Heima er bezt - 01.03.1957, Síða 11

Heima er bezt - 01.03.1957, Síða 11
loft, en farþegum er borið kaffi, og á matartímum er framreiddur hinn ágætasti matur. Flugfreyjurnar eru Ijúfar í viðmóti, svo að þær gefa lítið eftir flugfreyj- unum okkar hér heima, nema varla eins laglegar. Ég fékk ágætt sæti og naut hins bezta útsýnis, enda var enn bjart af degi. Flogið var með norðurströnd Erievatns. Til vinstri handar var ekkert að sjá nema einn hafsjó, eins og á reginhafi væri, en til hægri var hin bezta útsýn inn yfir sléttur Canada. Allt land er þarna byggt, og mátti heita að hver blettur væri rækt- aður, en þó strjálbýlt. Þarna leit ég í fyrsta sinn sléttur Norður-Ámeríku, sýn, sem ég átti eftir að hafa fyrir augum hvað eftir annað næstu vikumar. Bezt verður landi þessu lýst með því að líkja því við málverk eftir nýtízku málara, sem einungis málar í ferhyrningum. Landinu er öllu skipt í ferhymda reiti, misjafnlega stóra, og suma aflanga, aðra rétta ferninga o. s. frv. Hver ber sinn lit, gulan, brúnan, gráan eða fagurgræn- an. Yfir sumarið, þegar allt er ein kornstangamóða, hlýmr landið að vera mjög tilbreytingarlaust. Tré sjást varla, nema skjólgarðar umhverfis bæina og meðfram ám og lækjum, en farvegir þeirra eru ætíð markaðir af skógargróðri, og eru það einu bognu línurnar í mynd- inni. Strendur Erievatns eru allháar, en grafnar af ár- giljum, og var vatnið kolmórautt á stórum svæðum undan hverju gili. Flugferðin til Detroit stóð einungis rúman klukku- tíma. Flogið var yfir borgina þvera, en flughöfnin liggur 30 mílur vestur frá miðbænum, og var um klukkustundar akstur þar á milli. Engin borg í Banda- ríkjunum er önnur eins bílaborg og Detroit. Rétt hjá flugvellinum blasa við verksmiðjur General Motors, og nokkru nær borginni var farið framhjá Fordverksmiðj- unum, sem eru eins og allmyndarleg borg út af fyrir sig. Hvar sem farið er um útjaðar borgarinnar eru bílasölur, bæði á notuðum bílum, og söluskálar verksmiðjanna, að ótöldum öllum auglýsingunum um bíla og aftur bíla. Umferðin er, sem vænta má, geysimikil, en ég efast um að hún sé jafnvel skipulögð í nokkurri amerískri borg og þarna. Aðalvegirnir út úr borginni liggja þann- ig, að nær hvergi þarf að staðnæmast vegna umferðar- innar, því að þvergöturnar liggja yfir aðalbrautinni, sem er niðurgrafin. Leiðbeinandi minn í Detroit var kona, miss Cassidy að nafni; veitir hún forstöðu skrifstofu þeirri, sem ann- ast móttöku gesta Bandaríkjastjórnar þar í borg. Lét hún hendur standa fram úr ermum, svo að naumast gafst mér tími til að tylla mér niður þann hálfan annan dag, er ég dvaldist þar, heldur var þar einn sprettur frá einu safninu og stofnuninni til annarar undir ágætri leiðsögu miss Cassidy. Var það í senn bæði fróðlegt og skemmtilegt, en fullmikið í einu. Þótti henni miður, að ég skyldi vera þarna einungis yfir helgi, og jafnvel sem Detroit væri minnkun sýnd með slíkri skyndi- heimsókn. Þar í Detroit lágu saman leiðir mínar og fjögurra Burmabúa, sem einnig voru gestir Bandaríkjastjórnar. Tók leiðsögukonan okkur öll í einu undir sinn verndar- Höfuðtorgið í Detroit. Undir torginu er verið að gera bilageymslu. væng. Fýrst var okkur sýnt sögusafn borgarinnar. Var saga borgarinnar sýnd þar í minjum og myndum, allt frá því að franski herforinginn Cadillac steig þar í land, og gerði samning við Indíánahöfðingjann Pontiac, létu nöfnin kunnuglega í eyrum, og fleira lærði maður þar um uppruna bíiaheitanna, þannig var þar heill salur, tileinkaður Dodge-fjölskyldunni, að maður ekki tali um Ford. Mátti segja í styztu máli, að safn þetta væri í senn saga borgarinnar og þróunarsaga bílanna, enda víst gefið að mestu af bílakongunum. Listaverkasafn er þarna ágætt, en ofhratt var farið um, til þess, að njóta þess verulega. En af því, sem ég sá þar í borg, þótti mér mest koma til bókasafnsins. Húsakynni þess eru geysimikil, enda eru þar margar vistarverur og haglegar. Þar eru margir lestrarsalir, sem hver um sig eru helgaðir sérstökum viðfangsefn- um, t. d. einn fyrir tónbókmenntir. Þeir, sem þar vilja nema, geta samtímis flett nótum eða lesið rit um tón- fræði og hlustað á tónlistina sjálfa. Við hvert borð er grammófónn og heyrnartól.FjöIdi manna var þarna inni, hver með sinn grammófón, en svo vel var urn heymar- tólin búið, að enginn ómur heyrðist, og var þetta eitt hið hljóðlátasta herbergi safnsins. En eins og séð var fyrir tónlistarunnendum, voru og öðrum sérgreinum búin lík skilyrði. Dálítið var af bókum um ísland í safninu, ögn af ritgerðum um ísland á enskri tungu, sérstaklega bók- ritið Islandica. Merkilegt þótti mér það, sem mér var sagt um þjón- ustu safnsins við skiptavini sína. Hver borgari getur pantað bók til láns, og er hún send honum samstundis, hvar sem hann er í borginni. Ekki þarf hann að ómaka sig upp á safn, til að skila bókinni aftur, heldur eru bókakassar, líkt og póstkassar á gangstéttunum á ýms- um stöðum í borginni, og þar er bókunum fleygt í, og hirðir safnið þær síðan. Með öðrum orðum, það er litlu meiri vandkvæðum bundið að ná í bók til lestrar af safninu, en að taka hana úr skáp heima hjá sér. Svo vel er frá bókakössunum gengið, að maður, sem er í bíl, getur rétt bókina í kassann gegnum bílrúðuna, án þess að hreyfa sig í sæti sínu. Ef menn eru á fundum Heima er bezt 95

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.