Heima er bezt - 01.12.1955, Síða 15

Heima er bezt - 01.12.1955, Síða 15
Nr. 12 Heima er bezt 367 hverntíma við fjárgæzlu í Lang- eyjunum, ásamt ungri stúlku, er María hét. Eitt sinn, að lok- inni smalamennsku að nætur- lagi, kastaði Svanborg fram þessum vísum, og má af þeim ráða, að hún hafi ekki kunnað illa við sig á Langeyjunum: Hættu nú að hóa, hjartablíða mey. Saman leggja lófa lengur þurfum ei. Inni er bezt að una, okkar hressa geð. Eftir andvökuna einhvers þurfum með. Máninn birtu bleika breiðir yfir grund. Stjörnuljósin leika ljúft um næturstund. Hér er sælt að sofa, sorg ei hjartað slær, í Langeyjarkofa öllum glaumi fjær. Júlíana Jónsdóttir, skáldkona frá Akureyjum, virðist ekki hafa kunnað eins vel við sig í Lón- inu í Bjarneyjum, ef marka má eftirfarandi vísu, sem mér er sagt, að hún hafi gert við fjár- gæslu þar: Leiðist mér í Lóni, lítið yndi finn. Hugurinn er heima, þó hér sé líkaminn. Það mun og sannast mála, að þetta hefur verið einhæft starf, og lífið í kofanum ekki skemmti- legt. — Svo getur viljað til, þeg- ar hafáttin er í algleymingi, að varla rofi til lofts um hádaginn, vegna úrhellisrigningar og sæ- löðurs er berst inn yfir eyjarnar. Brimið orgar á öllum boðum, og gelltir og gólar í hverri gjótu. Jafnvel grjótið í fjörunni fær mál og verður kvikt.—„Strand- mölin grýtir landið“, eins og E. Ben. segir. Þá er ekki lend- andi við úteyjar, og verður hver að búa að sínu, hvað sem í kann að skerast. Og þegar inn var komið í kofann frá nætursmöl- un, lýsti ekki af öðru en daufu grútarljósi eða kertisskari. — Þá var gott að geta gripið til þess, að segja barni sögu eða gera vísu. Konur gengu að þessum haustverkum vegna þess, að karlmenn flestir voru þá við haustróðra í veri, og þeir fáu, sem heima voru, uppteknir af ýmiskonar sjóferðum og ferða- lögum. Og þær konur voru til, er alls ekki voru ófúsar til þess verks. Þau hlunnindi fylgdu þessari úttivist, að konur áttu sjálfar þá vinnu er þær gátu unnið með fjárgæslunni, eða svo var það minnsta kosti á sumum heimilum. Þetta var einskonar sjálfsmennska. Og það þóttu ekki svo lítil fríðindi í þá daga, þegar frístundir voru stopular heimafyrir og sunnudagarnir stuttir. Og svo bar enn eitt til, sem hér má geta um til gamans. Þó undarlegt kunni að virð- ast, þá leiddist karlmönnunum einveran og myrkrið meira en kvenfólkinu. Svo virðist, sem þeir hafi verið skygnari á ýmis- konar forynjur og tröll en kvenfólkið, og þá suma gripið hræðsla við slíkar ókindur. — Júlíus Sigurðsson hefur lýst skrímsli, sem hann sá í Skjald- arey í Svefneyjalöndum, er hann eitt sinn var þar við fjár- gæslu. Það var stærra en hest- ur, gráskjöldótt að lit og skrölti í því við hverja hreyf- ingu, því það virtist gróið sæ- þörungum og skeljum. Fótspor, sem það markaði í sandinn, voru á stærð við botn á með- alstórri vatnsfötu. Ekki gerði það Júlíusi neitt, né unglings- dreng, er svaf í tjaldi hans, og var hann þó ekki nema tuttugu faðma frá því. Eftir að hafa snuddað dálitið um eyjua, sneri það aftur til sinna heimkynna. Ekki hafði það nein áhrif á Júlíus, og gætti hann fjárins í eyjunni eftir sem áður. En aðr- ir, sem urðu fyrir þeirri reynslu að sjá sjóskrímsli, ærðust nær þvi með öllu og gáfu fjandann í alla fjárpössun í óbyggðum eyjum. — Konur urðu aldrei fyrir ásókn skrímsla og fjöru- lalla, svo ég viti, — og má það merkilegt heita. Það fé, sem flutt var í út- eyjar, passað á þann hátt, sem að framan greinir, var venja að vitja um einu sinni í viku eða svo. Margur er kviks voð- inn, og góður bóndi vill jafnan vita hvað skepnunum sínum líður, þegar þær eru í afrétti. 4. Ekki er mótekja í Vestureyj- um. Eldiviðarferðir til lands, voru því fastur liður í haust- verkum bænda. Einkum var það mór, er var sóttur, til að drýgja með heimafengna eldiviðinn. í þær ferðir voru áttæringarnir notaðir strax að loknum land- ferðum. Mónum var komið fyrir í skut og barka skipanna, líkt og heyi. Móflögunum hlaðið í stakka, og svo hátt upp af söx- um hverju sinni, sem fært þótti vegna veðurs og annarra að- stæðna. Eins var farið með kurlið í flutningi, nema hvað óunnu hrísi var stundum raðað meðfram söxunum, og mátti þá hafa kurlstakkinn hærri en ella, ef gott var veður. — Þetta voru erfiðar ferðið og mann- frekar, vegna þess, að oftast þurfti að bera þennan eldivið á bakinu alllangan veg i skipin, og svo út úr þeim aftur, þegar komið var heim. Að loknum þessum ferðum, voru áttæringarnir settir í naust og hvolft, og þannig kúrðu þeir til landferða næsta vor. Minni skip og bátar voru notuð til flutninga og ferðalaga, það sem eftir var ársins. Útselurinn, sem verið hefur að sveima í firðinum sumarlangt, kæpir um mánaðarmótin sept- ember — október. Þá fara að sjást hvítir hnoðrar hér og þar í skerjagörðum Breiðafjarðar — það eru hinir fallegu útselskópar. Ekkert ungviði er fallegra, en vikugamall kópur í bæli sínu, meðan hann enn þekkir ekkert til víðáttu hafsins né vonsku mannanna. Augu hans eru svo blá, björt og skýr, að furðu gegnir. — Ef nær er komið, og betur að gáð, sést að vörður er haldinn um litlu hnoðrana. Svartir kollar sveima umhverf- is skerin. Það eru höfuð for- eldranna. Þau veita nákvæma athygli öllu, sem fram fer um- hverfis skerið, og halda trúan vörð um afkvæmi sitt. Og þeirra varðstaða er örugg gegn öllum óvinum, nema mannin- um. — Einn góðan veðurdag, Framh. á bls. 380

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.