Heima er bezt - 01.12.1955, Síða 6

Heima er bezt - 01.12.1955, Síða 6
358 Heima er bezt Nr. 12 aS þarna. Þegar Valgerður, kona Jóns, varð þess vör, að Sigurveig vinnukona hennar ætti að hverfa af heimilinu eftir barns- burðinn, taldi hún það með öllu óþarft og sagði við mann sinn, að hún mætti vera kyrr á heim- ilinu. Hún þyrfti á vinnukon- unni að halda og hann víst líka. Drenginn gætu þau þrjú átt í félagi og annast uppeldi hans. En þrátt fyrir þetta drengilega og göfuglynda tilboð hinnar mikilhæfu húsfreyju hvarf þó vinnukonan Sigurveig burtu af heimilinu. Var það vegna þess, að sóknarpresturinn skarst í leikinn og krafðist þess, að hún yrði ekki lengur samvistum við barnsföður sinn. Þótti honum það ekki sæma og vildi ekki að slíkt fordæmi yrði liðið í sókn- inni. Tók þá húsfreyjan að öllu leyti að sér uppeldi framhjátöku- barnsins og ól drenginn upp og sýndi honum eins mikið ástríki eins og ætti hún í honum hvert bein. Vann hún þá einnig hylli sveinsins og sonarlega ást og ræktarsemi, sem væri hún móð- ir hans. Eiríkur, sonur Jóns Markús- sonar, tók við búsforráðum í Hlíð, er faðir hans eltist, og giftist 1874 Guðbjörgu Jónsdótt- ur. Átti hann með henni tvær dætur, Valgerði Mekkínu og Mekkínu Valgerði. Bera nöfnin vott um þá ástúð, sem Eiríkur bar til fóstru sinnar. Konuna missti Eiríkur, er dætumar voru ungar. Giftist hann þá i annað sinn Sigríði Bjarnadóttur frá Viðfirði, hinni mestu myndar- konu. Fóru þar saman dugnaður, gáfur og búhyggindi, er var arf- ur merkrar ættar. Afkomendur þeirra eru margir á lífi og allt er það myndarlegt og vel gefið fólk. Eiríkur Jónsson í Hlíð var með merkustu bændum í Austur- Skaftafellssýslu og velmetinn. Séra Jón Jónsson prófastur að Stafafelli mat hann mikils. Gat hann þess við mig, að sýslu- nefnd Austur-Skaftafellssýslu hefði trúað honum tll þess að hafa umsjón á hendl um samn- ingu og prentun markaskrár fyr- ir sýsluna. Leysti hann það starf af hendi með prýði, þó að hann væri ekki til mennta settur og hefði aldrei á skólabekk setið. Seinna seldi hann jörðina Hlíð og keypti í staðinn Papey, sem þá var í miklu áliti, og bjó þar til æviloka. Séra Jóni prófasti Jónssyni, þá í Bjarnanesi, átti ég það að þakka, eins og margt fleira, að ég varð kennari í Lóni árið 1887, þá tvítugur að aldri. Ég var ráð- inn þar í sveitinni kennari til 6 mánaða og hafði í laun allan tímann kr. 25.00, eða rúmar 4 krónur á mánuði, auk húsnæðis, fæðis og þjónustu. Vildi þá svo til, að ég, algerlega óvanur kenn- ari, byrjaði kennsluna í Hlíð hjá því sæmdarfólki, sem ég hef nú að nokkru lýst. Mér þykir hlýða að geta um lítið atvik, er sýnir manndóm Jóns Markússonar, þegar hann var 81 árs. Bendir það til þess, hvað hann var, er lífskrafturinn og þrekið var mest. Árið 1889 var ég um sumarið við skurðgröft í Lóni með cand. theol. Sæmundi Eyjólfssyni. Búnaðarfélag íslands sendi hann austur um sveitir, alla leið aust- ur í Lón, til að leiðbeina bænd- um í búnaði. Hann var nefni- lega búfræðingur, áður en hann byrjaði að lesa guðfræði. Sæ- mundur var gáfaður maður, fróður um margt og skáldmælt- ur. Þá var það einn góðan veð- urdag, að maður kemur ríðandi til okkar að skurðinum og býð- ur okkur í brúðkaupsveizlu að Bæ I Lóni, er halda skyldi hinn 24. júlí þá um sumarið. Þarna var í boði óvænt skemmtun og varð það að samkomulagi að taka boðinu. Þá átti að gifta Sveinbjörgu Sigurðardóttur, Guðmundssonar bónda að Bæ og Ólaf Einarsson, sem átti þar einnig heima. Okkur var boðið með nokkurra daga fyrirvara. Þá breyttist dálítið háttsemi Sæmundar við skurðgröftinn. Hann stakk ávallt, en ég kast- aði hnausunum upp úr skurðin- um með kvísl, eða hlóð þeim. Á hverjum morgni dró hann egg skóflunnar á hverfisteini og sá um, að hún flugbiti. Honum kom vel að reyna ekki að óþörfu á líkamskraftana. Honum gekk því vel að stinga fyrir hnausunum. En eftir að okkur var boðið í veizluna, virtist hann um allt annað hugsa en skurðgröftinn. Hann stanzaði oft og virtist vera að hugsa sig um það, hvort hann ætti að leggja út í það að stinga fyrir næsta hnaus. Öðru hvoru datt hann til hálfs á skófluna. Ekki vissi ég þá, hverj u þetta sætti, en grunaði, að hann væri í djúpum hugleiðingum. Seinna fékk ég vitneskju um or- sökina. Þegar veizludagurinn rann upp, voru þar mættir flestir bændur sveitarinnar. Veizlan var því talsvert fjölmenn. Er setið var að borðum, stóð Sæ- mundur upp og kvaðst ætla að flytja stökur, sem sér hefðu dottið í hug, en kvæði gæti það ekki kallast. Hann flutti því næst þriggja erinda kvæði, er byrjaði þannig: „Hér er drukkin hjónaskál. Hér er glatt í ranni. Ástin tengir sál við sál, svanna tengir manni. Ungu hjónin alla tíð auðnan blómum krýni. Unaðssólin ár og síð ástarmild þeim skíni. Meira man ég ekki af brúð- kaupskvæðinu. En ég varð var við það, að ýmsir héldu, að Sæ- mundur væri talandi skáld, sem svo var kallað, og hefði ort þetta um leið og hann flutti kvæðið. Minntist ég nú þess, þegar hann var að detta á skófluna, um leið og hann stakk henni. Meðal veizlugesta þarna var Jón Markússon frá Hlíð, 81 árs að aldri, og Sveinn Bjarnason, bóndi í Volaseli, sonur séra Bjarna Sveinssonar, áður prests að Stafafelli í Lóni, en bróðir séra Jóns í Winnipeg, er var rit- stjóri Sameiningarinnar og meö- al mestu andans manna í presta- stétt. Sveinn var hversdagslega sérlega prúður maður, hæglátur og orðfár, eða fámáll, búmaður góður, gestrisinn og vinsæll. Hann var meðalmaður á hæð, en þrekinn og herðabreiður og var talinn með sterkustu mönn- um sveitarinnar um þær mund- ir. En fáleiki Sveins rann alveg af honum, ef hann neytti áfengra drykkja, og lék þá við hvern sinn fingur og þótti mjög skemmti- legur og hugkvæmur. Hann (Fratnh. á bls. 380)

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.