Heima er bezt - 01.03.1957, Blaðsíða 7

Heima er bezt - 01.03.1957, Blaðsíða 7
AS ofan: Bryndis Pétursdóttir og Rúr- ik Haraldsson i leikritinu „Sem yður þóknast“ eftir Shakespeare. Að neðan: Bryndis Pétursdóttir i sama leikriti (sitjandi). leikkvöldi. Nú er þetta auðvitað allt annað. Ég er á B-samningi hjá Þjóðleikhúsinu, og launin geta verið anzi mismunandi. En ekki meira um það. — En segðu mér. Fleira hefur þú nú gert um ævina heldur en að vera leikkona? — Já, eins og ég sagði þér áðan, vann ég á rannsókn- arstofu hjá Dungal, seldi miða í Tjarnarbíói, svo prjón- aði ég á prjónastofu hjá mömmu. Þá hef ég verið flug- freyja og svo síðast en ekki sízt eiginkona. — Svo við snúum okkur aftur að leiklistinni. Elvaða hlutverk hefur þér þótt skemmtilegast? — Það er erfitt að svara því. Flest hlutverk hafa eitt- hvað skemmtilegt við sig. Hins vegar verður fyrsta hlutverkið mér minnisstæðast. Ástæðan er auðvitað sú, að þá kom ég inn í þetta alls óreynd og kunni ekki nokkurn skapaðan hlut. Það bar svo margt nýtt og skemmtilegt fyrir augu. Annars get ég ekki gert upp á milli hlutverkanna. — Hverrar tegundar hafa þau einkum verið? — Ég hef alltaf leikið ungar stúlkur, sumar sveita- rómantískar. En hlutverkin eru öll breytileg. Sá tiu mánaða fer nú að gráta, og Bryndís þarf að Heima er bezt 91

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.