Heima er bezt - 01.12.1955, Page 16

Heima er bezt - 01.12.1955, Page 16
368 Heima er bezt Nr. 12 Gísli Sveinsson fyrrv. sendiherra Sjötíu. ()(j jh imm ara Gísli Sveinsson fyrrverandi sendiherra íslands í Noregi og sýslumaður Skaftfellinga um tvo áratugi varð sjötíu og fimm ára hinn 7. desember síðastlið- inn. Afmælisins hefur verið minnzt í blöðum og útvarpi og vinir hans héldu honum sam- sæti í tilefni þess. Gísli Sveinsson er einn af frumherjunum í lokaþætti sjálf- stæðisbaráttu íslenzku þjóðar- innar. Þegar á stúdentsárunum, upp úr aldamótunum, byrjaði hann að taka þátt í stjórnmál- um og var fremstur í flokki þeirra manna, sem gerðu víð- tækastar kröfur til sjálfstæðis, og mun einna fyrstur hafa kveð- ið upp úr um algerðan skilnað við Danmörku. Það féll og í hans hlut, sem forseta sameinaðs þings, að lýsa yfir stofnun lýð- veldis á íslandi á Alþingi við Öxará 17. júní 1944. í þessum fáu orðum er ekki unnt að skýra til nokkurrar hlítar frá stjórnmálastarfi Gísla Sveinssonar. Saga síðustu ára sjálfstæðisbaráttunnar er enn óskrifuð, og ef til vill ekki nógu kunn yngri kynslóðinni. Það er engu líkara, en að margir telji sjálfstæði þjóðarinnar svo sjálf- sagðan hlut, að ekki sé ástæða til að dvelja nánar við sögu þess, út yfir það litla, sem stendur í kennslubókum skólanna. Þetta er auðvitað hinn háskalegasti misskilningur og vlsasti vegur- inn til þess að glata sjálfstæð- inu áður en lýkur. Hinir ungu menn, sem upp úr aldamótunum tóku upp merki Jóns Sigurðssonar, áttu að mörgu leyti erfiða aðstöðu. Þjóðin var að visu að vakna til vitundar um nauðsyn framfara og framtaks, en flestir munu þó hafa talið fjarstæðu, að við, „fátækir, fá- ir og smáir“, gætum staðið á eig- in íótum í samfélagi þjóðanna. Barátta skilnaðarmannanna varð því barátta á tvennum vig- stöðvum, við hugleysi og tregðu landsmanna sjálfra og við Dani. Tregðan innanlands var ef til vill hættulegri óvinur en sjálft yfirráðaríkið. Margir trúðu ekki á, að íslendingar gætu staðið ó- studdir fjárhagslega, sama við- báran og notuð var gegn kenn- ingum Jóns Sigurðssonar, og sú viðbára, sem hættulegust getur orðið sjálfstæðinu í dag, ef ekki er hlustað á aðvaranir hugsjóna- mannanna og lært af baráttu- sögu liðinna áratuga. Bjartsýni og kjarkur þeirra manna, ásamt trú á landið, sem börðust djarf- legast fyrir réttindum okkar, ætti að verða landsmönnum leið- arljós í framtíðinni og hvöt um að standa vel á verði um sjálf- stæðið. Gísli Sveinsson er fæddur á Sandfelli í Öræfum, þar sem

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.