Heima er bezt - 01.09.1957, Blaðsíða 7

Heima er bezt - 01.09.1957, Blaðsíða 7
af hákarlaskipi Ásgeirs Einarssonar á Þingeyrum, 28. febr. 1862, og þeir ellefu saman. Benedikt var ungur rnaður og nýgiftur, er hann drukknaði. Guðmundur Guðmundsson var tveim árum eldri en Jónas bróðir hans (f. 1824). Hann var hæglátur maður og meinlaus, vitmaður lítill, þolmikill og rammur að aíli. Verkmaður var hann eltki að sama skapi og hann hafði krafta til. Óverklaginn, stirðvirkur og enginn aðfaramaður. Einhvern tíma kom Guðmundur að Spákonufelli. Þar voru menn að veggja hleðslu og hlóðu úr grjóti og torfi. Hella mikil lá þar hjá þeim. Þeir bentu Guð- mundi á helluna og sögðu: „Við tökum hana upp þessa með tönnunum.11 „Skyldi ég ekki geta það líka,“ sagði Guðmundur. Hann smeygði vetling sínum á nibbu á röð hellunnar, beit þar í og vó hana upp. Strákarnir stóðu hissa og gláptu á Gvend. Guðmundur var einhvern tíma vinnumaður hjá Knudsen verzlunarstjóra á Hólanesi, og oft var hann þar í vinnu síðar. Hann vann þar einu sinni að vöru- uppskipun úr vorskipi. Þá vildi svo slysalega til fyrir Guðmundi við hleðslu á uppsldpunarbát, að hann missti kvarnarstein niður milli báts og skipshliðar, og sökk hann þar. Guðmundi varð bilt við, horfði um stund út yfir borðstokkinn og sagði: „Skyldi honum ekki skjóta upp aftur?“ Það var einn vetur, eftir að Knudsen var giftur seinni konu sinni, Elísabetu Sigurðardóttur frá Höfn- um, að hann gerði út skip á hákarlaveiðar. Þar var Guðmundur einn háseta. Hann tók við mötu sinni, er farið var í fyrstu legu. Er bátsverjar komu inn aftur, tók Elísabet eftir því, að ósnert kom smjörið, sem hann fór með. Hún spurði, hverju það sætti. „Þeir sögðu mér að það væri snakksmjör og dræpi mig.“ Hafði Guðmundur tekið nærri sér að neita sér um smjörið í legunni og horft til þess löngunaraugum, því hann var matmaður mikill, en óttinn við líftjón og hremmingar, hélt honum frá því að neyta þess. Það var lítil sæla að éta harðætið þurrt og smjörlaust. Guðmundur kvongaðist og átti konu, sem Arnbjörg hét. Hún var Oddsdóttir, frá Brókarlæk á Skaga. (Giftust 27. júlí 1850). Þau voru í húsmennsku og hokruðu á jarðarskikum hér og þar á Skagaströnd. Arnbjörn var mesti sóði og drabbaði allt niður. Guð- mundur var ekki smáþrifinn heldur, en þó þótti hon- um nóg um skítinn á Arnbjörgu. Séra Jón Blöndal á Hofi kom einu sinni til þeirra í húsvitjun. Það var snemma morguns, og hitti prestur Guðmund úti við. Hann sagði hverra erinda hann var þar kominn, og hann-vildi koma í bæinn. Þá dró heldur niður í Guðmundi. „Hún Arnbjörg mín er svo skítug. Og svo eru kopp- umir.“ Guðmundur og Arnbjörg áttu mörg börn. Þau döfn- uðu furðanlega, þó lítt væru þau handfjötluð eftir heilsufræðislegum forskriftum. Synir þeirra voru Gest- ur, Guðmundur, Jónas og Jósef. Gestur og Jónas fóru austur á land og staðfestust á Eskifirði. Jósef fór til Ameríku. Guðmundur var kyrr á Skagaströnd og erfði viðurnefni föður síns og 'afa. Til aðgreiningar á lang- feðgum þessum, er allir hétu sama nafni og báru sama viðurnefni, var Guðmundur Magnússon kallaður elzti eða stóri bunki, sonur hans miðbunki og Guðmundur yngsti litli bunki. Guðmundur miðbunki var fáækur alla ævi. Hann varð ekki gamall maður, dó 10. ágúst 1872. Ambjörg entist miklu lengur og dó ekki fyrri en um aldamót. Guðmundur yngsti bunki var fæddur 5. maí 1862 í Bakkagerði. Hann ólst upp á nokkrum hrakhólum og á sveitarframfæri. Honum þótti snemma kippa í kyn til föðurföður síns og gerðist þegar á unga aldri ódæll og illur viðureignar, kjaftfor og hortugur. Hann átti mjög í illdeilum og áflogum framan af ævi og hlífðist ekki við. Hann hafði í hótunum að skera hvern þann, er ekki lét allt vera sem hann vildi. Guðmundur var mikill vexti, hár og þrekinn og hraustmenni til burða. Hann var sívalvaxinn og lotinn í hálsi, svart- hærður og svartskeggjaður, gráeygur og augnatillitið hörkulegt. Greind hafði hann vart í meðallagi. Verk- maður var hann góður, er hann vildi. Guðmundur smndaði sjó lengst af, eftir að hann komst til þroska, ýmist á heimaslóðum eða á Suður- nesjum. Þar reri hann margar vertíðir á Flankastöðum á Miðnesi. Þar kvongaðist hann konu þeirri, er Guðlaug hét og var Einarsdóttir. Með þeim var jafnræði. Bæði rösk til vinnu, hvorugt fyrir nostur eða tilþrif um snyrtimennsku og líkt á komið með þeim um greind- ina. Bækur létu þau afskiptalausar. Þau héldust við um hríð á Kálfshamarsnesi, og víðar þar ytra. Þá bar svo til að Guðlaugu tæmdist arfur eftir skyldmenni syðra. Fyrir hann byggðu þau timburhús í Höfðakaupstað. Nefndu þau ból sitt Flankastaði og bjuggu þar síðan. Guðmundur og Guðlaug áttu þrjú börn, er upp- komust, son og tvær dætur. Það þótti Guðmundi mikill fengur, er honum fæddist sonurinn, en hann var yngst- ur barna hans. Hann lét skíra hann Ragnar, í höfuðið á hinum fræga fornkonungi, Ragnari loðbrók, er Guð- mundur hélt að verið hefði hinn mesti garpur. Hann hafði orð á því við granna sína og kunningja, að þess- um dreng ætlaði hann að gefa lýsi og láta hann lifa. Hann ætlaðist til þess að strákurinn yrði hraustmenni, harðjaxl og sjóvíkingur. Guðmundur hélt hug sínum og hörku fram á síðustu ár, en hrömaði sem aðrir fyrir elli að líkamsþreki. Var þá allt tíðindalaust um hag hans, enda steinhættur hót- unum um að skera menn og skemma, er honum þótti við. Hann lézt 27. jan. 1932. Heima er bezt 295

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.