Heima er bezt - 01.09.1957, Blaðsíða 15

Heima er bezt - 01.09.1957, Blaðsíða 15
Staðhættir valda og því, að borgin sjálf fær ekki vaxið verulega frá því, sem nú er, en handan flóans hafa risið upp stórar borgir, Berkeley og Oakland, sem nú eru samvaxnar með öllu, og ýmsar borgir og þorp rísa upp suður með flóanum, og vaxa smám saman saman við meginborgina. Fjöldi manna, sem vinnur í San Francisco býr í útborgum þessum. Eru þær tengdar saman með mikilli brú, Bay bridge, sem er 8i/£ míla á lengd, var hún opnuð til umferðar 1936. Önnur brú liggur yfir Gullna hliðið, og er hún talin lengsta hengi- brú í heimi, nokkuð á annan kílómetra, er hún hið fegursta mannvirki. En stöðugt eykst umferðin, og nýjar brýr eru ráðgerðar. San Francisco er geysimikil verzlunarborg. Aðal- verzlunargata og lífæð borgarinnar er Market street, sem liggur skáhalt um endilanga borgina. Varla mun nokkur borg í Bandaríkjunum, að New York ef til vill einni undanskilinni, jafn alþjóðleg og San Fran- cisco. Þar eru t. d. fleiri Kínverjar en í nokkurri ann- ari borg utan Kínaveldis, þar er einnig ítalahverfi, Spánverjahverfi, negrahverfi, og hamingjan má vita hvað. En þótt vitanlega sé þar misjafn sauður í mörgu fé, er borgin furðu friðsamleg, og svo sagði mér leið- beinandi minn, að óhætt væri hverjum manni að vera á ferð að kvöldlagi, hvar sem væri í borginni, og heim- sækja skemmtistaði, nema ef til vill ekki í ítalahverfinu. Öll er borgin nýleg að sjá, enda reist að mestu eftir landskjálftann mikla, eins og fyrr getur. Við byggingu San Francisco hafa íslendingar kom- ið verulega við sögu. Allstórt hverfi heitir þar Stone- tovm, er það kennt við tvo íslenzlta bræður, Ellis og Henry (Þorsteinssyni) Stoneson, sem hafa reist það, og verið meðal fremstu athafnamanna á því sviði. Eins og fyrr segir kom ég til San Francisco síðla kvölds. Arla næsta morgun fór ég að hitta leiðbein- ingarskrifstofu þá, er ég skyldi snúa mér til. Þar tók á móti mér ungur maður, mr. Scarbeck. Voru tveir Þjóðverjar einnig komnir á fund hans í sömu erind- um. Tók hann fram uppdrátt af borginni, og sýndi okkur leiðir allar og merkisstaði, er rétt væri fyrir okkur að skoða, eða okkur yrðu sýndir. í þessari skoð- unarferð á kortinu benti hann meðal annars á stað, er hann nefndi „International Settlement“, en segir um leið brosandi: „Þar verðið þið að koma“. Mér varð þá að spyrja, hvað þar væri að sjá, en þá rak mr. Scar- beck upp skellihlátur, og spurði hvort ég virkilega vissi ekki, hvað það væri. Mér brá hálfilla við, en sagði þó, að hann gæti varla vænzt þess að hver smástaður í San- Francisco væri þekktur norður við Heimskautsbaug. „Jæja,“ sagði þá Scarbeck: „Þú verður að kynnast þessu af eigin raun, meira færðu ekki frá mér.“ og hló við. Síðan urðum við beztu kunningjar, enda var hann gamansamur náungi og greiðvikinn í bezta lagi. Þenna sama dag var Þjóðverjunum og mér ekið um mestan' hluta borgarinnar og sýndir þeir staðir hennar, sem merkilegastir þóttu og fegurstir. Aldrei fyrr á ævi minni hefi ég fundið til fagnaðar við að sjá opið haf, en þegar við komum út á Vesturodda við Höfuðtorgið (Union Square) í San Francisco. Gullna hliðið, og Kyrrahafið blasti við svo langt sem augað eygði, spegilslétt og sólglitað, og svalur sjávar- þefurinn barst að vitum mínum. Annars vegar fannst mér, sem ég sæji aftur gamlan kunningja, þar sem sjór- inn var, og hinsvegar var mér Ijóst, að nú væri komið að leiðarenda. Heilt meginland lá að baki, og ekki yrði lengur haldið í vestur átt. Ekki treystist ég til að lýsa öllu því, sem fyrir augun bar þenna dag, enda rennur það saman í endur- minningunni, eins og litauðugt málverlc, með enda- lausum blæbrigðum, þar sem einstakir litir verða ekki greindir hvor frá öðrum, en hver grípur í annan og skapar órofa heild. Einn er þó staður, sem ég sá þá og skoðaði þó betur seinna ,sem ég vil geta að nokkru, en það er Golden Gate Park (Gullna hliðs garðurinn), sem tvímælalaust er eitt mesta furðuverk skrúðgarðslistarinnar um víða veröld. Garðurinn, sem er 1013 ekrur að stærð, liggur vestan frá ströndinni við Gullna hliðið og inn í miðja borg að kalla. Hann er þannig geysilangur, en ekki ýkja- breiður. Hvarvetna liggja um hann akvegir og gang- stígir, en þó er þar furðu villugjarnt ókunnugum, og full þörf margra daga, til að skoða hann rækilega. Nálægt garðinum miðjum er safnahverfi, þar er lista- safn, náttúrugripasafn og hljómskáli. Mynda húsin hálfhring um opið svæði, sem fagurlega er skreytt blómum og trjám, en í miðju þess er skál, með bekkja- röðum, og geta menn setið þar og notið tónlistar, en útihljómleikar fara þar fram að staðaldri. Ekki gafst mér tóm til að skoða listasafnið, en um náttúrugripa- safnið fór ég, en saknaði þá mjög, að ein sérkenni- legasta deild þess, fiðrildasafnið, var lokað um þessar mundir, en það segja fróðir menn, að sé eitt hið feg- ursta og furðulegasta safn, er þeir hafi litið. Annars þótti mér þarna mest koma til safns Afríkudýra, sem vitanlega voru sett upp í umhverfi sínu. Þá eru þama einnig mikil búr lifandi vatnadýra (Aquraium). Eru þar margar furðulegar kindur úr sjó og vötnum, risa- skjaldbökur frá Galapagoseyjum, krókódílar frá Afríku og Suður-Ameríku, eðlur og allskonar slöngur, sem á þurru landi lifa auk fiska og annarra sjókinda, sem ara- grúi var af, margt með litlu fisklagi, þótt fisksheiti beri, voru flest þau afskræmi ættuð úr djúpum Kyrra- Heima er bezt 303

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.