Heima er bezt - 01.12.1957, Qupperneq 4

Heima er bezt - 01.12.1957, Qupperneq 4
SR. SIGURÐUR STEFANSSON: MÖÐRUVALLAKIRKJA I HORGARDAL 90 ARA ‘sj unnudaginn 5. marz 1865 brann kirkja sú hin mikla, er Stefán amtmaður Þórarinsson hafði ■ j reisa látið á Möðruvöllum 1788. Skyldi messa ^^ þennan dag, og hafði verið lagt í ofn kirkjunnar um morguninn. En þar sem búizt var við messufalli, er á leið, vegna versnandi hríðarveðurs, var eimyrjan tekin úr ofninum og borin út í fönn. Hafði þá neisti falizt í eldiviðnum, sem skilinn var eftir í forkirkj- unni, og varð kirkjan alelda á svipstundu. Mætti sú sjón sóknarprestinum, síra Þórði Þórðarsyni, er hann kom utan hólana að staðnum, en hann bjó þá á Ósi. Og er sagt, að hann sneri þegar frá og heim, enda ekkert að gera. Úr kirkjunni bjargaðist aðeins skírnarfonturinn, tveir Ijósastjakar af altarinu og tveir bekkir. En tuminn féll logandi niður á grafhellu síra Jóns lærða fyrir kirkju- dyrum, svo þess sér enn merki. Pétur Havstein var þá amtmaður á Möðruvöllum, er þessi tíðindi gerðust. Ög vafalaust er það honum mest að þakka, hve ötullega og ríkmannlega var efnt til nýrrar kirkju, og fátt til sparað, að það hús yrði ekki síður virðulegt og fagurt en hið fyrra. Hefur amtið staðið fyrir öllum kostnaði og amtmaðurinn sjálfur stutt verkið með ráðum og dáð. Og hann hefur valið yfirsmiðinn, sem raunar var ekki langt að leita. Því að Þorsteinn Daníelsson a Skipalóni var einn viður- kenndasti og reyndasti byggingarfrömuður landsins á þeim tíma. Að vísu var hann þá hniginn að aldri, er þetta gerðist, nálægt sjötugu, og athafna- og umsvifa- mestu ár æfi hans að baki. Fyrir rúmum 40 árum hafði hann reist Lónsstofuna, og litlu seinna húsið á Hofi handa Ólafi lækni Thorarensen, fyrir 20 árum kirkj- urnar á Bakka og Munkaþverá, svo fátt sé talið, og fyrir löngu haffærandi skip og innt af höndum önnur stórvirki. En vafalaust hefur þessi kirkja verið hans kærasta smíð og hann lagt við gerð hennar meiri alúð en allt annað. Hún var sjálft meistaraverkið, enda þurru óðum kraftar þessa þrekmikla og óvenjulega dugnaðar- manns, er því var lokið. Þessi kirkja varð hans síðasta verk, er getið verður, en hún mun líka lengst halda nafni hans á loft og geyma minningu hans. Um sjálfa kirkjubygginguna fara annars ekki miklar sögur. Flest er það nú gleymt, þó að um það mætti að líkindum enn grafa upp ýmsan fróðleik, ef vel væri eftir skyggst. En margt af því hefur týnzt í Friðriks- gáfubrunanum 1874, og kirkjustóll Möðruvallakirkju frá þessum tíma og fram yfir aldamót, sem væri hin bezta heimild, fyrirfinnst hvergi. Suma kann að furða, hve lengi á byggingunni hefur staðið, full tvö ár. Og er það að vísu næsta ólíkt Daníel- sen, svo fljóthuga sem hann var og ákafur, að koma ekki þessu verki fyrr af. En geta má þess, að hér var óvenju vel til vandað um öll föng, en árferði þau miss- eri, sem smíðin stóð, afar erfitt og samgöngur við út-

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.