Heima er bezt - 01.03.1957, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.03.1957, Blaðsíða 13
Söfnin í Chicago. Engum, sem um Ameríku ferðast, blandast hugur um, hversu framarlega Bandaríkjamenn standa í öllu, sem við kemur tækni og verkmenningu á hvaða sviði sem er. Fer þar saman hugkvæmni, þekking og fjár- magn til framkvæmda. Menningarstofnanir þeirra njóta •ekki síður en aðrar stofnanir þjóðfélagsins góðs af tækn- inni, en ef til vill kemur slíkt hvergi betur fram á því sviði en í söfnunum. Af öllum mannaverkum, er ég sá þar vestra, vakti fátt jafnmikla aðdáun mína og söfnin; var það ekki einungis vegna stærðar þeirra og fjölbreytni, og alls hins nýja, sem þar bar fyrir augun, heldur miklu fremur kunnátta sú og tækni, sem stendur að baki öllu þeirra fyrirkomulagi. Og þó einkum hversu auðskoðuð þau eru, og hve ljóst hlutimir eru settir fram fyrir áhorfandann. En vel má hafa það hugfast, að slík söfn verða ekki reist, nema þar sem ekkert þarf að spara. Frá æskuárum mínum hefur mér verið tamt að hugsa mér söfn, ekki sízt náttúrugripasöfn, sem heldur skugg- sýna sali, sem ofhlaðnir eru rykföllnum og ef til vill hálfmölétnum múmíum af dýrum, eða þá upplituðum eintökum í vínandafylltum glösum. Þótt söfn þau séu fróðleg að vísu, og nauðsynleg undir mörgum kring- umstæðum, þá eru þau samt svo fjarri hinni lifandi náttúru, sem nokkuð getur verið. Oft getur verið erfitt að átta sig þar, sakir þrengslanna og þess, að oft er sem sameiginlegt sjónarmið vanti, sem söfnin eru gerð eftir. Þegar til minjasafnanna kemur, er margt svipað að segja. En þar finnur maður ekld eins til þess, þótt safnið sé dálítið fjarlægt lífinu sjálfu. Af þessum sökum hefur mér ætíð verið dálítið um og ó að eyða miklum tíma til að skoða söfn. En amerísk náttúrugripa- og þjóð- fræðasöfn gjörbreyttu þessari skoðun minni á söfnum almennt, og fékk ég raunar alls ekki skoðað þau eins og mig lysti. Söfn þessi eru umfram allt Ijós og að- gengileg. Salakynni þeirra eru björt og háreist, og svo er þar mikið húsrými víðast hvar, að maður jafnvel getur fundið til tómleika, og er þó sannarlega margt að sjá. Dýrum og plöntum er svo fyrir komið, að þau minna á hina lifandi náttúru. Sýnisviðin eru landslags- myndir, líkön og málverk með dýrum og gróðri, svo að sköpuð er mynd af hinu rétta umhverfi. í þjóðfræða- söfnunum eru sett upp líkön af fólkinu, þar sem það gengur að störfum sínum, og víða eru gerðar hóp- myndir af atburðum úr sögu þjóðanna. í iðnfræði- söfnunum sjást vélarnar sjálfar að verki, ýmist í fullri stærð, eða smækkuð líkön þeirra. Og alls staðar eru líkön og myndir til frekari skýringar gripunum sjálf- um, þar sem þess er þörf. í Cranbrook safninu, sem fyrr er getið, minnist ég t. d. líkana, sem skýrðu myndun og þróunarsögu jarðar, og annarrar, er sýndi fóstur- þróun mannsins frá eggi til fullvaxins einstaklings. í stuttu máli má segja, að grundvallarregla sú, sem söfnin eru byggð eftir, sé þróunarkenningin. Öllum hlutum er raðað eftir þróun þeirra frá hinu frumstæða og ein- faldasta til hins fullkomnasta. Er þar notuð sama regla í náttúruvísindum og söguminjasöfnum. Að öðru leyti Náttúrugripasafnið (Natural History Museum) í Chicago. rná segja, að náttúrugripasöfnin keppi að því að sýna dýr og plöntur sem líffræðilegar heildir. Öll smærri söfn leggja áherzlu á að sýna náttúru umhverfis síns, jarðfræði, dýralíf og gróður. Þannig gat að sjá í Cran- brook safninu ágætar sýningar af helztu gróðurlend- um Michiganríkis ásamt því dýralífi, er þau hýsa hvert um sig. Þar var strandlengja, sandhólar, engjalönd, gras- sléttur og skógar. Allt mjög vel gert, en þó ekki jafn- vel og ég sá síðar í Chicago. En samsvarandi sýnisvið voru í öllum söfnum, er ég skoðaði. Steina- og bergteg- undasafnið í Cranbrook var einkarfagurt á að líta, og þar var myrkraberbergi fyrir þá steina, sem sjálflýs- andi eru. Mátti segja um Cranbrook safnið í heild, að það var mjög ljóslifandi og lærdómsríkt; er því sýnilega skipað niður með þarfir skóla fyrir augum, enda mikið notað af þeim. Mikilfenglegust safna þeirra, er ég sá, þóttu mér söfnin í Chicago. Alunu þau og vera ein hin fullkomn- ustu sinnar tegundar í Bandaríkjunum, þótt ef til vill enn meiri fjölbreytni sé í Smithsoniansöfnunum. í Yale var mér bent á það, að ég skyldi ekki láta undir höfuð leggjast, að skoða grasasafnið í Chicago, því að þar væru gerðir undraverðir hlutir um geymslu plantna. Ég bað því leiðbeinanda minn þar að greiða götu mína þangað. Var það auðsótt. Vísaði hann mér á einn helzta ráðamann þeirrar deildar, mr. Sella. En annars vildi svo til, að sú deild var lokuð gestum um þessar mundir. Ég hélt rakleitt til náttúrugripasafnsins, Natural History Museum. Stendur það í fögrum skemmtigarði, sem liggur milli höfuðstrætis borgarinnar Michigan avenue og Michiganvatnsins sjálfs, sem er eins og haf- sjór yfir að líta. Safnhúsið er bæði að utan og innan ein hin fegursta bygging, er ég sá þar vestra, og þótt víðar væri leitað. Er það í grískum musterisstíl, hvítt að lit. Ég náði brátt tali af mr. Sella. Hann er hæg- látur maður, ljúfur í viðmóti, en nokkuð við aldur. Ég bar upp erindi mitt, að fá að sjá, hvernig þeir gengju frá plöntum í safninu, og var það auðsótt mál. Bauð hann mér því næst að fylgja sér um salakynni safnsins. Heima er bezt 97

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.