Heima er bezt - 01.12.1957, Side 10

Heima er bezt - 01.12.1957, Side 10
nokkru, og jörðin köld og nóttin svöl. Fór ég þá að rölta um garðinn, og blasti þá við mér Matthías skáld. Minntist ég þess, að ég hafði heyrt, að einhvern tíma hefði Matthíasi verið sögð vísa eftir mig. Hafði hann þá sagt: „Það ætti að flengja stelpuna fyrir að yrkja svona.“ Fannst mér nú bezt að sleppa ekki þessu tæki- færi og gera upp sakir við skáldið. Gekk ég því á vit hans og sagði: „Sit þú heill á hástóli, Matthías skáld!“ Matthías leit á mig fránum augum undan loðnum brún- um með nokkurri furðu og spurði: „Hver ert þú, sem dirfist að rjúfa þögn næturinnar? Ert þú hin rósfingr- aða morgungyðja, eða ert þú Freyja að leita Óðins?“ „Ei er ég goðum borin,“ svaraði ég, „þetta er bara stelpan, sem gerði vísuna um hann Einar gamla í Hlíð. Nú langar mig að vita, hvort það er rétt hermt.“ „Eigi man ég svo gjörla, hvað ég hef talað á minni löngu ævi, en hafi ég mælt það, hefur mér fundizt þú misnota það, er þér væri gefið eða gert verr en efni stæðu til, en það er vanþakklæti við skaparann. En það máttu vita, að miklu verður búið að skrökva um þig bæði til þess betra og verra, þegar þú ert komin á minn aldur.“ „Það er nú þegar búið,“ svaraði ég, „t. d. 14 vit- leysur og skrök í lítilli grein, þegar ég var fyrst kynnt fyrir þjóðinni.11 „Nú skulum við þegja,“ sagði Matthías, „sérðu ekki að sólin er að koma upp og, sólaruppkoman er heilagt augnablik.“ „Ég skal reyna að þegja, Matthías,“ sagði ég og sett- ist við fótskör þessa mikla anda, og horfði með þögulli lotning á sólaruppkomuna, sem hellti gullnum geislum yfir fagurskyggðan fjörðinn. Horfði á Vaðlaheiðina með svörtum hamrabeltum og giljum, og grænum geir- um, sem beygðu og teygðu ris upp heiðina og vinalegu bændabýlin í grænum túnum og naut ógleymanlegrar fegurðar og friðar þessarar björtu júlínætur. Ég var orðin þreytt og reis upp af steininum og gekk út að girðingunni og hugðist fá mér morgunblund í skjóli bjarkanna. Heyri ég þá að leikið er á flautu inn í skóginum, svo fjörugt og fagurt lag, að mín ómúsi- kalska sál var nærri upp numin. Ég fór að svipast um, og sjá, var það ekki sjálfur Pan, sem sat þar og lék í geislum sólar í grænu laufi. Hann hætti að leika og spurði glettnislega: „Hví reikar þú hér ein um nótt?“ „Það er nú bara af því, að næturvörðurinn gat ekki vakið Brynleif,“ sagði ég. „En hvaða lag varstu að leika á pípuna þína, Pan?“ „Það er nýtt lag við mitt ljóð, sem ég hef gert um skógana, eins og ég hef hugsað mér þá eftir 30 ár,“ svaraði Pan, „en viltu lofa mér að sjá hendumar á þér, telpa litla? “ „Þær em ekki til að sýna þær,“ sagði ég næstum feimin, strákurinn var svo „kokett.“ „Þessar breiðu hendur fengu lögun sína í árinni, þegar ég var að róa með honum pabba mínum á Mývatni og leggja netin hans.“ „Það era einmitt svona hendur, sem okkur vantar, sem eram að skapa fram- tíðarskógana, Viltu ganga í lið með okkur, sem ætlum að græða hrjóstrin?“ sagði Pan. „Það er nú einmitt það, sem ég vil,“ svaraði ég. „Þá kemur þú til okkar seinna, ef þú lendir þá ekki í klónum á fjandanum honum Amor.“ „Ekki hræðist ég þann fugl,“ sagði ég. „Sjá- umst aftur,“ sagði Pan, og leystist upp og hvarf í him- innblámann. Mér var nú horfin öll þreyta og löngun til svefns, og lagði í könnunarferð um garðinn. Smáfuglarnir voru vaknaðir, þröstur sat á grein og söng fyrir frúna sína, sem sat í dyngju sinni. Máríuerlurnar trítluðu um götuna og dintuðu stélinu, þær höfðu sett upp spari- húfuna sína og lá dável á þeim. Á þessari göngu barst ilmandi reykjarlykt að vitum mér; um leið kom ég auga á sveitabæ úr torfi og grjóti sunnan við garðinn, með grónu, grænu þaki og reyk upp úr eldhússtrompi. Kaffi var mín fyrsta hugsun, engar vangaveltur og stefnt á reykinn og tekinn saman ræðu- stúfur og sannleikanum vikið svolítið við. Einhvem. veginn gat ég ekki fengið af mér að segja að ég hefði legið úti í Listigarðinum. Ég klöngraðist yfir eitthvert girðingarslitur og gekk heim að bænum og kvaddi dyra. Kom þar út kona, og þegar við höfðum heilsast, sagði ég henni, að ég hefði verið á ferð í alla nótt, en engir komnir á fætur, þar sem ég hafði ætlað að finna fólkr og svo sá ég rjúka hér, og bað hana að selja mér kaffi. Ég væri ekkert hissa, þó að konunni hefði fundizt eitt- hvað bogið við þessa förukonu, og ég hefði ekki verið vel séður gestur svo snemma dags. Konan kvað fólk flest í svefni, en hún hefði farið snemma á fætur til að hita kaffi handa manni sínum, sem hefði farið snemma til vinnu. Ég sagðist vera fædd og uppalin í gamalli sveita- baðstofu og skilja vel og ekki setja fyrir mig, þó ekki væri búið að taka til svo snemma dags, og fínar kökur gæfi ég ekki mikið fyrir, en ef hún ætti rúgbrauð, væri það ágætt. Konan bauð mér nú inn, um skakkt og skælt fordyri og göng í litla baðstofu. Settist þar á rúm við lítið borð undir glugga. Liðkaðist brátt um málbeinið á báðum. Kom hún brátt með gott kaffi, smurt brauð og lummur, sem hin mótbýliskonan hafði lagt til. Ég er ekki viss um, að mér hafi komið betur í annan tíma að fá kaffi og góðar móttökur. Konan bauð mér þar að dvelja, þangað til færi að rjúka í Fagrastræti 1, og skyldi hún segja mér til, og má af því marka, að ekki skyggði þá skógur á milli þessara húsa. Loks kom að því að rauk í Fagrastræti, kvaddi ég þá þessa ágætu konu og fór. Aðalbjörg vinkona var ekki komin á fætur. Vakti ég hana glaðlega, og var mikið hlegið að næturslarki mínu. Háttaði ég ofan í rúm hennar og bað hana í allra engla nafni að lofa mér að sofa til hádegis. Gjarnan hefði ég viljað nú eiga gleggri mynd í huga mínum af þessu fomfræga býli Stóra-Eyrarlandi, eins og það var þá. Átti eftir löngu síðar að sjá það falla fyrir tækni vélmenningar og jafnað við jörðu á skammri stund. Óraði ekki fyrir því þá, að 25 árum síðar lægi leið mín inn í Lystigarðinn, og þar yrði vinnuvettvang- ur minn í 13 sumur. 394 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.