Heima er bezt - 01.12.1955, Blaðsíða 23

Heima er bezt - 01.12.1955, Blaðsíða 23
Nr. 12 Heima er bezt 375 verulega hagaskortur í meðal- vetri. Þar var aldrei neitt fjár- skýli nema hellar. Heyið var fénu gefið úti „á gaddi“, sem kallað var. Síðar byggði hann sauðahús fyrir vestan túnið, og heyhlöðu hjá þeim. Hús þessi rúmuðu 80 sauði. Síðast byggði hann upp gömlu lambhúsin fyrir 80 lömb, voru þá eftir tveir fjárhúskofar, sem hann hélt við af gömlu fjárhúsunum. Á lambhúsin setti hann járnþak og byggði við þau heyhlöðu, sem tók 60 hesta. í gamla heygarðinum byggði hann hlöðu, sem tók 250 hesta. Til forna stóð fjósið uppi á túninu hjá heygarðinum. Árið 1896, í jarðskjálftanum mikla, skekkst- ist það svo, að það varð að end- urbyggjast. Þá færði hann það heim að bæ. Pjós þetta hangir uppi enn (1954) með litlum breytingum. En búið er að byggja nýtt fjós og heyhlöðu fyrir ofan tún fyrir stuttu, og líklega hætt að nota fjósið, sem Guðmundur byggði heima við bæinn. Fjósið er nú þar sem lambhúsin voru í tíð Guðmundar. Hjá Jóni Þórð- arsyni voru hesthúsin þrjú, sitt á hverjum stað, og nokkur spölur á milli þeirra. Tvö þeirra lagaði Guðmundur, en byggði eitt, sem rúmaði vel 8 hesta við stall, þar sem eitt þeirra hafði staðið skammt fyrir vestan heygarðinn. Öll voru hús þau, sem Guðmund- ur byggði, snotur útlits, en efni allt í þeim sparað, og gátu því ekki orðið endingargóð. Guð- mundur ætlaði sér aldrei að búa á Úlfljótsvatni fram á elliár. Hann taldi jörðina ekki hent- uga fyrir mann, sem gæti ekki gengið að öllum verkum sjálfur og fylgst með öllu utanhúss. Bæjarhúsum hélt Guðmundur vel við og byggði þau öll upp í sama formi og stíl, eins og hann tók við þeim. Baðstofa sú, sem hann byggði, stóð óbreytt að mestu leyti fram yfir 1940, er hún var rifin með ráði umráð- enda jarðarinnar og flatur skúr settur í hennar stað. En það mun hafa verið siðasta baðstofan í gömlum stíl i Árnessýslu. Þá var hún ófúin og stæðileg, fullra 50 ára. Guðmundi búnaðist vel á Úlf- ljótsvatni. Hann bjó þar 16 ár. Hann hafði ekki meiri fénað en jörðin bar að hans áliti, eða haft hefði verið af fyrirrennur- um hans, 5 kýr og 250—270 fjár, sem sett var á vetur. Við heyskap hafði hann jafnan 6—7 manns með sjálfum sér, og svo stráka um fermingu, sem pössuðu ær og kýr á daginn, og áttu þeir að koma með hvorttveggja á rétt- um tíma til mjalta. Ær og kýr voru látnar liggja inni yfir nótt- ina. Ánum var hleypt út kl. 5—6 á morgnana og setið yfir þeim fram til kl. 8. Gerði það einhver vinnukonan. Þessi siður, að smalinn passaði bæði ær og kýr, vissi ég ekki til að tíðkaðist nema á Úlfljótsvatni og Villingavatni. En þar var þetta siður frá ó- munatíð, og hélzt á meðan frá- færur voru tíðkaðar. En Guð- mundur var sá síðasti bóndi þar, sem færði frá ánum. Þetta fólk, sem hann hafði við heyskap, gerði ekki betur en heyja fyrir þessum fénaði, sem áður getur og 7—8 brúkunarhrossum. Aldrei átti hann heyfyrningar, sem neinú nam. Varð heldur aldrei heylaus. Hann setti aldrei á „vog- un“, sem kallað var. Þegar hon- um þóttu heyin of lítil á haustin, þá kom hann kú í fóður suður í Ölfusi, hálfan eða allan vetur- inn. Ýmislegt höfðu nágrannar hans við búskaparlag hans að at- huga sín á milli, svo sem það, að hann fóðraði ekki vel fénað sinn, gerði lítið að jarðarbótum o.s.frv. En allir töldu hann vel efnaðan. Enda var hann einn efnaðasti bóndi í sveit sinni. Auk búskaparins stundaði Guðmundur smíðar. Hann var smiður góður og smíðaði flesta þá hluti, sem nota þurfti í sveit- um á þeirri tíð, hvort sem um tré- eða járnsmiði var að ræða. Smíðarnar stundaði hann lítið nema á vetrum.. Frá bæ fór hann aldrei að smíða, nema ef mikið lá við, t.d. ef járnþök fuku af húsum í ofsaveðrum. Þá hjálp- aði hann mönnum oft 1—2 daga. Guðmundur seldi talsvert af ýmsu er hann smíðaði, svo sem reiðtýgi, hnakka og söðla o. fl., sem tilheyrði reiðtýgjum, rokka og vefstæði og allt sem þeim til- heyrði. Hann smíðaði sér tengur til þess að beygja með tennur í ullarkamba (stólkamba). Kamb- ar þessir voru eins og venjulegir KVEÐJUR 1. Óljóst man ég okkar skraf, engri minning háður, það var fljótt að fenna í kaf flest, sem spratt hér áður. 2. Sortnar flest, því sigin er sól að vesturfjöllum. Ég á mest að þakka þér, þú varst bezt af öllum. Sveinbjörn Benteinsson. ullarkambar, nema hvað þeir voru miklu stærri. Þegar kembt var með þeim, var annar kamb- urinn settur fastur í borð eða fjöl, og svo hafðar báðar hendur á efri kambinum, og þannig kembt með báðum höndum. Kambar þessir voru afkasta- meiri en þeir venjulegu, og þótti að þeim vinnusparnaður, einkum ef átti að samkemba, því að þá þurfti ekki nema bregða ullinni í fínni kamba áður en spunnið var. Kemburnar úr stólkömbun- um voru stórar og óþjálar að spinna úr þeim fínt band. Kamba þessa seldi hann á 4 kr. og þótti það heldur ódýrt, enda var aldrei kvartað undan því, að Guðmundur seldi dýrt smíði sitt. Árið 1887 fór Jón Ögmundsson á Bíldsfelli til Ameríku. Hann hafði þá verið hreppstjóri Grafn- ingshrepps í 20 ár. Guðmundur var þá skipaður hreppstjóri í hans stað. Var hann svo hrepps- stjóri þar til hann flutti frá Úlf- ljótsvatni til Reykjavíkur 1902. í hreppsnefnd var hann kosinn um sama leyti, sem hann var skipaður hreppsstjóri og hrepps- nefndaroddvlti nokkrum árum síðar. Ýms fleiri störf hafði hann á hendi fyrir sveit sína, t.d. var hann deildarstjóri í kaupfélagi Árnesinga (það var pöntunar- félag). Hver hreppur í sýslunni var deild fyrir sig með einn deildarstjóra. Hann átti að safna vörupöntunum frá bændum í febrúar og senda lista yfir vörur þær, sem hver bóndi pantaði. Listar þessir voru svo sendir til formanns félagsins, en hann

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.