Heima er bezt - 01.09.1957, Blaðsíða 5

Heima er bezt - 01.09.1957, Blaðsíða 5
•of sjaldgæft á skólaöld vorri. Allt of margir unglingar sækja nám meira með það fyrir augum, að hljóta af því fjárhagslegan ávinning en af menntaþorsta einum saman. Þótt pyngjan væri létt, réðst Magnús samt í skólanám og vann fyrir sér á sumrum utan heimilis, til að afla nokkurs fjár til skólagöngu. Gekk hann í Gagnfræða- skólann á Akureyri í tvo vetur, 1908—10, en þá voru fararefni þrotin, og hugðist hann Iesa þriðja veturinn heima og taka gagnfræðapróf utanskóla. En hafísar og samgönguerfiðleikar, sem af þeim leiddu vorið 1911, tálmuðu ferð hans norður í tæka tíð, svo að það fórst fyrir. Ekki varð þannig meira úr skólagöngu Magnúsar, en skóladvalarinnar minnist hann af hlýju og telur hana hafa orðið sér að góðu gagni. En þótt skóladvölin væri stutt, hefur Magnús ekki lagt árar í bát um að auka á þekkingu sína. Hann hefur lesið allt, sem kostur hefur verið á, góðra bóka og komið sér upp myndarlegu og vel völdu bókasafni, einkum þó um sögu íslands, þjóð- fræði og mannfræði, en þar hefur hugur hans löngum dvalið við. En fara má nærri um það, að margar fómir hefur það kostað efnalítinn bónda, að koma fótum undir gott bókasafn, en það sýnir gjörla, að Magnús hefur verið trúr hugsjón og menntaþrá bernskuára sinna. Arið 1917 kvæntist Magnús Jóhönnu Albertsdóttur frá Neðstabæ í Norðurárdal. Hófu þau búskap sama ár á Syðra-Hóli, fyrst á hálflendunni, en síðar á jörð- inni allri, sem þau eignuðust smám saman. Hafa þau hjón bætt jörð sína í hvívetna, hýst hana að nýju og ræktað myndarlegt tún. Bú hefur Magnús aldrei haft stórt en ómegð allmikla, því að sex börn eignuðust þau hjón, og komust fimm þeirra til fullorðinsára. Eins og títt er í sveitum landsins þegar um starfhæfa menn er að ræða, hafa mörg opinber störf hlaðizt á Magnús. En hann maður félagslyndur og ætíð kunnað að leggja góð ráð, hvort sem um var að ræða sveitarmál eða innan einstakra félagasamtaka. iMun hann hafa verið kvaddur til flestra þeirra félagsmálastarfa, sem til fallast innan sveitarfélaga, og gegnt þeim flestum lengi og við góðan orðstír. Þannig hefur hann verið hreppsnefndar- oddviti, hreppstjóri, sýslunefndarmaður, endurskoðandi kaupfélagsreikninga, formaður búnaðarfélags um lang- an aldur o. fl. Sýnir upptalning þessi, hvert traust sveit- ungar hans hafa til hans borið, því að lítt hefur hann sótzt eftir vegtyllum þessum. Á æskuárum sínum var hann einn af forvígismönnum ungmennafélagshreyfing- arinnar í sveit sinni, og hefur hann stutt þann félagsskap með ráðum og dáð, þótt aldur færðist yfir. Það mun öll- um Ijóst, að öll slík félagsmálastörf eru furðu tímafrek, og virðist því svo, sem einyrltjabóndi hefði ekki mikið tóm til annarra aukastarfa frá búskapnum. En Magnús á Syðra-Hóli hefur haft fleiri járn í eldi án þess að brynnu. Og þótt ég efist ekki um, að sveitungar hans muni lengi minnast hans og starfa hans í þágu byggðar sinnar, þá munu þó önnur tómstundastörf hans lengur geymast og fleirum verða kunn. Þegar á unga aldri tók Magnús að leggja við hlustir, ef rætt var um mannfræði og ættir. Tók hann brátt, er honum óx fiskur um hrygg, að safna þeim fróðleik, er hann náði til um slík efni, of afrita handrit, er honum bárust í hendur. Eins og geta má nærri, voru það eink- um ættir og héraðssaga Húnvetninga, sem hann fékkst við, enda það eitt ærið verkefni, þótt ekki væri lengra seilzt. Hefur hann haldið þessu starfi áfram alla ævi og unnizt furðumikið, þegar þess er gætt, að fjærri var hann söfnum öllum og átti þess ekki kost að komast til Reykjavíkur og kynna sér heimildir í söfnum, fyrr en hann var nær fimmtugur að aldri. Hefur hann brugðið sér þangað nokkrum sinnum síðan, og hefur þá ekki verið slegið slöku við um fræðastörfin. Árið 1938 var hann með öðrum forgöngumaður þess, að stofna Sögu- félagið Húnvetning, og hefur lagt drjúgan slterf til rita þess síðan. Sýndu Húnvetningar í Reykjavík það dreng- skaparbragð af sér að bjóða Magnúsi til dvalar þar syðra í mánaðartíma, er hann fór þangað fyrsta sinn. Nokkum fræðimannastyrk hefur Magnús hlotið hin síðari árin, og er það að maklegleikum. Ekld er mér kunnugt, hversu mikið það muni vera, sem Magnús á í handriti, en nokkrar heimildir hef ég fyrir því, að drjúgt sé það að vöxtum, og ef dæmt skal eftir því, sem birzt hefur, þá ekki síðra að gæðum. Það, sem út hefur komið eftir iMagnús, er ekki ýkja mikið að fyrirferð. I öllum þeim heftum, sem Húnvetningafé- lagið hefur gefið út, á hann nokkum skerf, og nú fyrir skemmstu kom út bókin Mannaferðir og fornar slóðir. En rit þau, sem frá hans hendi hafa komið, era öll með því handbragði, sem endast mun honum til varanlegs orðstírs, meðan þeir eru nokkrir, sem íslenzkum fræð- um unna og kunna að meta mannlýsingar og lýsingar af lífsbaráttu þjóðarinnar á liðnum tímum. Vitanlega eru söguefni Magnúsar misjöfn að gæðum, en ætíð er með þau farið af högum höndum. Og hann er ótrúlega snjall að draga upp mynd, þótt efniviðurinn hafi verið lítill. Hann kann bæði að lýsa stórbrotnum körlum og konum, sem styr hefur staðið um og mikils hefur þótt um vert af samtíð sinni, en hann kann ekki síður að lýsa smælingjunum, sem úti verða á hjami mannlífsins, og það gerir hann af þeirri samúð og skilningi, sem fágætt er. En sá skilningur, ásamt vandvirkni um heimildir allar er það, sem mér finnst mest um vert í söguþáttum Magnúsar. Lesandinn finnur þar alltaf hjartað, sem að baki slær. Ég vil ljúka þessum fáu orðum með ummælum sjálfs hans, er hann stóð á sextugu: „Á basláranum, þegar ég varð að bæla niður lestrar- löngun og þrá eftir bókum, flögraði oft að mér sú hugs- un, að mjög hefði mér yfirsézt, að reyna ekki að brjótast menntaveginn og verða sagnfræðingur og rithöfundur. Og nú spyr ég sextugur maður: Hefði ég verið betur kominn nú, ef mér hefði tekizt að ná því marki? Og hefði ég orðið betri þjóðfélagsþegn en ég hef verið í starfi mínu, bóndi í sveit? Ég veit það ekld, en efast.“ Um eitt þarf þó ekki að efast: íslenzk sagnvísindi hafa misst góðan liðstyrk við það, að Magnúsi Björnssyni auðnaðist ekki að gera þau vísindi að lífsstarfi sínu. Steindór Steindórsson frá Hlöðum. Heima er bezt 293

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.