fyrsta stýrimann reiðubú- inn til að meðhöndla fallstykk- in, ef Rússinn kynni eitthvað að fara að steyta sig!“ Þeir bjuggu sig síðan til brott- farar, stigu yfir á þiljur hins rússneska veiðiskips, alvarlegir á svip og auðsjáanlega sér fylli- lega meðvitandi þess trúnaðar, sem þeir urðu aðnjótandi, og þeirrar ábyrgðar, er á þeim hvíldi, — en fyrsti stýrimaður fór yfir í varðbátinn og tók sem gísl fyrsta stýrimann af Wolna. Nú tilkynntu íslenzk veiðiskip, að rússneska skipið Burna, ein- kennt með stöfunum PC 14, það hið sama og hjálpað hefði Wolna við að draga sundur nótina, stefndi til hafs og hyggðist forða sér úr klóm íslenzkrar réttvísi. Vélin í Faxaborg var ennþá einu sinni látin taka á öllu, sem hún hafði til, og knúði hún skipið um lygnan sjóinn með níu mílna hraða. Þarna var enn margt skipa, og hefði ekki verið alls kostar auðvelt að átta sig á því, í fyrstu, hvar Burna færi, ef ekki hefði siglt á eftir henni siglfirzkt veiðiskip og haft fána við hún. Það kom síð- ar upp úr dúrnum, að rússnesku skipin gátu siglt með fjórtán mílna hraða, en skriðurinn á Burna var ekki meiri en svo, að brátt tók Faxaborgin að draga á hana, og áður en langt leið, var gerlegt að senda henni skot- kveðjur. Var þá öll áhöfnin á Faxaborginni sannarlega önnum kafin. Skipherra stóð við stjórn, fyrsti vélstjóri gætti vélarinnar, og fyrsti stýrimaður stóð í stafni og hlóð og skaut. Fyrst var skotið

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.