Heima er bezt - 01.09.1957, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.09.1957, Blaðsíða 11
fegurstu við Breiðafjörð. — Bærinn stendur hátt undir svipmiklum hlíðum, og hallar stóru túni og grasgefnu ofan að sjónum. Og ekki skortir land til ræktunar, þeg- ar skilyrði skapast til að nota þau gæði. En bílfært er þangað ekki, og fólksskortur stendur jörðinni mjög fyrir þrifum. — Þar býr nú gamall maður með syni sínum. Það er of fátt fólk á svo stórum stað. Heyrðist mér á þeim feðgum, að þeir væru að gefast upp á baslinu, og skal ég ekki lá þeim það. Fer þá of góður biti í hundskjaft, ef Siglunes verður eyðingunni að bráð á næstu áratugum. — Lending er við túnfótinn, ein hin bezta á Barðaströnd. Var og róið þaðan löngum til fiskjar, og mátti þar verstöð kallast fram um síðustu aldamót, einkum á haustin. Oft fiskaðist mikið af lúðu og ýsu á grunnmiðunum. Hákarlalegur voru líka stundaðar þaðan á opnum skipum að vetrinum. Síð- asti hákarlaformaður þaðan mun hafa verið Árni Einars- son, síðar bóndi í Sauðeyjum og Hergilsey, nú skipa- smiður í Flatey. Erfðar samgöngur stóðu Barðstrendingum löngum fyrir þrifum, því brimasamt er við ströndina, og lend- ing hvergi góð fyrr en inn á Brjánslæk, innsta bæ sveit- arinnar. En verzlunarviðskipti löngum mest í Flatey. Væri skipt við Vestfirðinga, var yfir torsótta fjallvegi að sækja. Varð ekki úr þessu böli bætt, fyrr en bílfær vegur var Iagður yfir Kleifaheiði til Patreksfjarðar, og verzlun héraðsbúa færðist þangað. Víða mátti þó ýta fleytu á flot, meðan mannskapur var nægur og bjargast var árum og seglum. Þetta er sýnu verra, síðan trillurnar komu til sögunnar. Þær eru þyngri í vöfum, og óhægra fyrir fáa menn að kippa þeim upp úr brimi. Mér þætti ekki ótrúlegt, að með tiltölulega litlum kostnaði mætti gera góða lendingu á Siglunesi fyrir trillubáta, svo þar gæti aftur skapast aðstaða til sjó- sóknar. Það gæti komið sér vel fyrir Barðstrendinga og fleiri; því ekki er ósennilegt, að innan tíðar verði aftur fiskisælt undan Sigluness- og Skorarhlíðum. Um aldamótin 18 hundruð og fram um miðja 19. öld, bjó á Siglunesi Bjarni Þórðarson (Siglunes-Bjarni), ættaður úr Múlasveit, nafnkenndur gáfumaður og skáld á sinni tíð. Matthías Jochumsson segir um Bjarna í æviminningum sínum: „Hann hafði verið mesti menn- ingarfrömuður bænda í Breiðafirði um sína daga.“ Minning hans mun nú farin að fymast í Breiðafirði, og skáldskapur hans að mestu gleymdur. Þó eru til í minnum manna stökur eftir hann. — Hann gekk eitt sinn af skútu, þar sem honum þótti lífið nokkuð sukk- samt, og kvaddi félaga sína með þessari stöltu: Á jaktinni eyddist flest, efnin þurfti að hafa hvur. En guðsóttinn entist bezt, því aldrei var hann brúkaður. í gæftaleysi og aflatregðu, kastaði hann fram þessari stöku: Sjóinn þó ég sjái á og sói ró til neta, mjó er fró, því fá ei má úr flóanum nóg að éta. Afi hans, Eiríkur Snorrason, er mun hafa búið á Skjald- vararfossi, fór þrjár ferðir á sltipi sínu norður á Horn- strandir eftir rekavið og flutti til Barðastrandar. Þótti það vasklega gert, og munu ekki margir hafa leikið það eftir. Á unglingsárum mínum var ég samtíða á skútu sér- kennilega gáfuðum pilti frá Siglunesi. Hann hét Ólafur Marteinsson. Hann braust til mennta af sárri fátækt. Lauk prófi frá háskólanum í norrænum eða íslenzkum fræðum, og mun hafa verið efni í rithöfund og skáld. Þegar við vorum að velkjast í bugtinni og sáum til Sigluneshlíða, heyrði ég hann raula við færið sitt: Austan kaldinn á oss blés, upp skal faldinn draga trés. Veltir aldan vargi Hlés, við skulum halda á Siglunes. Hélt ég þá og síðan, að vísan væri breiðfirzk. Aðrir segja að svo sé ekki. Líkur eru til, að Ólafur hefði varpað ljóma á ætt- byggð sína og umhverfi, hefði honum enzt aldur og atgervi. En hann veiktist snögglega og dó ungur, langt um aldur fram. Að liðnu hádegi (30. ágúst) kvaddi ég svo hina ein- mana feðga á Siglunesi, er tekið höfðu mér af ein- stalai alúð og gestrisni, og hélt inn Strönd. Næst labbaði ég heim að Fit, til að spyrja um, hvar bezt væri að fara yfir Haukabergsvaðal. Bóndi benti mér á tvær sandeyrar úti í vaðlinum, og sagði að ég skyldi fara eftir þeim. Síðan varð ég að ganga til stofu, og setjast að kaffidrykkju. — Fit er lítil jörð, en mikil nýrækt er þar í túni, og skurðgrafa var að þurrka land skammt frá, til aukinnar túnræktar. Næsti bær handan vaðalsins, er Brekkuvöllur. Nú mundi ég allt í einu eftir því, að ívar í Melanesi hafði beðið mig að láta sig vita, hvernig mér gengi inn fyrir Sandsheiði. Ég gekk því heim að Brckkuvelli, og fékk að hringja. Svo gerðist sama sagan og í Fit. Kaffi og kökur. Að loknu kaffinu hélt ég af stað. Hingað til hafði gönguför mín beinst eftir gömlum götuslóðum um fjöll og heiðar. Nú tók þjóðvegurinn við. Þá var úti friðurinn. Bílar geystust um veginn, frá austri til vest- urs og vestri til austurs, og fannst mér ég vera kom- inn á hættusvæði í hemaði. En ekld hafði ég langt farið, er jeppi var stöðvaður við hliðina á mér. Var þar kominn Kjartan Kjartansson frá Fossi, ungur piltur og gerfilegur, svo sem hann á kyn til. Vildi hann ólmur taka mig upp í jeppa sinn. Varð það úr, að ég þáði boð hans, og bar okkur nú fljótt yfir landið. Eiginlega hafði ég ekki ætlað lengra en að Haga þennan dag, og skaust ég þar úr jeppanum. Ég bjóst við að ganga inn Ströndina, og vissi þó, að dagurinn mundi ekki endast mér öllu lengra. — Mér hafði líka dottið í hug, að spyrja Hákon bónda um eitt og annað Heima er bezt 299

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.