Heima er bezt - 01.12.1955, Síða 4

Heima er bezt - 01.12.1955, Síða 4
356 Heima er bezt Nr. 12 Ilún greip föstum tökum i faxið — það á hestum austur á Djúpa- vog, því þá var ekki komin verzl- un á Papós. Ekkert tún var í Eskifelli og engar engjar. Aaðalundirstaðan undir lífvænlegri afkomu þarna var því ekki fyrir hendi. Skil- yrðin fyrir lífsafkomu þarna varð hann sjálfur að finna eða búa þau til. Hann varð því að leita að slægjublettum, hingað og þangað um afréttinn, eða reyna að fá engjabletti leigða niðri í sveitinni. Vegna fjarlægð- ar mun hann þó hafa gert lítið að því að fá engi leigt í sveit- inni, því hann átti aðeins einn hest til að byrja með, sem hann notaði til aðdrátta. Kýr var eng- in. Hann mun því hafa treyst á fjáreign og útbeitina. Það mun hafa verið fyrsta ár- ið, sem þau voru í Eskifelli, að húsfreyjan fór um haustið aust- ur á Djúpavog að sækja vetrar- forða í hið nýstofnaða bú að Eskifelli. í þessari ferð var hún með einn hest brúnan, hinn mesta stólpagrip. Ekki er þess getið, hvort hún var samferða nokkrum manni, eða ein yfir Lónsheiði. En ein kom hún að Stafafelli að áliðnum degi gang- andi og teymdi klyfjahest. Jök- ulsá rennur þar skammt frá bænum og spurði hún um vað á ánni, eða hvar mundi vera að finna bezta brotið á henni. Hún hafði verið gangandi alla leið frá Djúpavogi og vaðið allar ár á þeirri leið og stuðzt við hest- inn. Henni var sagt, að áin væri í vexti og alveg ófær, bæði fyrir gangandi menn og hesta. Ekki var hún ánægð með þær fréttir, sem hún fékk af ánni. Kvaðst hún þurfa að sjá þetta með eig- in augum. Hún hélt því að ánni og þegar þangað kom, sá hún strax, að áin var ófær. Hér var úr vöndu að ráða. Hún óttaðist, að maður hennar og dóttir mundu verða hrædd um sig og hann mundi leggja af stað að leita sín, en mikill háski á leið hans, þar sem hann var hest- laus, en áin ófær. Eftir nokkra umhugsun hélt hún að ánni, þar sem sund yfir hana virtist stytzt. Þar teymdi hún brúna stólpagripinn út í, hvatti hann til átaka, en dró sig svo aftur með honum og greip föstum tök- um í fax hans og lét hann synda yfir ána, með klyfjunum og hana hangandi í faxinu. Þó að ótrú- legt megi virðast, synti hestur- inn yfir jökulsána með húsfreyj- una og klyfjarnar ( vetrarforð- ann), og hún komst heim um kvöldið eða nóttina. Þegar sókn- in, snertandi lífsafkomu manna, var hörð, eins og á þeim árum, fannst mönnum ekki mikið koma til smáafreka og dirfsku, en þetta afrek húsfreyjunnar lifði þó í minnum manna. Það, sem því olli, að húsfreyj- an fór ein og gangandi austur yfir Lónsheiði, með hest í taumi, er hausta tók, til að sækja vetrarforðann, var, að bóndi hennar, Jón Markússon, var önnum kafinn að búa ný- býlið undir veturinn, en þar inni á afrétti leggst hann fyrr að en niðri í sveitinni. Það þurfti að ditta að lítilli baðstofu, illa byggðri, sem hrófað var upp í flýti og af miklum vanefnum, svo að líft yrði þar inni, er vet- ur gengi í garð. Eldhús varð að byggja, því að ekki hafði unnizt tími til að byggja það um vorið, áður en sláttur byrjaði. Um sumarið hafði því verið eldað á útihlóðum. Þá voru í sveitum engin önnur eldstæði til en hlóð- ir. Þær voru þrír steinar, er til þess þóttu fallnir, og þurftu helst vanar húsmæður eða elda- buskur að velja þá. Ofan á þessa steina var potturinn eða ketill- inn settur. Á milli steinanna var eldholið og þar kynt undir með sverði, hris eða rekaspýtum, ef þær voru fyrir hendi, og þurru kúataði og skán úr fjárhúsum. Þá var víða sá áburður látinn nægja á túnið að þurka á því kúataðið og sauðataðið. Hrossa- tað var hins vegar mulið ofan í túnin. Annar umbúnaður í eld- húsi var einnig til. Það var hóg- urinn. Hann var kaðalspotti, hæfilega langur eftir hæð eld- hússins. í hvorum enda kaðal- spottans var krókur úr járni. Var öðrum krækt í keng á þver- slá uppi í rjáfri á eldhúsinu, en hinum í potthölduna. Spottinn á milli krókanna í hógnum var nefnt hógband. Hógurinn mátti ekki vera lengri en það, að pott- urinn næmi við hlóðarsteinana. En það þurfti nú að byggja fleira á nýbýlinu en eldhús. Ekkert fjárhús var til, enginn lambakofi og ekkert hesthús. Þessu varð Jón Markússon, þá einyrki, að koma upp, áður en frostin komu. Hins vegar þurfti hann á engu fjósi að halda, því að engin var kýrin. Og það fór mikið orð af því, hvað hann var duglegur og afkastamikill. Þeg- ar ég sá Jón, áttatíu og eins árs gamlan, var hann orðinn dálít- ið lotinn í herðum. Annars var hann mikill vexti, hár og herða- breiður og að öllu vel vaxinn. Harður þótti hann í horn að taka, hlífði sér aldrei og vildi ekki, að aðrir gerðu það heldur. Var hann því talinn nokkuð vinnuharður. Hins vegar var hann geðgóður, óáleitinn og friðsamur. Hann leið enga ó- reglu, en þótti góður húsbóndi og réttlátur í hugsunarhætti. Jón Markússon bjó í níu ár á nýbýlinu Eskifelli. Þótti hann sýna mikinn dugnað, er hann

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.