Heima er bezt - 01.12.1955, Qupperneq 22

Heima er bezt - 01.12.1955, Qupperneq 22
374 Heima er bezt Nr. 12 verið þá 24 skildinga, en dag- kaupið 48 skildingar. Jón var að ýmsu leyti frá- brugðinn öðrum mönnum, þótt ekki bæri á því i daglegri fram- komu. Hann þótti forspár; oft kom það fram sem hann sagði fyrir, að svona legðist þetta eða hitt í sig. En það væri nú ekki að reiða sig á það, nema eins og hverja aðra ágizkun. Engum datt í hug að kalla hann sér- vitring eða nokkuð annað en mætan mann, meiri en flesta aðra. Einn hátt hafði hann, sem fáir vissu nema heimafólk hans, sem veitti því eftirtekt. Á gaml- árskvöld hafði hann þann sið að fara út í kirkju einsamall, án þess að kveikja ljós í kirkjunni eða opna kirkjugluggana, og sitja þar einn nokkra stund. Aldrei gat hann þess, hvers vegna eða í hvaða tilgangi hann gerði þetta, og ekkert vildi hann segja um það, hvort nokk- uð bæri fyrir sig eða hann yrði nokkurs var. IV. Guðviundur Magnússon. Eins og segir í þætti Jóns Þórðarsonar, andaðist hann 8. apríl 1885. Ekkja hans, Þórunn Magnúsdóttir, hætti búskap í næstu fardögum. Búið var selt, en jörðina leigði hún Guðmundi Þórðarsyni. Hann var bróðir Jóns manns hennar. Guðmund- ur hafði þá búið í Króki í sömu sveit 15 eða 16 ár. Kona hans hét Ingveldur Pétursdóttir, frá Hell- ir í Ölfusi. Þau fluttu að Úlfljóts- vatni í fardögum 1885. En eftir rúman mánuð andaðist Guð- mundur, en Ingveldur bjó með vinnumönnum sínum til fardaga 1886. Þá fór til hennar ráðsmað- ur, Guðmundur Magnússon, ætt- aður frá Villingavatni. Hann var fæddur 16. marz 1852. Hefir hann því verið 34 ára gamall, þegar hann réðist að Úlfljótsvatni. Hugur hans hneigðist snemma til smíða, og varð hann brátt orðlagður hagleiksmaður. Hann lagði gjörfa hönd á flestar smíð- ar, sem þá voru iðkaðar, nema gullsmið. Það vissi ég ekki til, að hann fengist við. Hann smíðaði rokka, allskonar búsáhöld, hvort heldur var úr tré eða málmi, hnakka og söðla og allt, sem heyrði til reiðskapar. Verkfæri sín smíðaði hann flest, hvort sem þau voru úr tré eða járni. Hann smíðaði t. d. skrár fyrir hirslur, sem fáir gátu opnað, þó að þeim væri fenginn réttur lykill, ef þeim hafði ekki sérstaklega ver- ið kennd áður aðferð sú, sem við átti. Hann ólzt upp á Villinga- vatni hjá foreldrum sínum, Magnúsi Gíslasyni og Önnu Þórðardóttur, og var hjá þeim þangað til 1884. Þá fór hann til Reykjavíkur að læra húsasmíði hjá Sigurði Árnasyni, ættuðum úr Selvogi. — Þeim, sem smíðaði Strandarkirkju, þá sem þar stendur enn. Við smíðanámið var Guðmundur 2 ár, en þó ekki sam- fleytt. Þá var ekki heimtað að sveinar væru við smíðanám sam- fleytt í 4 ár. Þá gátu þeir fengið sveinsbréf, ef þeir gátu smíðað „sveinsstykki“, sem tveir smiðir dæmdu fullgilt. Á þessum árum byggði Guðmundur hús í Reykjavík í félagi við annan trésmið, Eyjólf Ófeigsson frá Nesjum í Grafningi. Hús þetta stendur enn. Það er á horninu, þar sem mætist Bókhlöðustígur og Þingholtsstræti. Það er nú (1954), og hefir verið lengi, I eign Ásbjarnar Ólafssonar, tré- smiðs. Húsi þessu hefir jafnan verið vel við haldið, en að engu breytt, hvorki utan né innan. í þessu húsi ætluðu þeir að búa báðir félagarnir, Guðmundur og Eyjólfur. En um það leyti sem hægt var að flytja í það, flutti Guðmundur að Úlfljótsvatni og varð því ekki úr því að hann flytti í það. En Eyjólfur bjó nokkur ár í sínum hluta húss- ins. Guðmundur leigði sinn hluta. Illa gekk fyrir Guðmundi að fá leiguna greidda, svo að eftir fá ár seldi hann sinn part, (sem var hálf eignin) á 1000 kr. 100 kr. voru greiddar, þegar kaupin fóru fram, og svo átti að greiða 100 kr. afborgun á ári, þar til kaupverðið væri að fullu greitt. Við þessa samninga var staðið af kaupanda hálfu. Báðir voru víst ánægðir, Guðmundur að losna við eignina, sem var honum aðeins arðlaus byrði, og kaupandinn að fá ódýra íbúð með góðum afborgunarkjörum. Þá voru litlir peningar I gangi hjá almenningi, og torfengnir. Viðskipti manna voru þá að mestu leyti vöruskipti. Þessi húsbygging Guðmundar olli því að mestallar eignir hans voru fastar í húsinu, nema verkfæri hans, þegar hann réðist að Úlf- ljótsvatni, til Ingveldar Péturs- dóttur. Hún átti 2 börn með Guð- mundi Þórðarsyni. Þau fengu í föðurarf sinn bæði til saman V3 hl. í Úlfljótsvatni og Villinga- vatni, en Ingveldur móðir þeirra, lausafé það, sem búið átti, fénað og búsgögn. Búið var ekki stórt. Sauðfé mun hafa verið um 150, að meðtöldum 18 ám, sem fylgdu jörðinni (kvígildisær). Kýrnar voru 5 og 3 þeirra fylgdu jörð- inni. Jörðinni fylgdu alls 6 kú- gildi. Eignir Guðmundar voru, að mestu leyti, fastar í húseign hans í Reykjavík og smíðaverk- færum hans, sem hann taldi vera 500 króna virði. Verðmestu stykkin voru: Steðji (140 p), stórt skrúfstykki með járnfæti. Hefilbekkur og rennibekkur. Þetta voru verðmestu verkfærin. Þau virti hann til samans á 240 kr. eða 60 kr. til jafnaðar. Auk þess átti hann flest smíðatól, sem trésmiðir á þeirri tíð notuðu, og mikið af því er tilheyrði járn- smíði. Guðmundur var ekki síður járnsmiður en trésmiður. Eins og fyrr getur, var búið á Úlfljótsvatni ekki stórt, þegar hann tók við því. Hús voru þar flest heldur léleg, bæði bæjarhús og fénaðarhús. Engin hús voru til yfir fullorðið fé, aðeins fyrir lömb og fé á annan vetur. Roskna féð var látið liggja við borgina og í hellisskútum á Dráttarhlíð. Eina húsið, sem var stæðilegt,var geymsluhúsið á hlaðinu. Það var þá 10 ára gamalt og því hafði verið vel við haldið, bikað ann- að hvert ár, og lítið farið að sjá á því. Guðmundur lét það vera sitt fyrsta verk að byggja ærhús hjá gömlu fjárborginni, sem aldrei þótti gott fjárskýli, og var auk þess farin að hrörna. Hann byggði þar á fyrsta ári fjárhús yfir 100 ær og hey- hlöðu, sem tók 50 hesta af heyi, og aðra norður í Dráttar- hlíð, sem tók um 20 hesta. Þetta reiknaði hann þannig út, að hey- ið á Dráttarhlíð ætti að nægja fram að miðjum vetri, eða því sem svaraði, til þess að ekki yrði

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.