Heima er bezt - 01.03.1957, Blaðsíða 6

Heima er bezt - 01.03.1957, Blaðsíða 6
/vo oian: ur jonsmessuaraumi a ]a- tœkraheimilinu“ 1946. Til hægri: Úr kvikmyndinni ,J\íilli fjalls og fjöru. Að neðan: Úr „Sem yður þóknast." — Hvernig myndi einn starfsdagur vera hjá leikkonu, sem er gift kona og móðir? — Það er auðvitað misjafnt. Stundum getur verið ró- legt, en svo koma tímar, þegar öllu lendir saman, æfing- um í jafnvel tveimur leikjum, æfing í útvarpsleik og svo sýriingar í leikhúsinu á kvöldin. Þegar svo við þetta bætist, að maður hefur enga húshjálp, getur dagurinn orðið erilsamur. — Og hvernig er þá raðað niður á daginn? — Maður kemur sér á fætur eins snemma og maður treystir sér til eftir að hafa verið að leika til miðnættis kvöldið áður. Það þarf að byrja að hugsa um börnin og koma þeim einhvers staðar fyrir, því niður í leikhús verður maður að vera kominn kl. 10 fyrir hádegi. Mat- arhléin eru mislöng, eftir því, hver er leikstjórinn, þetta frá hálftíma upp í einn og hálfan tíma, og æfingarnar geta því staðið til kl. 3.30 á daginn. Eg reyni yfirleitt alltaf að komast heim til þess að laga matinn, því að maðurinn minn vill helzt að ég geri það sjálf. Svo er útvarpsæfing milli 5 og 7 á daginn, og sé sýning, verð ég að vera komin niður í leikhús kl. 7, en þar er ég svo til 11-11.30. — Já, erfiður starfsdagur er þetta. — Það er nú ekki alltaf svona slæmt. En einhvern veginn er það svo, að það er eins og stundum þurfi allt að lenda saman, og þá getur það verið svona. — Nú liggur auðvitað beinast við að spyrja, hvað þú hefir nú upp úr þessu? — I fyrsta skipti sem ég lék, hafði ég 14 krónur á

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.