Heima er bezt - 01.09.1957, Side 22

Heima er bezt - 01.09.1957, Side 22
Skessnhorn í Skarðsheiði í snjó. Þetta er eitt svipmesta og tigulegasta fjall úr neðanverðum Borgarfirði. Báðir jicssir staðir eru sögulega merkir fyrir dvöl Hallgríms þar. I Saurbæ var í sumar lokið byggingu veglegrar kirkju, sem ber nafn Hallgríms Péturssonar. Skammt innan við Saurbæ er mikill steinn einstakur. Hann er kallaður Hallgrímssteinn. Segja munnmæli, að sunnan undir jiessum stóra steini hafi Hallgrímur oft setið á fögrum sumardögum. Var hann þá að yrkja sálmana, eða hugleiða rök lífsins og vandamál. Bendir þessi sögn til þess, sem alþekkt er, að trúaðir menn sjá dýrð guðs í fegurð umhverfisins — í dýrð láðs og lagar. Útsýn frá Saurbæ er fögur og heillandi. Rétt fyrir vestan Ferstildu skiptast leiðir. Aðalþjóð- vegurinn liggur áfram vestur ströndina og inn með Hafnarfjalli til Borgarfjarðar, en hin leiðin liggur yfir Ferstikluháls, um Svínadal og Geldingadraga, til Skorradals. Örnefnið Geldingadragi, eða Draginn, er allt einkennilegt, en tildrög að því, að hálsinn fékk þetta nafn, eru sögð í Harðarsögu og Hólmverja. Það var vetur einn, litlu eftir jól, að Hörður fór með flokk manna upp í Skorradal. Þeir leyndust þar í skógi um daginn, en þegar kvöldaði fóru þeir að sauðahús- um Indriða bónda á Indriðastöðum, og ráku út úr hús- unum 80 sauði, það er geldinga, og ráku á leið til Svína- dals, upp á hálsinn. Indriði var giftur Þorbjörgu, systur Harðar, og voru þeir því mágar, sem svo er nefnt, en Hörður mat lítils mágsemdimar. Er þeir félagar komu upp á hálsinn, með sauðina, gerði snæfall mikið á móti þeim, og mæddust forystu- sauðirnir og urðu latrækir. Töldu sumir þetta gjörn- inga — eða galdraveður, og vildu sleppa sauðunum og forða sér, en jrað vildi Hörður ekki. Greip hann þá forystusauðina tvo, sinn með hvorri hendi, og dró þá þannig yfir hálsinn. Við það myndaðist allbreið braut í snjóinn, og í þá braut runnu sauðirnir. Er þessi leið yfir hálsinn síðan nefnd Geldingadragi eða Draginn, eins og fyrr er sagt. Þessi leið yfir Svínadal og Dragann, er farin af mörg- um, vegna þess, hve fallegt er í Svínadal og Skorradal, fyrir neðan vatnið, hjá Grund og Vatnshorni. Um byggingu eða landnám á Grund er þessi saga: Brynjólfur biskup hafði oft á ferðum sínum farið um Skorradal. Tjaldaði hann þá í landi Vatnshorns, þar sem nú er bærinn Grund. Honum þótti þama svo fag- urt bæjarstæði, að hann keypti þarna stórt land og lét reisa þar býli, er hann nefndi Grund, og lagði svo fyrir að þar skyldi kona hans búa, ef hún lifði lengur en hann. Vel hefur Brynjólfur biskup kunnað að velja bæjar- stæði, því að margir telja að Grand sé einna fegurst í Borgarfj arðardölum. Að lokum vil ég minnast á örnefnið Hvalfjörður. Vafalaust dregur fjörðurinn nafn sitt af því, að mikið hefur verið þar um hvali. En hvaða erindi hefur hvalurinn átt inn í þennan fjörð? Líklega hefur hann elt þangað síldartorfur, en á Iandnámsöld var mildu meira af hval við landið en nú. Það er einkennileg tilviljun, að eina hvalveiðistöðin, sem nú er rekin á íslandi, er staðsett við Hvalfjörð. Era gerðir þaðan út fjórir hvalveiðibátar, sem elta hvalinn langt vestur í haf, því að varla sjást nú stór- hveli við strendur íslands. Annars er til þjóðsaga um það, af hverju Hval- fjörður fékk þetta nafn. í þeirri þjóðsögu segir svo: Skrímsli eitt í hvalslíki hélt si? í innanverðum Faxa- flóa, og grandaði skipum og drekkti mörgum mönnum. Seinna fór þessi óvættur að halda sig inni á firðinum, og gerði þar mikil tjón. Var þá farið að nefna fjörðinn Hvalfjörð, segir sagan. Um þann tíma bjó aldraður prestur að Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Hann var blindur, en þó vel ern. Hann þótti margfróður. Syni átti hann tvo, og reru þeir oft út á fjörðinn. — Þetta skrímsli í hvalslíki, sem þá var nefnt Rauðhöfði, drekkti báðum sonum prests- ins, er þeir vora í fiskiróðri. Presti féll það þungt, að missa báða sonu sína. Hann bað eitt sinn dóttur sína, unga, að Icþða sig ofan að sjó. Hann spyr stúlkuna, hvernig sjórinn líti út. Hún segir, að sjórinn sé spegil- sléttur. Litlu síðar sér stúlkan dökka rák í sjónum, eins og þar færi stórfiskavaður. Þegar þessi dökka rák er komin á móts við þau feðgin, þá segir presturinn, að hún skuh leiða sig inn með firðinum. Var þarna hvalurinn Rauðhöfði kominn, og var eins og prestur- inn teymdi hann inn allan fjörðinn. Er ekki að orð- lengja það, að prestur teymir hvalinn með ósýnilegu afli inn í fjarðarbotn, upp eftir Botnsá og alla leið upp í vatn eitt lítið, sem Botnsá kemur úr, og heitir það vatn síðan Hvalvatn. — Er hvalurinn kom í vatnið, þá sprakk hann af áreynslu og gerði engum mein eftir það. Sagan segir, að óvenjulega stór hvalbein hafi fundizt við vatnið, og sanni það þessa sögu. Þannig segir þjóðsagan að Hvalfjörður hafi fengið nafn sitt. Stefán Jónsson. 310 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.